Leita í fréttum mbl.is

Misþyrmingar á eyrum og bjórgenum

Musclehead

Ég er alveg á fullu að blogga um heimskulegar rannsóknir.  Það er ein á dag að meðaltali á Mogganum sem fær mig til að skellihlæja.

Eins og þessi.  Hávaði fær fólk til að þamba meiri bjór.

Já, halló, það er sjálfur hávaðinn sem sest í bjórgenin og þau garga af þorsta?  Eruð þið ekki að grínast?

Þegar þú getur ekki talað í partíi eða á krá vegna helvítis láta og gargs hvað áttu þá að gera við sjálfan þig?  Brosa út í myrkrið eins og félagslega fjölfatlaður vanviti?  Að sjálfsögðu ekki, þú reynir að fela vandræðaganginn með því að skríða ofan í glasið þitt.

Og "the rest is history".  Sjáið dagbækur lögreglunnar ef nánari upplýsinga er óskað.Devil

En að öðru, þegar ég var að skrifa þetta þá mundi ég eftir einu alls óskyldu sem gerðist á skemmtistað.

Kona sem ég þekkti einu sinni fór á djammið með vinkonum sínum, ein þeirra var ekki var ekki sliguð af heilafarangri.  Hún sá mann, henni fannst hann sætur og hún fór til hans og sagði við hann; "blessaður, skjótt skipast veður í lofti". (Henni fannst frasinn svo djúpur eitthvað) 

Maðurinn; "What?????" 

Konan; "já skjótt skiptast veður í lofti bara, er eitthvað að því?" (Dálítið sár svona)Errm

Maðurinn; "Það hefði verið gaman að fá að vita hvað þú heitir og hvað þú villt mér áður en þú ferð að þylja veðurfregnir"W00t

Miðað við svona samtöl er kannski fínt að blasta músíkina þannig að ekki heyrist mannsins mál.

Ég er á því.

Annars fer ég ekki á bari svo mér er andskotans sama.

En af hverju er fólk að leggja á sig eyrnamisþyrmingar?  Fyrir búsið eða fyrir ástina eða félagsskapinn eða allt í senn?

Bíts mí.

Nei, nei, ég er að fokka í ykkur.  Ég skil alveg að fólk fari á djammið, ég var einu sinni í þeim sporum líka, sko áður en ég þroskaðist og fór að hanga með Guði og félögum á kvöldin.

En ég skellti þessari mynd inn af Gilzenegger, eða mér sýnist þetta vera hann.Halo

 

 


mbl.is Hávaði eykur bjórþambið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Jú kill mí vóman.  Frasarnir hjá þér eru óborganlegir.  Farðu vel með þig í dag og koma svo með fleira hlátursefni í dag.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 15:17

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hahahahahahh Algjör snilld. - Eins og tröll úr heiðskýru lofti !!!!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.7.2008 kl. 15:34

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehhe nú get ég farið að elda matinn, búin að fá minn skammt af gleðiefni í dag.   

Ía Jóhannsdóttir, 17.7.2008 kl. 15:59

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er kannski nýjasta pikköpplínan?

Helga Magnúsdóttir, 17.7.2008 kl. 16:21

5 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 18:01

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  you make my days ...hahahaha.... 

María Guðmundsdóttir, 17.7.2008 kl. 18:05

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já þú meinar, Einar.

hávaðinn er semsagt til að yfirgnæfa gargandi fulla fólkið

Brjánn Guðjónsson, 17.7.2008 kl. 20:38

8 identicon

Það er bara best að vera heima og spjallaHef aldrei getað skilið þennan ofurháfaða sem myndast á börum og kaffihúsum eftir kl ca ellefu á kvöldin...algert eyrnaofbeldi

Þú ert aftur á móti algert æði!!

alva (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 20:58

9 identicon

 Jenný..þú ert alveg hreint óborganleg

Guðrún (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 21:06

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er nú frábær Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.7.2008 kl. 21:27

11 Smámynd: Laufey B Waage

Ég hef aldrei vitað um nokkra manneskju sem ekki finnst hávaðinn of mikill á skemmtistöðum. Svo ég bara spyr: Af hverju í  ósköpunum er þetta svona? Og fyrir hvern?

Laufey B Waage, 17.7.2008 kl. 21:54

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Segðu!

Flott mynd að Gilz annars........  

Hrönn Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 22:12

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er fyrir eigendurna til að fólk geti ekki talað og drekki í staðinn.  Alveg satt.

Hrönn: Mér finnst þessi mynd alveg óborganleg.  Hún er svo lík Gilza svona verður hann bráðum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband