Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Breitt bak í vesen og tjón

Kannski er ég haldin ofsóknaræði en þegar ég hlusta á Birgi Ármannsson, forsætisráðherra, Seðlabankastjóra og alla hina kallana, þá fæ ég á tilfinninguna að þeir tilheyri einhverskonar leynireglu sem skiptir þá miklu máli,  meira máli en hagsmunir almennings.

Það er eins og hjörtu þessara manna slái í takt. 

Þeir tala eins, þeir standa saman í gegnum þykkt og þunnt.

Ok, ég tek því þá ef ég er að kafna úr samsæriskenningafári, ég hef breitt bak í vesen og tjón.

Birgir vill ekki gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að frysta eigur þeirra manna sem eiga þátt í falli bankanna.

Hann talar um að það sé ekki stemming fyrir neyðarlögum einkum og sér í lagi þar sem hryðjuverkalögum hafi verið beitt á Íslenska þjóð.

Halló, er það sambærilegt?

Fyrirgefið á meðan ég bregð mér aðeins frá til að veina hástöfum.

Komin aftur.

Við erum í klúðri, almenningur borgar, segja þeir eða amk. eru það skilaboðin í því sem þeir segja mennirnir.

Við Íslendingar höfum ekkert val, við sem komum ekki nálægt peningageðveikinni, lúxusnum og ruglinu sitjum uppi með reikninginn.  Við skulum borga og brosa ekkert kjaftæði.

En það má ekki taka þær eignir sem eftir standa til að lámarka skaðann.  Ónó, það er gerræði.

Ég held að Bræðrabandið sé staðreynd.

Súmí en ég held það samt.

Skítt með það þó ég verði færð í vatteraðan klefa í klædd undarlegri treyju sem gerir ekkert fyrir mig svona úlitslega séð.


mbl.is Vill ekki frysta eignir auðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gegnsæi eða hitt þó heldur

Það gerist allt svo hratt þessa dagana að maður má hafa sig allan við að fylgjast með.

Ekki að það hafi komið mikið út úr leynifundum, þreifingum og slíku en óróinn er gífurlegur.

Sko, launamál nýju bankastjóra RÍKISBANKANNA hafa ekki fengið verðskuldaða athygli.

Ég ætla að gefa þeim mína.

Ég trúði því að nú þegar gömlu aðferðirnar við að reka þjóðfélag hafa keyrt í strand þá myndi amk. verða tekin upp ný vinnubrögð við rekstur ríkisfyrirtækja.  Já, bankarnir eru í opinberri eigu og þeir sem þar starfa eru opinberir starfsmenn.

Það ber ekki mikinn vott um nýja hugsun að bankastjóri Nýja Kaupþings skuli vera með hærri laun heldur en t.d. forstjóri ríkisspítalanna.

Á ríkisspítölum er verið að fást við líf fólks og heilsu, í bankanum er verið að höndla með peninga (þe. ef einhverjir eru).

Ergó: Enn skulu störf með peninga verið metin æðri en þeirra sem sinna líkamlegri og andlegri heilsu landsmanna.

Meira að segja forsætisráðherrann er hálfdrættingur á við bankastjórann í Kaupþingi.

Meira bölvað ekkisens ruglið í þessu fólki.

Kannanir hafa sýnt að launamunur kynjanna hjá opinberum fyrirtækjum hefur aukist þvert ofan í yfirlýsingar stjórnvalda um að minnka hann og útrýma á endanum.

Einn helsti óvinur launajafnréttis er launaleynd.

En hvað gerist nú þegar "nýir tímar" renna upp?

Jú,jú, stelpurnar hjá Lands- og Glitnisbanka neita að gefa upp launin sín!

Ég vil minna bæði stjórnvöld og viðkomandi bankastýrur á þá augljósu staðreynd sem kannski er þeim ekki svo augljós þegar á allt er litið - að við almenningur eigum þessa banka, ekki að við höfum kært okkur um þá heldur var þeim neytt inn á okkur þegar þeir voru komnir á höfuðið og peningarnir allir á bak og burt.  Týndir.

Ég vil fá að vita hvað við erum að borga ÖLLUM okkar bankastjórum í laun og svo vil ég fá að hafa á því skoðun.

Allt kjaftæði ráðamanna um að nú skuli renna upp dagar nýrra vinnubragða, gegnsæis (ofnotaðasta orð í tungunni fyrir utan einelti) virðist ekki vera nema orðin tóm.  Amk. ennþá.

Á borðið með laun opinberu starfsmannanna í bönkunum, svo við getum borið þau saman og haft á þeim skoðanir.

Gensæi hvern andskotann!

Laun æðstu stjórnenda hjá ríkinu (fréttir á RÚV í gær).

Lesið hann Viðar sem bloggar um þetta mál.

Adjö!

 


Það varðaði bara svona

Ég tek ofan fyrir Sigmari Guðmundssyni þegar hann í Kastljósi kvöldsin reyndi að fá Geir til að svara og gekk hart fram í því.

Það er amk. ekki við hann að sakast þó upplýsingarnar sem fengjust hafi verið langt í frá fullnægjandi.

Strákurinn stóð sig með prýði.

Það fór um mig hrollur þegar Geir sagði að ekki stæði til að skipta út stjórn Seðlabankans.

Ekki að ræða það.

Geir ætlar heldur ekki að láta kjósa á næstunni.

Ekki að þeir Sjálfstæðismenn séu hræddir við kosningar - ónei, ástandið er bara þannig.

Bankarnir stækkuðu bara sí svona og enginn er ábyrgur.

Það varðaði bara svona eins og börnin segja.

Takk Sigmar - þú gerðir þitt besta og vel það.

ARG

KASTLJÓS KVÖLDSINS


mbl.is Við munum ekki láta kúga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann gekk ekki út í járnum

 

Nei sko, Hreiðar Már er hættur hjá Kaupþingi.

Fór þaðan við hátíðlega athöfn hvar hann kvaddi starfsfólkið með handabandi og þakkaði fyrir sig.

Síðan yfirgaf hann bankann.

Tatarata...

Hann gekk ekki út í járnum.

Nú er að klára fleirihundruðfermetraferlíkið við Hreðavatn og tjilla fallega.

Lesið hann Jónas gott fólk hann fer á kostum þessa dagana.

En að mér..

Ég tók drastíska ákvörðun áðan.

Ég er hætt að drekka kók.  Sko málið er að ég er orðin má háð helvítis svarta heimsvaldadrykknum.

Mér finnst nóg að vera háð sígós í kreppunni og vill því leggja mitt af mörkum til að koma Vífilfelli á kúpuna... DJÓK

Síðan ákvað ég að drekka kaffi í stað kóksins og gerast hipp og kúl.

Kaffi hefur alltaf verið drukkið af íslenskum almenning.

Þar sem ég er ákaflega meðvituð um það þessa dagana að ég er pjúra almenningur þá er ekki seinna vænna.

Ég man þegar amma mín hellti upp á "blessaðan sopann" með heimagerðum kaffipoka.  Hún notaði Ó.Jhonson og Kaaber og drýgði með Exporti.

Ég ætla að vera alveg sá kall.  Sko Exportkallinn.

Smá nostalgíumoli til að orna ykkur við.

Muniði eftir rauðköflóttu jóla mjólkurhyrnunum?

Ómægodd ég er farin í vegg.

Ég bið að heilsa Hreiðari Má og óska honum góðs gengis í nýju landi.. þorrí ég meina starfi.Halo


mbl.is Hreiðar Már yfirgefur Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárkúgun í gangi?

Það er enginn endir á áfallahvetjandi fréttum.

Ef það reynist rétt sem Steingrímur J. segist hafa heyrt, að Alþjóða hafi sett sem skilyrði fyrir láni að við greiðum upp Icesave reikninganna að fullu þá er ég sammála honum.

Það er pjúra fjárkúgun og ekkert annað.

Það er verið að skuldbinda okkur, jóna og gunnur þessa lands.

Mér gengur illa í dag að slaka á.  Ég held að það versta sé ekki komið í ljós. 

Svo segir jafnframt í þessari frétt að íslenska ríkisstjórnin virðist vera í sérstöku trúnaðarsambandi við The Finacial Times.  Eitt er amk. öruggt, þeir fá greinarbetri upplýsingar um gang mála en kollegar þeirra hér á landi.

Og nú ætla ég að spyrja að einu og kannski hefur einhver vit til að svara mér.

Það er fyrirliggjandi að almenningur þarf að borga gífurlegar fjárhæðir fyrir sukkbarónana, fjárhæðir sem munu leggjast á næstu kynslóðir.

Oliver Einar, Hrafn Óli, Jökull og Jenný Una, barnabörnin mín eru sem sagt stórskuldug.

Af hverju í andskotanum eru eigur þessara manna ekki frystar hér á landi?

Björgvin viðskipta sagði aðspurður í byrjun hildarleiks að eignafrystingar væru dramatískar aðgerðir og ekki tímabærar.

Eru þær ekki tímabærar nú ef ofan á alla milljarðana sem Alþjóða, Rússland og fleiri lönd eiga sennilega eftir að lána okkur ef við eigum líka að fara að borga sukkið í Bretlandi?

Ég er örugglega frekar illa upplýst um efnahagsmál enda gef ég mig ekki út fyrir að vera neitt annað, en ef ég borga ekki skuldir í bönkum þá er ég í vondum málum og ég tala af reynslu.

Af hverju gilda ekki sömu lögmál um Landsbankalordana og Glitnisgreifana?

Hvaða helvítis rugl er í gangi?

Einhver?

Ég hvet ykkur til að hlusta á þetta lag ykkur til hugarhægðar.

Sumir kalla þetta jólalag, ég kalla þetta lag sem smellpassar við mína stemmingu.


mbl.is Líkir Bretaláni við fjárkúgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lotið í marmaragólf

á skeljum

Mikið skelfing er það andskoti tímabært að Seðlabankastjórnin gefi leyfi sitt til láns frá IMF. 

Alveg: Takk, takk, takk, fallið á skeljar, lotið í marmaragólf, grátið fögrum þakklætistárum.

Davíð knúsaður í algjöra klessu, kysstur á vanga (farið í stjórnmálalegan sleik)og honum gefið gullúr.

Þið drepið mig.  Hættið þessum andskotans lappadrætti og komið þessu á koppinn.

Það er ekki alveg í lagi hjá okkur á skerinu eins og fjölmörg dæmin sanna.

Enn bíðum við þolendur kreppunnar eftir svari.

Biðin er mörgum erfð og sumum hættuleg.  Þá er ég að hugsa um eldra fólk og fólk sem er veilt á hjarta svo ég taki dæmi.

En...

Ég var að lesa þennan kall inni á DV. 

Hann fjallar um orðróm sem segir að ástæða frestunarinnar á frágangi lánsins við Alþjóða sé að stjórnmálamenn muni vera að fela vegsummerki og klóra yfir skít.

Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það og ekki Þórarinn heldur.

Ef satt er - hvað þá?

Síjú.

 


mbl.is Sátt um IMF-lán í Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verum hávær, bálill og óþreytandi

 

1538861041_d9b25cab6b

Þessa dagana ligg ég yfir báðum fréttatímum og ég gleypi í mig allar upplýsingar (eða skort á þeim) af gangi mála.

Svo bíð ég eftir Íslandi í dag og Kastljósi.  Ég vil fá að heyra fólk ræða um það sem er mögulega að gerast, hvað bíður okkar, hvað er það versta mögulega sem gæti dunið yfir eða það skársta sem við getum sloppið með?

Kemur ekki Ísland í dag með ladídadí prest og sálfræðing.  Halló, það var prestur sem malaði eitthvað yfirborðsjukk í Kastljósi í síðustu viku er það ekki nóg?

Umfjöllunarefni dagsins var reiðin.  Reiðin sem fólk er haldið þessa dagana, við verðum að beina henni í réttan farveg ef ekki á illa að fara. Blablabla.

Klisjur, klisjur, klisjur.

Ef ég er í kreppu þá fer ég til geðlæknis eða sálfræðings og borga fyrir það og vonast eftir príma þjónustu.

En að taka magasínþátt undir þetta kjaftæði pirrar mig óstjórnlega.

Sko, ég er bálreið þessa dagana, svo reið að það væri hægt að lýsa upp með mér heilan fokkings banka ef einhverjum dytti í hug að virkja geðslag mitt.

Ég VIL vera reið.  Ég vil ekki heyra eitthvað malímalívæmívæm um að beina reiðinni út á sjó, til guðs ofan í kjallara eða að næstu kirkju. 

Ég ætla að næra mína reiði bara svo það sé á hreinu og ég ætla líka að fullvissa mig um að hún haldi mér vakandi og gefi mér nennu til að fylgjast með því sem er að gerast í kringum mig.

Ég vil ekki hafa að einhver reyni að slá á hana.  Þessi reiði er mér kær, ég næri hana og elska hana eins og börnin mín.

Tilfinningar eru eðlilegar.  Vænti ég.  Eða hvað?

Það er eðlilegt að vera glaður, hryggur, pirraður, lítill í sér og gargandi happí.  Þá hlýtur reiðin að eiga sama tilverurétt er það ekki?  

Hér stoppa ég til að ná andanum og lauga andlit mitt úr köldu vatni.

Þessi kona hérna fer því fram á að umræðan í magasínþáttum fjalli um það sem skiptir okkur mestu máli núna í augnablikinu.

EFNAHAGSÁSTANDIÐ Á ÍSLANDI OG ALLAN ÞANN ANDSKOTANS BALLETT.

Svo getum við grenjað, kyrjað, legið á hnjánum og kastað steinum í krúttlegri fjandans fjörunni þegar allt er afstaðið.

Þangað til verum hávær, báill og óþreytandi!

Capíss?

Ég bist afsökunar á orðbragðinu er eitthvað æst svona.  Jeræt.


Slegin óhug - nema hvað

Á heimasíðu breska fjármálaráðuneytisins er að finna upptalningu á þeim löndum og stofnunum sem nú sæta refsiaðgerðum á sviði fjármála frá hendi Breta.

Á listanum má finna lönd einsog Súdan, Simbabve, Búrma, Norður-Kóreu, Lýðveldið Kongó...  og Landsbankann.

Í fréttinni segir að Landsbankinn sé í slæmum félagsskap.

Það fer auðvitað eftir því hvoru megin við borðið þú situr.

Eða hvað?

Búrma og félagar geta í ljósi aðburða síðustu vikna haldið því fram með þó nokkrum rétti að þeir séu í slæmum félagsskap Landsbankans.

Úje

En.. Það eru allir að tala um að hitt og þetta veki óhug.  Hafið þið tekið eftir því?

Alveg: Ég er slegin óhug yfir efnahagsástandinu.

Ég er slegin óhug yfir spillingu útrásarvíkinganna og lömun stjórnvalda og hjálparleysi.

Á DV eru menn líka slegnir óhug.

Af aðeins öðrum hvötum reyndar, en óhug samt.

Kem marefld til baka eftir fréttir.

Lífið er skítt og á eftir að versna.

Eða þannig.

Jájá, auðvitað elska ég ykkur.


mbl.is Landsbanki í slæmum félagsskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífshættulegur aulahrollur?

Kastljósið er minn uppáhaldsskemmtiþáttur þessa dagana.

Hver þarf Spaugstofu, Fló á skinni og aðra farsa þegar við fáum raunverulega skemmtiþætti með alvöru leikurum heim í stofu.

Ég hefði dáið úr hlátri í gærkvöldi ef ég hefði ekki verið með grátinn í hálsinum.

FARSINN

Hér fáum við í einum pakka, græðgina, montið, hrokann, kaupæðið, sjálfhælnina og yfirburðavissuna beint í æð.

Ó svo sárt.  Æi...

Og í síðustu viku....

Valgerður í pels, Davíð í hrifningarvímu og The Pres "on a mission from god".

Talandi um aulahroll, ætli hann geti orðið svo magnaður að hann drepi mann?

Hér er svo upprifjunin á íslensku útrásinni í síðustu viku.


Attention Mr. Skarphéðinsson

Kæri Össur,

Ég og vel flestir Íslendingar sitjum og rífum hár okkar og skegg í örvæntingu þegar hér er komið sögu.  Við erum hrædd um afkomu okkar, við óttumst kreppuna, við erum hrædd við atvinnuleysi, húsnæðismissi og fleiri atriði sem þvælast fyrir "okkur smásálunum" sem þið stjórnmálamenn eruð að verja fyrir sannleikanum þessa dagana og vikurnar.

Ég er alveg til í að lesa fréttir af gangi mála á ensku eða öðrum tungum í íslenskum fjölmiðlum ef sú tjáningaleið hentar þér betur en hið ylhýra.

Mér finnst nefnilega svo merkilegt að þær einu fréttir sem okkur krúttunum landmönnum þínum berast af gangi máli skuli koma erlendis frá og þá þurfa fjölmiðlar, eins og Mogginn í þessu tilfelli, að þýða þær ofan í okkur sem málið varðar.

Eða varðar okkur almenning kannski ekki nokkurn skapaðan hlut um hvað þið eruð að bardúsa fyrir okkar hönd?

Það er merkilegur andskoti að það skuli ekki vera hægt fyrir íslenska fjölmiðlamenn að fá eitt einasta svar um hvar málin standa en svo eruð þið með munnræpu við erlenda fjölmiðla.

What is the fucking problem?

Yours sincerely

Me the idiot


mbl.is Nálægt samkomulagi við IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband