Leita í fréttum mbl.is

Of margir? - Jesús minn á pallinum!

Er heimurinn eins og við þekkjum hann að verða minni eitt?

Hvað varð um eðlilega kröfu atvinnurekanda svona almennt um að launþegarnir séu edrú í vinnunni?

Sorrí, ég á ekki að vera svona fljót á mér, það var lengi til siðs að drekka í vinnunni.  Var ritari hjá Aðalvertökum uppi á velli hérna í denn, og þar voru margir fullir í vinnunni, þó þeim væri stranglega bannað það.  Reyndar veit ég ekki til þess að neinn úr þeim hópi væri atvinnuflugmaður í hjáverkunum.  Sjúhúkkit.

En þegar frétt um að það sé hópur af flugmönnum að fljúga fullir þá missi ég trúna á sans nútímans fyrir því hvað skuli  vera rétt og hvað ekki, þegar fyrirsögnin er "Of margir fljúga fullir".  Halló!  Hemjið ykkur á afslappelsinu kæru blaðamenn.

Sko þetta eru 50 flugmenn á Indlandi sem eru kyrrsettir árlega eftir að hafa  flogið farþegaflugvélum undir áhrifum..  Skelfileg tilhugsun.  Algjörlega martraðarkennd fyrir flughræðslumanneskju eins og mig.

Samkvæmt fyrirsögninni þá eru 50 of margir.  Eru þá 10 of fáir?  Hvað er ásættanleg tala á flugmönnum sem fljúga í glasi?

Og það leiðir mig að því sem ég kæri mig ekkert um að hugsa um.  Hversu margir fljúga fullir í þeim vélum sem ég flýg með?  Mér dettur ekki í hug að þetta sé eitthvað sérindverskt vandamál.

Ég legg til að það verði ráðinn flugumferðarlögga sem verður með testkitt í flugstjórnarklefanum þannig að maður eygi möguleika á að drepast úr einhverju öðru en flugslysi.

En áður en einhver fer á límingunum þá eru okkar flugmenn reyndar flottastir í heimi.

Eiginlega OF flottir ef það er hægt.

Og örugglega allir bláedrú.Whistling

Það er ekki grín að þessu gerandi.

Góða ferð þið sem eruð á leiðinni út í lönd.Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fljúga í glasi........

Sorrý - mér fannst þetta bara svo fyndið!!

Hrönn Sigurðardóttir, 25.6.2008 kl. 20:27

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

það á að vera sjálfsagt mál að taka flugmenn í test áður en flogið er...þekkti einu sinni íslenskan flugmann sem flaug oft á milli landa augadrukkinn og í blackouti....þeir eru sjálfsagt fleiri...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.6.2008 kl. 20:52

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Flogið með trukki og dýfu .. fjör!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.6.2008 kl. 21:09

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Miðjan mín var að taka á loft fyrir korteri síðan frá Alicante á Spáni. Er í ömmuferð og er á leið heim! Fékk smá í magann.....vil bara fá hana heila heim með ódrukknum flugstjórum við stýrið  ...og allt kringum hana á meðan hún er ellefu kílómetra uppi í lofti....!

Sunna Dóra Möller, 25.6.2008 kl. 21:32

5 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Úff nógu flughrædd var ég fyrir maður, þetta á laglega eftir að poppa upp í hausinn á mér næst þegar ég flýg, þetta og það að mér finnst ég alltaf vera að lesa um flugslys upp á síðkastið......

Ylfa Lind Gylfadóttir, 25.6.2008 kl. 22:39

6 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Það eru ekki mörg ár síðan frönskum flugmönnum var bannað að drekka rauðvín með matnum. Í flugi sko.

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 25.6.2008 kl. 23:53

7 Smámynd: Ragnheiður

fljúga í glasi gladdi mig líka ósegjanlega, ég get hlakkað yfir þessu að vild.(fer alls ekki uppí flugvél).ne...HEYRÐU ! Ég gæti fengið vélina í hausinn ?!

Þá dettur mér í hug ; ók ferjuflugmönnum um daginn og þeir sáu eina litla koma inn til lendingar. Hún er með skrúfunni aftaná og þeir fengu tilfelli af hlátri og hikstuðu svo upp úr sér milli hláturskastanna...Einhver hefur nú verið fullur að setja þetta saman...

Ég asninn skellihló ...(bilaðir broskallar en hér átti að vera einn reiður )

Ragnheiður , 26.6.2008 kl. 00:10

8 Smámynd: Beturvitringur

Ég get heldur ekki hugsað mér að fljúga í glasi,  með eða án flugmanns/a

Verðum við ekki að hugsa sem svo að lélegir flugmenn séu e.t.v. skárri, í glasi.

Beturvitringur, 26.6.2008 kl. 01:16

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Almáttugur! Mér finnst einn alltof margir! Þetta eru frekar truflandi upplýsingar fyrir fljúgandi fólk!

Annars er orðið svo dýrt að fljúga að það geri ég ekki í bráð... fólk verður bara að koma til mín.

Laufey Ólafsdóttir, 26.6.2008 kl. 03:07

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hef aldrei sjálf flogid i glasi en thad hljómar litt spennandi held thad verdi doldid thrøngt um mann,tala nú ekki um ef margir fljúga i glasinu....nei suss..má ekki gera grin ad thessu,audvitad er thetta háalvarlegt vandamál og eins og thú segir, vart bundid vid Indland. Sammála med thvagprufur á øllum flugvøllum..fyrir flugtak takk

eigdu gódan dag.

María Guðmundsdóttir, 26.6.2008 kl. 04:30

11 Smámynd: Tína

Tína, 26.6.2008 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.