Leita í fréttum mbl.is

Elskulegheit er miðnafnið mitt - úje

 thanksgiving-sunbathing-turkey

Ég ætla að vera elskuleg - í 101 um næstu helgi.

Ég er svo mikill innipúki að ég fer ekki einu sinni á innipúkahátíðina, vill bara vera heima.

Það er auðvitað þessi eiginleiki minn að vera sífellt á skjön (segir pabbi) sem gerir það að verkum að þegar allir fara út - nú - þá fer ég inn.

Þegar allir fara í ferðalög - læsi ég dyrunum og hendi lyklinum.

En sumarið er búið að vera frábært.  Mín frönsku gen hafa stokkið í húðina á mér og nú er spurning um hvort mér verður ekki vísað úr landi, ef einhver frá Útlendingastofnun gengur í flasið á mér.Devil  Ég er búin að búa í garðinum á Leifsgötunni þar sem hitinn er ólýsanlega mikill unaður.

 Ég held áfram að passa hús dóttur minnar og í Sverige er 30 stiga hiti.

Jenný Una týnir ber og blóm og baðar sig á strönd.  Hrafn Óli kemur bara með agíar hinn ánægðasti.

Kisan Núll er dálítið pirrandi þegar hún stekkur á mig á nóttunni en æðruleysi mitt kemur í veg fyrir að það gerist hlutir.

Jökklinn minn, elsta barnabarnið er á leið með afa sínum í sólina í Króatíu.  Ekki leiðinlegt.

Annars vona ég að Akureyringar fái svefnfrið um Verslunarmannahelgina og að allir verði glaðir og ánægðir, að kaupmenn þéni mikla peninga, að gleðisafinn í Vínbúðinni seljist ekki upp, að allir dílerar detti á hausinn og fótbrotni og að andi almættisins svífi yfir vötnunum.

Vestamanneyingar mega líka nota þessi áhrínisorð.

Farin að ...

æi ykkur kemur það ekki við.  En það er djúsí - bílív jú mí.

Úje


mbl.is Þemað er elskulegheit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Frú Garden-Isolate!

Bannað að vera með undirrósargrín um hana Möggu, hún er svo sæt og fín!

Vona að þú finnir ekki lykilinn fyrr en í september!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.7.2008 kl. 14:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Who the fuck is Magga?  Ójá Magga Blöndal.  Hún er flott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 14:19

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og skammastín fyrir að óska mér inniveru fram í september addna norðanmaður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 14:19

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég fer ekki upp í Ártúnsbrekku um þessa helgi... enda er Reykjavík upp á sitt besta um Verslunarmannahelgina!

Heppin að fá að vera hérna í menningunni (...lesist late-þambandi besservissum ) .....Hlýtur að vera nice að fá smá frí frá ghettó-inum sem þú heldur annars til í

Heiða B. Heiðars, 27.7.2008 kl. 14:22

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hafðu vegabréfið á þér, svona til vonar og vara.

Skil það vel að þú takir ekki sjensinn á útihátíð ef fransmannagenin í þér eru að gera þig múlattalega. Dekkri húð = meiri hryðjuverk.

Greiningardeild Björns myndi örugglega vilja fara að greina þig og kannski greint þig vitlaust, sérstaklega ef þú ert vegabréfslaus og þú send úr landi........... OMG.

VERTU INNI!!!!

Heyrðu, gæri verið að Barak hafi komist í sundlaugina hans Michael Jackson? mér finnst hann hafa fölnað upp á síðkastið.

Einar Örn Einarsson, 27.7.2008 kl. 14:34

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Blessuð góða ég nenni ekki í úti hátíðar, nema kannski á dönskum dögum í hólminum. Þá stoppa ég stutt við.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.7.2008 kl. 15:48

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fyrirsögnin á fréttinni er komin frá Möggu, en skammast mín náttlega ekkert, Einar hinn ljúfi myndi hvort sem er finna lykilinn áður en þú týndir honum haha!

Kveðja úr mollunni í einangrunarbúðirnar! (nema þú hafir brugðið undir þig betri tánni og þekkst boðið hennar Hallgerðar hér að neðan?)

Magnús Geir Guðmundsson, 27.7.2008 kl. 15:48

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Besta helgi ever ad vera i bænum..um verslunarmannahelgina thá koma innipúkar eins og vid útur øllum veggjum og kikjum á lifid i borginni..en uss..hvad eru komin mørg ár sídan sídast hjá mér 

og já passadu thig i gudanna bænum á útlendingaeftirlitinu...theim er ekki treystandi sko..og svona "litud" nei thú ert í stórhættu...haltu thig heima...( eda i gardinum ).....

María Guðmundsdóttir, 27.7.2008 kl. 15:53

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segi eins og fleiri, þetta er besta helgi ársins til heimaveru,  ég er heimapúki    njóttu verunnar í 101 og hafðu með þér nivea krem í gönguferðum svo þér verði ekki vísað úr landi múlattinn þinn  Black  Black

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 16:42

10 identicon

Ég og minn verðum í borginni.Þetta er besta "heima"helgi ársins.Svo verður hjólað,og flækst á Eyjaslóð og svoleiðis.Auðvitað verður farið í bíó.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 17:36

11 Smámynd: Lolitalitla

Er það ekki bara svo að gamla fólkið heldur sig heima á meðan unga fólkið leikur sér, ekkert undarlegt við það. Hver ætli vilji svo sem fá lífeyrisþegana með sér á útihátíðirnar?

Lolitalitla, 27.7.2008 kl. 18:37

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá má ég koma við þig fröken heilög  Knúsírófan þín.  Gættu þín bara vel, því ef ég á leið um, þá gæti ég gert eitthvað voða voða vont því ég er jú í Frjálslynda flokknum og er rasisti, eins og þú veist  Annars á pápi minn afmæli 4. ágúst, en heldur upp á það 2. ágúst á laugardeginum.  Ég á að sjá um gleðina, þ.e. músikina, veislustjóran og ræðuhöldin.  Og það er bara þannig, að það get ég alveg gert.  Minn elskulegi faðir verður níræður og er hetja þeirra tíma, þegar orð stóðu.  Hann var einn af burðarásum samfélagsins hér i fleiri ár.  Svo hann á inni að honum sé sá sómi sýndur sem honum ber. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2008 kl. 18:46

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur: Til hamó með pabbann.

Lólíta: Ertu í alvöru að kalla þig það?  Djöfuls perri ertu

Heiða: Auli.

Þið öll: Hittumst í kaffi mínus leiðinlegir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 19:29

14 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Tek undir með þér. Hef alltaf haldið mig heima um Verzlunarmannahelgar og liðið einstaklega vel.

Steingerður Steinarsdóttir, 27.7.2008 kl. 20:00

15 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mig langar að flýja bæinn þessa helgi hvað verður veit ég ekki, ætli ég læsi mig bara ekki inni og hendi lyklinum eins og þú

Huld S. Ringsted, 27.7.2008 kl. 21:11

16 Smámynd: Lolitalitla

Ertu að kalla mig pervert fyrir það eitt að kalla mig ákaflega fallegu og exotísku kvenlegu nafni? Það þykir mér miður.

Lolitalitla, 27.7.2008 kl. 21:34

17 Smámynd: Hulla Dan

Heima er best.

Hulla Dan, 27.7.2008 kl. 21:38

18 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ég held ég hafi verið 15 þegar ég ákvað að verslunarmannahelginni væri best varið í bænum, frekar langt frá því að vera lífeyrisþegi :D

Núna engin spurning, engar biðraðir í ísbúðunum og svo fæ ég stæði heima hjá mér, hvers er skortur dagsdaglega.  Snilld.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 27.7.2008 kl. 22:15

19 Smámynd: Brissó B. Johannsson

Býrðu á Leifsgötunni?

Ertu nokkuð að leigja kjallara eða svoleðis.... fyrir 80.000 krónur eða minna (þar stendur hnífurinn í kúnni)? 

Kassavön og þrifin 

 kveðja

Hafnfirðingur á vergangi í Reykjavík.  

Brissó B. Johannsson, 27.7.2008 kl. 22:29

20 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ekki dettur mér til hugz að vera heima um verzlunarhelgi þezza frekar en þær fyrri.  Eiginlega mezt fyrir þá skynsömu áhættufælni mína í því að forðazt að einhverjir dézkotar úr 'Tjöruborginni' myndu brúka einhverja áunnina ættfræði eða kunníngzzkab til að planta sér & sínum ættlerum á lóðinni.

Ásbyrgi, eða Landmannalaugar, fer eftir veðurspá.

Tjöruborgarar ~lattéfíknir~ súpa bara súrann 'hómealóne' af vana.

Steingrímur Helgason, 27.7.2008 kl. 22:34

21 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Líst vel á kaffihúsahitting í Reykjavík um verslunarmannahelgina.

Flott myndin af þér með færslunni, Jenný... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.7.2008 kl. 22:37

22 identicon

ójá, ég man þegar ég bjó í bænum, hvað það var gott að vera heima um verslunarmannahelgina

alva (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 22:46

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lára Hanna: Ég er game.

Steingrímur: Ég bið að heilsa í Ásbyrgi.  Love it.

Brissó: Er að passa íbúð fyrir dóttur mína á Leifsgötunni.  Bý sjálf fyrir ofan snjólínu.  Því er nú miður.

Hildigunnur: Þú líka koma kaffi, drekka í tómum miðbæ, næstu helgi?  Si?

Huld: Ég myndi flýja líka ætti ég heima í miðri útihátíð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 22:47

24 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jenný, yeah!  Þarf það að vera um helgi?  Ég er í fríi, skoh...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 28.7.2008 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband