Leita í fréttum mbl.is

Skúbb hjá Svani

 RWCG_VRW

Krúttið og hrukkudýrið hann Ronnie Wood hunskaðist í meðferð í gær.  Gremlingurinn er búinn að vera á fylleríi síðan á frumsýningu myndarinnar um bandið "Shine a light".

Við alkarnir eigum ekkert að vera að tuða um hver er verstur en það fara ekki margir í sporin hans Ronnie nema ef vera skyldi glæsilegasta mannflak í heimi; Keith Richard.

Ég var að ræða Ronnie við húsband í gærkvöldi en bæði erum við heitir aðdáendur Stones. 

Ég sagði við húsband að það ættu að vera lög sem bönnuðu tjásugreiðsluna hans Ronnie style 197ogeitthvað.  Hann og Roddinn (Stewart) fóru á sömu hárgreiðslustofuna í London og Ronnie hefur ekki enn látið breyta um stíl.

Húsband: Hvaða máli skiptir það þó hárið á honum sé túperað er það ekki músíkin sem gildir?

Ég: Nehei, ekki bara músíkin, lúkkið dregur þessa menn hálfa leið.  Sjáðu mannflakið, Keith sem er að gera sig þrátt fyrir að nályktin finnstist langar leiðir og hann hafi tekið pabba sinn í nefið. 

Og við eyddum dágóðum tíma í að ræða útlit og klæðaburð tónslistarmanna fyrr og síðar.  Beethoven kom við sögu og Franz List.  Jájá. Og svo mundi ég eftir því að Keith barði Ronnie til edrúmennsku, mannflakið svo milt eitthvað.

En einn af mínum uppáhalds bloggurum er hann Svanur sem bloggar frá Englandi.  Í gær skrifaði hann færslu um Ronnie, hann hafði nefnilega hitt manninn á kaffihúsi í fyrradag.  Þetta er skúbb.  Ég held að það hafi ekki margir séð þessa færslu og þið sem viljið vita hvað Ronnie var að segja í fyrradag farið hingað og lesið.

En annars er ég góð bara.

Farin að dansa.


mbl.is Ron Wood í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég les líka bloggið hans Svans og sá þessa færslu. Hann lýsir atburðum mjög skemmtilega.

Ekki fannst mér verra að fundur þeirra fór fram í Bath - en þangað langar mig mikið að koma. Kannski Svanur bjóði okkur í heimsókn... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.7.2008 kl. 10:57

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mig dreymir líka um að fara til Bath, eigum vér að skella oss?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 10:58

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jú það er ekki hægt að segja annað en að þetta er sérstakt - en mikið svakalega var gaman að sjá myndina Shine a light, ég hef sjaldan haft eins unaðslega stund í lúxussætum með popp og cola eins og mann lystir! Ég fékk þennan unað í afmælisgjöf í vor frá manninum og svo fékk ég tónlistardiskinn afmælisgjöf frá elsta syni mínum sem er dúndur!

Edda Agnarsdóttir, 17.7.2008 kl. 11:00

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já stelpur mig langar líka til Bath! Finnst ykkur það skrýtið? - Búin að langa lengi.

Eigum við ekki bara að stofna Bath ferðasjóð?

Edda Agnarsdóttir, 17.7.2008 kl. 11:03

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtileg upplifun hjá Svani að komast í tæri við svo frægan mann.   En fjarskalega gengur sumum illa að sætta sig við aldurinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 11:04

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já og svo ráðum við Svan sem leiðsögumann!

Edda Agnarsdóttir, 17.7.2008 kl. 11:04

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Nú má Svanur fara að vara sig... og undirbúa komu okkar!  

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.7.2008 kl. 11:08

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svanur verður að fara að stækka við sig búi hann ekki í höll.  Verst að hann veit ekki af þessu.

En án gríns, bloggaferð til Bath, unaðsleg tilhugsun.

Gerum eitthvað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 11:11

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ásthildur, Ronnie hefur nú alltaf hegðað sér svona, frá því að ég kynntist honum. Hann tekur gott fyllerí fram yfir allt. Hefur farið oft í meðferð og hrunið jafnóðum í það aftur. Kallbeyglan...

Markús frá Djúpalæk, 17.7.2008 kl. 11:17

10 identicon

Ronne og Rodinn svipað krumpaðir Gott að kauði fer í meðferð.Er líka góð enda að koma hádegi.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 11:18

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta er Bath...

Markús frá Djúpalæk, 17.7.2008 kl. 11:20

12 Smámynd: Sverrir Einarsson

Hey, Ronnie Wood ekki skift um hárgreiðslustofu!!!!!!

Ekki hef ég séð Rod Stewart með aðra hárgreiðslu heldur síðan, ekki neitt svona, Rod er ekki hótinu skárri en Ronnie, hvorki hvað varðar bjór brennivín eða kvennfólk,

Er alveg til í að fara til Bath með ykkur.........hvar er annars þetta Bath?

Eigið svo góðann dag......það ættla ég svo sannarlega að gera

Sverrir Einarsson, 17.7.2008 kl. 11:23

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Are you going to Bath og are you going to take a Bath with Ronnie and wash his hair? .. ..

Þessir krumpukallar eru annars krútt .. holding on to old times and haircuts ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.7.2008 kl. 11:35

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það er alveg satt hjá Svani að Ronnie er þrællíkur indíána. Mér finnst það eina sem vantar vera fjaðraskrautið á höfuð hans.

Svava frá Strandbergi , 17.7.2008 kl. 11:48

15 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

verið að bjóða með í bað?

Brjánn Guðjónsson, 17.7.2008 kl. 12:10

16 Smámynd: Þröstur Unnar

Sverrir slakaðu þér kallinn. Á þetta ekki að vera Femmaferð?

Þröstur Unnar, 17.7.2008 kl. 12:39

17 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Æ hann er svo halló að það er næstum því dúllulegt. 

Bath hljómar vel.

Elísabet Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 12:55

18 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þeir sem hafa áhuga geta kynnt sér borgina Bath hér.

Þröstur...  Femmaferðir eru náttúrulega skemmtilegastar en hver veit nema þér verði leyft að fara með ef þú biður fallega... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.7.2008 kl. 13:05

19 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Já Svanur er frábær bloggari og enn skemmtilegri í persónu....ég kem auðvitað með í  ferðina

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.7.2008 kl. 13:29

20 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jamm við ættum að stofna reikning og Krumma/Hrabba eins og Svanur kallar þig, þú sambandar hann og spyrð hvort hann vilji gæta (ekki gjæta) okkur og lætur hann koma með tillögur að samanstað og lengd tímans. Alls ekki lengi.

Svo drífum við í þessu og allir með!

Edda Agnarsdóttir, 17.7.2008 kl. 13:43

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ætla að vera gerræðisleg, ég vil enga karla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 13:57

22 Smámynd: Þröstur Unnar

Jebb, vissi´ða Jenný.

Þröstur Unnar, 17.7.2008 kl. 14:10

23 Smámynd: Þröstur Unnar

Förum bara á rúntinn strákar og sjáum hvort við finnum ekki eithvað sem kostar undir 10 þús kall.

Þröstur Unnar, 17.7.2008 kl. 14:12

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þrölli: Hvað ertu að meina undir 10. þús. kall?

Og stelpurferðir eru einfaldlega skemmitlegastar, þorrí

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 14:34

25 Smámynd: Þröstur Unnar

Bara, það er allt orðið svo óggislega dýrt.

Þröstur Unnar, 17.7.2008 kl. 14:48

26 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innlitskvitt

Ásdís Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 14:50

27 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég væri sko til í að koma með til Bath.  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.7.2008 kl. 15:36

28 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Bath er eiginlega eina borgin í Bretlandi þar sem er að finna heitt vatn í jörðu og hér er nýbúið að taka í gagnið nýtt "spa" . Það væri nú ekki amalegt að fá eins og fáeina íslendinga í heimsókn í smá dekurferð. Ég get lofað ykkur bestu fáanlegu leiðsögn um væðið og alla leið til Stonehenge og Glastonbury ef þið komið alla þessa leið hvort sem er. Sem sagt, til þjónustu reiðubúinn :)

Svanur Gísli Þorkelsson, 17.7.2008 kl. 15:53

29 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil ekki deyja fyrr en ég er búin að sjá Stonehenge.  Stelpur förum að safna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 16:07

30 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 rugludallar

Jóna Á. Gísladóttir, 17.7.2008 kl. 17:19

31 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ok hver nennir að kanna með verð og sollis???

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.7.2008 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.