Leita í fréttum mbl.is

Hver hélt framhjá mér?

 11

Ég elska heimskulegar kannanir.

Þær hafa oft og iðulega bjargað hjá mér heilu dögunum.

Eins og þessi; krakkarnir (lesist ökumenn af báðum kynjum, jájá) á lúxusbílunum eru líklegri til að halda framhjá en þeir á venjulegu rennireiðunum.

Fletti, fletti, flett í heilabúi.  Nebb, ég slepp með mína kærasta og fjölmörgu eiginmenn.  Allt lúserer í bílalegum skilningi.

Öðlingar í öðrum skilningi.

Sjúkkkkkitt.

Ekki að það skipti máli svona eftir á.  Það sem er búið er búið og þeir mættu hafa átt tugi kvenna í takinu mín vegna meðan ég var hamingjusamlega ómeðvituð um það.

Svona eftirá sko, ekki á meðan ég var með þeim, þá hefðu höfuð einfaldlega fokið.

En nú vantar nýja rannsókn á strætófólkið.

Er fólk sem ferðast með strætó líklegra til að halda framhjá en reiðhjólafólkið?

Eru reiðhjólmenn alltaf skimandi upp í strætógluggana í leit að að hankí pankí bölvaðir?

Þetta er spurning sem heimurinn stendur frammi fyrir núna og bara verður að fá svar við.

Svo er það fólk eins og ég, sem þorir ekki að keyra bifreiðar og er því yfirleitt með einhvern sem gerir það fyrir mig í fylgdarliði sínu.

Er fólk í minni stöðu líklegra til framhjáhalds?

Úff, ég gæti sagt ykkur sögur.

En ég ætla ekki að gera það.

Þið getið lesið um það í endurminningum mínum sem koma í bókabúðir innan tíðar.

Jeræt, það sem þið eruð forvitin börnin mín á galeiðunni.

Súmí.


mbl.is Líklegastir til þess að halda framhjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Minn er alltaf á hjóli!

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 11:58

2 identicon

Þú ert frábær, Jenný. Elska þig!

Skorrdal (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 12:44

3 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Reiðhjólafólkið er varasamara en strætóliðið því það er síríðandi út um allar koppagrundir. Ragna ætti að líta vel eftir sínum kauða.

Sigurður Sveinsson, 5.5.2009 kl. 13:43

4 Smámynd: Laufey B Waage

Skokkarar eru örugglega líklegri til framhjáhalda en hinir sem fá sér bara göngutúr. Svo eru mótorhjólaknapar eins og rófulausir út um allar jarðir. - Eitthvað annað en þetta trausta rólegheitarfólk á litlu vespunum.

Laufey B Waage, 5.5.2009 kl. 13:49

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta lið með göngustafina er frekar skuggalegt. Svo maður tali ekki um hestamenn sem eru alltaf ..............

Finnur Bárðarson, 5.5.2009 kl. 14:39

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð auðvitað yndisleg.

Skorrdal minn: I lige mode.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2009 kl. 14:46

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fuss... þeir sem ferðast á hestum eru ríðandi upp um allar trissur! ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.5.2009 kl. 19:20

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Úps, sé eftir á að Finnur er með sama brandarann  ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.5.2009 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985712

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.