Leita í fréttum mbl.is

Takk Ögmundur.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að Ögmundur Jónasson sé okkar heilsteyptasti stjórnmálamaður.

Ég hef greinilega haft rétt fyrir mér þar.

Trú mín á mannkyninu hefur farið upp um nokkur "ögm" í dag.

Takk Ögmundur.


mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála. Og hefur aldrei gefið vísbendingar um annað.

Árni Gunnarsson, 30.9.2009 kl. 13:00

2 Smámynd: Ruth

Sammála !

Hann stendur undir mínum væntingum

Maður með sterka réttlætiskennd og sannfæringu

Flott hjá honum

Ruth, 30.9.2009 kl. 13:01

3 identicon

Já það er hann, hann er ekki með lögheimilið í kjallaranum hjá systur sinni á Akureyri!

Samúel J. Samúelsson (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 13:03

4 identicon

En... er hann ekki bara að flýja mjög erfitt mál og mjög erfitt ráðuneyti??

alla (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 13:03

5 identicon

En hinir sem neyddu hann til að segja af sér fyrir að vilja standa með sannfæringu sinni draga nú trúna á mannkynið aðeins niður aftur, er það ekki?

Er öllu til fórnandi til að komast í ESB? Samstarfsmönnum, atvinnulífi þjóðarinnar, efnahagslegri framtíð barnanna okkar.... bara name it!

Hvað gerist nú? Mun VG bara þegja og kyngja af ótta við að verða rekin úr stjórn eða einhver þurfi að segja af sér? Ef þetta er ekki skoðanakúgun á hæsta stigi þá veit ég ekki hvað orðið þýðir.

Soffía (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 13:06

6 identicon

Algjörlega ósammála, Jenný.

Skoðum nú staðreyndir málsins:

1. Ögmundur hefur aldrei verið sáttur við Icesave-leiðina

2. Ögmundur er formlega formaður BSRB en á morgun verður kynntar harkalegar leiðir til niðurskurðar í heilbrigðis- og ríkiskerfinu. Þar mun formaður BSRB skamma heilbrigðisráðherra.

Ögmundur gerði það sem því miður gerist stundum. Hann henti sér um borð í brimskaflinn. Hafði ekki þor að sigla með.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 13:22

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 30.9.2009 kl. 13:25

8 Smámynd: Ragnheiður

Ég hefði viljað hafa hann áfram í stjórninni, nú treysti ég stjórninni mun verr en áður.

Ég er ekki sammála hans leið !

Hann er samt fínn sjálfur, við erum bara ósammála um aðferðir !!

Ragnheiður , 30.9.2009 kl. 13:26

9 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Hann virðist sannarlega vera prinsippmaður hann Ögmundur.

Hinu verður ekki horft framhjá að honum hlýtur að svíða það ferlega að standa blóðugur upp að öxlum við niðurskurð á samneyslunni og samhjálp þjóðfélagsins sem er hryggjarstykkið í málefnaskrá allra vinstri flokka. Það hlýtur að vera óbærilegt.

Flosi Kristjánsson, 30.9.2009 kl. 13:32

10 Smámynd: hilmar  jónsson

Stjórnin mun veikjast til muna. En ég tek ofan fyrir Ögmundi. Heilsteyptur maður.

hilmar jónsson, 30.9.2009 kl. 13:33

11 Smámynd: Sævar Helgason

Að vera ráðherra í ríkisstjórn á þessum tímum krefst bæði kjarks og að hafa þor.  Ég tel að Ögmundur hafi kiknað undan erfiðum verkefnum framundan.   Þða er bara mannlegt.

Sævar Helgason, 30.9.2009 kl. 13:41

12 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Já þetta er slæmur leikur sem Ögmundur finnur sig neyddan til að leika og hugsanlega á þetta eftir að reynast stærsti afleikur ríkisstjornar heilagrar Jóhönnu.

En seg þú mér alla, hvað meinar þú með; "hann er ekki með lögheimilið í kjallaranum hjá systur sinni á Akureyri!"

Segðu mér endilega meira af þessu. Skyldi SJS ennþá vera með lögheimili á Gunnarsstöðum í Þistilfirði?

Viðar Friðgeirsson, 30.9.2009 kl. 13:44

13 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Fyrirgefðu alla þetta átti að vera fyrirspurn til Samúels.

Viðar Friðgeirsson, 30.9.2009 kl. 13:46

14 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Það er eins með þessa brottför Ömma og margt svipað, hefði viljað sjá hann berjast innan ríkisstjórnar en utan.  Af hverju hverfur allt góða fólkið á brott?

Kveð þig nafna að sinni, með kærri þökk fyrir ánægjustund á Leifsgötunni í gær.  Hverf á brott til Klettafjalla.  Heyrumst síðar.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 30.9.2009 kl. 13:46

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir hér.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.9.2009 kl. 13:49

16 identicon

Viðar:  skv þjóðskrá er Steingrímur með lögheimli á Gunnarsstöðum í Þistilfirði.

Soffía (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 14:17

17 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Takk fyrir það Soffía.

Af hverju skyldi það nú vera? Eftir því sem ég best veit er hann giftur starfandi lækni í Reykjavík og hefur haft fasta búsetu þar árum saman. Hvað skyldi hann fá í styrk frá ríkinu vegna þessa?

Hann er fjármálaráðherra og það er verið að skera niður allt sem hægt er og ekki hægt.

Annað dæmi. Af hverju skyldi Höllustaða-Páll hafa sveigt landslög (sem hveða á um að hjón skuli hafa sama lögheimili) að sínum þörfum um að fá að eiga sitt lögheimili áfram á Höllustöðum, Skagafirði eftir að hann giftist borgarfulltrúa í Reykjavík, verandi félagsmálaráðherra ef ég man rétt.

Já hún leynist víða spillingin og ríður ekki við einteyming.

En ennþá er ósvarað spurningunni um kjallaraíbúðina á Akureyri.

Er þar eitthvað svipað dæmi á ferðinni. Er einhver ráðherra eða þingmaður búsettur í Reykjavík með lögheimili hjá systur á Akureyri til að geta fengið búsetustyrk frá ríkinu? Spyr sá sem ekki veit en er forvitinn um þessi mál. þær eru margar matarholurnar sem ríkið þarf að fylla á. Maður skilur að þingmenn með fasta búsetu úti á landi fái eitthvað fyrir að þurfa að koma upp öðru heimili tímabundið í bænum. En þegar menn svindla á kerfinu og "búa til" svona aðstæður þá er það spilling.

Viðar Friðgeirsson, 30.9.2009 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband