Leita í fréttum mbl.is

Karlahúmor - ekki kafna úr hlátri af eigin krúttheitum

Bloggheimar eru í langdregnu krúttkasti yfir jakkafötunum í Sjálfstæðisflokknum.  Fólki finnst svo krúttlegt að drengirnir ósnertanlegu gantist hvor við annan.

Hahahahaha.

Karlahúmor, jakkafatahúmor, vindlahúmor, bakherbergishúmor,égáÍslandhúmor og allir krullast upp af gleði. 

Nenni ekki að pæla frekar í því.  Allir þurfa að skemmta sér, líka ofurmenninn.

Og svo að henni Agnesi Bragadóttur, sem mér finnst flottur blaðamaður.

En þegar ég sé hana reiða í sjónvarpinu þá stekk ég á bak við næstu mublu og fel mig.  Ég er skíthrædd við þessa konu, ef ég hitti hana í ham, augliti til auglitis myndi sjást undir iljarnar á mér.

Kannski átti hún ekkert að vera að kalla Árna Johnsen stórslys og mælast til þess að hann héldi kjafti, frekar brussulegt hjá henni, en ég held að hún sé ekki ein um þá skoðun.  Það eru bara ekki allir sem þora að segja það upphátt.

  En ég segi það og meina að ég myndi taka lykkju á leið mína frekar en abbast upp á Agnesi. 

Agnes í Kastljósi

Annars finnst mér alltaf gott þegar pólitískir andstæðingar sjá sjálfir um að minnka fylgi flokksins síns.  Árni er búinn að standa sig vel í því.

Mér fannst ekki par smekklegt af honum að bera sitt mál saman við Bónusmálið, en samt er það ákaflega "árnískt" að gera það.

Ef maðurinn ætlar í mál við Agnesi, þá hann um það, en rosaleg viðkvæmni er þetta.  Magnús Geir bloggaði um offramboð á Árna og ég er á því að sá mæti maður hafi rétt fyrir sér.  Árni ætti að hafa sig hægan um hríð.  Öllu má ofgera og ég er rosalega mettuð af þessum manni.

Og eitt í viðbót hérna sem er búið að vera að pirra mig í einhverja daga.

Sigmar með BB í drottningarviðtali.  Sumir sjónvarpsmenn mættu fara að kíka á starfslýsinguna.  Kastljós er fréttatengdur þáttur og ég vil að það sé reynt að fá eitthvað út úr pólitíkusum þegar þeir mæta til yfirheyrslu.  Viðtalið var eins og hátíðarútgáfa af Séð og Heyrt, svo ég taki nú ekki sterkara til orða.

Sigmar er ekki beittur nú um stundir.

Björn og Simmi.

Hvar er Helgi Seljan?  Enn á sjó?

Ég sakna drengsins.

Ajö í bili


mbl.is Davíð boðaði Sigurð Kára á leynifund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman hefði verið að heyra hvort Sigurður Kári hefði staðið upp í hárinu á Dabba ef grínið var langt.  Einhvern vegin efast ég um það . 

jonas (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég sá Helga Seljan að spóka sig í miðbænum hér í fyrradag svo hann er örugglega í fríi. Annars sammála þér með þetta fáránlega grín hjá jakkafatagaurunum, hallærislegt og svo ekki féttnæmt

Huld S. Ringsted, 27.7.2008 kl. 11:40

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég segi bara eins og ég hef sagt síðustu ár, Árni átti aldrei að bjóða sig fram, heldur draga sig til hlés og vera þar. Hann getur þá flutt sýna gagnrýni eins og hann vill, en inn á alþingi átti hann ekki að fara aftur.  Agnes getur sjálfsagt verið ágæt en ég fíla ekki kjaftinn á henni, finnst það bara ekkert kúl.  Helgi mætti svo alveg fara að koma aftur.  Eigðu ljlúfan dag mín kæra

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 12:08

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mér finnst nú drepfyndið að láta fífla Sigurð Kára svona....

Hólmdís Hjartardóttir, 27.7.2008 kl. 12:34

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er ógeðslega fyndið!  Sit hérna við tölvu sonar míns og les þennan fjölskrúðuga pistil þinn sem er draumur í dósum!

Svona á að steggja fólk.

Ferðin gekk vel - erum að fara út að njóta aveðursins!

Edda Agnarsdóttir, 27.7.2008 kl. 13:18

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk Jenný mín, annars svo sem ekki merkileg hugleiðing, en var búin að burðast með hana um nokkurn tíma og því bara best að kasta henni út!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.7.2008 kl. 15:11

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Magnús Geir: Nokkuð glöggur þarna.

Búkolla: Hitti skratinn ömmuna þarna?

Edda: Gott að þú ert lent heilu og höldnu hinum megin við hafið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband