Leita í fréttum mbl.is

Fáfíklar, þrífíklar og fjölþjófar

Það er hægt samkvæmt einhverjum geðlækni (?) að vera fjölfíkill og skorta vilja eða kjark til að taka á sínum málum!

Vá, hafa einhver undur og stórmerki komið fram í læknavísindunum sem rennir undir það stoðum að það sé eingöngu vilji og kjarkur sem til þarf?

Er búið að afsanna að fíkn sé sjúkdómur?  Auðvitað er sjúkdómshugtakið umdeilanlegt en alkóhólismi (sama hvort rýkur, rúllar eða rennur) var skilgreindur sem slíkur innan læknisfræðinnar síðast þegar ég vissi.

Við þurfum að fá öppdeit frá þessum geðlækni hérna.

En að glæpamanninum.

Í fréttinni er hann greindur sem fjölfíkill.

Hm...

Ég var í róandi og áfengi, er ég þá fáfíkill?

Eða tvífíkill?

Ég heiti Jenný og ég er tvífíkill.

Aðrir þrífíklar, fjórfíklar og þegar efnin eru orðin fleiri þá fjölfíklar?

Ef maður reykir og étur eins og enginn sé morgundagurinn þá bætast væntanlega tvær fíknir við í nafnbótina.  Úje!

Svo eru það endurkomumennirnir sem þurfa að fara aftur og aftur í meðferð áður en þeir ná að stilla sér upp sólarmegin á lífsgötunni.

Þeir eru pjúra þráfíklar. 

"Maðurinn var fundinn sekur um ítrekuð umferðarlaga- og fíkniefnabrot. Þá var hann sakfelldur fyrir að stela kókflösku, neskaffi og mjólk úr verslun."

Halló, fjölþjófurinn þinn.  Skammastín"  Kók, kaffi OG mjólk!

Rólegur á græðginni.

Nei þá er betra að koma heilli þjóð á rassgatið og fá orðu á Bessastöðum í leiðinni.

Flytja svo lögheimilið sitt til útlanda og verða aldrei sóttur til saka.

Bilað ástand?

Nei, nei, allt í góðu og svona bara.

Rugl.

 


mbl.is Fjölfíkill í skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Athyglisverð hugtök ...

ThoR-E, 5.5.2009 kl. 15:41

2 identicon

Hehehehe.Er fjölfíkill ekki sá sem treður öllu í kroppinn sinn til að komast í vímu?Held það.Það er heil deild á LSH fyrir fjölfíkla og er merkt þannig hehehehe.Tvífíkillinn þinn,eða er það þrífíkill?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 17:05

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

En sá sem hefur eina fíkn.... bara fíkill eða einfíkill.... æi...

Jónína Dúadóttir, 5.5.2009 kl. 18:19

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hvaða fjandans rugl er þetta eiginlega, auðvitað er þessi fjölfíkill dæmdur, en ekki hinir, hjálpi þér desus það má ekki dæma þá.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.5.2009 kl. 18:46

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Næsta trend verður væntanlega að fara í "fíkilsgreiningu" og fá úr því skorið hversu margfaldur fíkill maður er

Sigrún Jónsdóttir, 5.5.2009 kl. 20:23

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

best ég leggji af allar þessar hefðbundnu fíknir mínar, í tóbak, áfengi, blogg, fésbók, kynlíf, pítusósu og hvað þær heita allar þessar óspennandi venjulegu fjölfíknir.

best að vera bara tvífíkinn, í peninga og völd.

þá er ég í góðum málum, rallaralallaræ

Brjánn Guðjónsson, 5.5.2009 kl. 20:59

7 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

fjölfíkill, ég var einmitt að velta þessu orði fyrir mér. Þín skýring dugar mér vel. Takk!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 5.5.2009 kl. 22:33

8 Smámynd: Eygló

Af svipuðum toga (málnotkun); læknirinn minn sagði mig heppna að vera ekki með fjölliðagigt. (fjölliður ft., þýddi annað fyrir mér þá) Auðvitað spurði ég manninn hvort ég væri þá með fáliðagigt.

Hitti mann (í Hveragerði) fyrir nokkru. Hann var svolítið "öðruvísi". Við tókum tal og þegar ég spurði hann útúr eins og íslenskur ættfræðingur, hvort hann byggi þarna o.fl. Nei, hann væri þarna í sambýli, vegna geðrænna vandamála. Fr. Nætingeil, spurði si svona hvort það væri þá þunglyndi eða þ.u.l. sem hrjáði hann. Já, og fleira svaraði hann. Jamm, var það eina sem passaði frá mér það augnablikið.

Þá svaraði hann þessu, mér ógleymanlegu:  "Ég er eiginlega fjölbrjálaður"   Hann var greindur og skemmtilegur og þvílíkur húmor fyrir sjálfum sér. 

Eygló, 5.5.2009 kl. 23:58

9 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fjölfíkill, í gamla daga var sagt að maðurinn væri fjölþreifinn ef hann var farinn að halda framhjá viðhaldinu. - En fjölfíkill er semsagt sá sem tekur framhjá aðalfíkninni og stelur kókflösku, neskaffi, og mjólk.   Þannig að ef ég sé manneskju með þessar vörur í innkaupakörfunni sinni, þá get ég giskað á að viðkomandi sé "fjölfíkill", um það hefur verið felldur dómur.  Ég tala nú ekki um ef hún er undir áhrifum af einhverju.

Í raun er þetta sorglegra en orð fá lýst. -

Hann hefði betur stolið allri búðinni,  og tekið bankann, snekkjuna, sumarhúsið,  og bíl búðareigandans í leiðinni, þá væri hann ekki á leiðinni Hraunið.
 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.5.2009 kl. 00:05

10 identicon

Er þetta ekki gamla sagan af blaðamanninum sem nennti ekki að fletta upp í orðabók til að finna orðið "síbrotamaður" og skeyta því við "í neyslu (eitur)efna"?

Hvort það sé ekki önnur ella að hártogast um hvort kaffi (fíkniefni) með mjólk (hollmeti?) geti talist til fíkniefna þegar því er blandað saman. Mér hefur samt sýnst vera hægt að skilgreina blönduna sem slíka miðað við hvað þeir kettlingar sem það gera leggja mikið á sig til að fá kýrolíuna í kaffið sitt.

Sveinn í Felli (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985776

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband