Leita í fréttum mbl.is

Þjóð í móðursýkiskasti

pink 5

Ég vona að fólk fari ekki að velta sér upp úr kostnaði við þetta tiltekna leiguflug umhverfisráðherra.

Þjóðin var í móðursýkiskasti.

Það var hrópað: Hvar er umhverfisráðherra?  Hvað ætlar hún að gera?  Ætlar Þórunn að endurtaka sömu mistök og síðast?

Og konan fór á staðinn þegar hún kom heim úr sumarfríi og tók á málinu.

Fólk fékk það sem það vildi.

Og þó ég geti vissulega gagnrýnt umhverfisráðherra fyrir eitt og annað, þá held ég að hún sé ein af fáum stjórnmálamönnum sem mylur ekki undir sjálfa sig.

Og hana nú.

Og svo finnst mér arfalélegt að sjá bloggfærslu sem þessa og það á sjálfan 19. júní, og það er kona sem heldur á lyklaborðinu.

Jabb, lífið er skrýtið.


mbl.is Ráðuneytið greiðir fyrir leiguflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála!  Það hefði líka allt orðið vitlaust ef hún hefði ekki komið

Til hamingju með daginn

Sigrún Jónsdóttir, 19.6.2008 kl. 12:34

2 identicon

Það er aldrei hægt að gera öllum til hæfis það hefði verið kvartað yfir því ef hún hefði ekki mætt á staðinn og það er kvartað yfir því að hún mæti á staðinn.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 12:44

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér finnst Þórunn hafa staðið sig með prýði, heyrði viðtal við hana á Stöð 2 í gær og hún var frábær þar. Pólitískir andstæðingar hennar reyna hvað þeir geta að nota þetta gegn henni, myndu nota hvað sem er, sama hvernig hún hefði brugðist við. Þetta er flott kona!

Til hamingju með daginn, elskan!

Guðríður Haraldsdóttir, 19.6.2008 kl. 12:53

4 identicon

Takk f. beittan pistil Jenný...gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 12:55

5 Smámynd: Berglind Inga

Til hamingju með daginn

Berglind Inga, 19.6.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: Ragnheiður

Þessi færsla sem þú vísar í er afspyrnu ömurleg, ég lét þá skoðun mína í ljósi þar.

Ragnheiður , 19.6.2008 kl. 13:02

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gott eigum við ekki að taka okkur saman gott fólk og segja konunni hvað okkur finnst um þá ömurlegu aðferð sem svo oft er notuð gagnvart konum, þ.e. hvernig þær líta út, hvernig þær eru klæddar osfrv.

Er það nema von að við þurfum stöðugt að minna á jafnréttismál.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 13:05

8 Smámynd: Linda litla

Til hamingju með daginn

Sammála þér með þessa færslu sem þú vísar,óþarfa dóna og barnaskapur. Bestu kveðjur inn í fallegan dag, hérna ú fellunum.

Linda litla, 19.6.2008 kl. 13:05

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Linda: Sömuleiðis.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 13:09

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Jebb. Mér fannst Þórunn standa sig mjög vel, og finnst illa að henni vegið með þessari færslu vesalings konunnar sem þú vísar í.

Þröstur Unnar, 19.6.2008 kl. 13:17

11 identicon

Mér finnst færslan sem þú vísar í þar sem er ráðist að útliti Þórunnar ekki svara verð.  En er sammála því að það er ótrúlegt hversu oft er ráðist að útliti fólks og klæðaburði og þá sérstaklega kvenna, en karlarnir lenda reyndar í þessu líka.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 13:20

12 Smámynd: María Guðmundsdóttir

til hamingju med daginn Jenný,sem og adrar konur sem koma hér Vægast sagt ømurleg færsla tharna hjá henni Gudrúnu eda hvad hún heitir. ansi høfum vid mátt eiga ømurlega útlitandi rádherra af karlkyni án thess ad nokkur tali um thad enda ósmekklegt i hæsta máta. Fyrir utan thad thá hefur Thórunn akkúrat ekkert ad skammast sin fyrir. Lýsir frekar throska vidkomandi bloggara en nokkru ødru finnst mér.

Eigdu gódan dag Jenný og hafdu thad gott.

María Guðmundsdóttir, 19.6.2008 kl. 13:24

13 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

"Drengur" góður ert þú Jenný mín - eða ætti ég kannski bara að segja "kona góð" .

 Gleðilegan 19. júní kæra bloggvinkona

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 19.6.2008 kl. 13:30

14 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Skammar fæsla hjá þessari konu í garð Þórunnar...

Til hamingju með daginn Jenny 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 19.6.2008 kl. 13:45

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Ólína og sömuleiðis.

María: Segðu.

Heiður: Sömuleiðis.

Jónína: Þetta er gömul saga, en samt ný.  Að konur eru ekki metnar úr frá málefnum heldur útliti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 13:58

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hver hefur staðið vaktina betur en hún í Umhverfisráðuneytinu?

Nú er mál að standa þétt saman því andstæðingar samstarfs ríkisstjórnarinnar í Sjálfstæðisflokknum eru á fullu að draga hana til ábyrgðar fyrir samstarfsleysi af því hún er mep sjálfstæðar skóðanir í stóriðjumálunum!

Edda Agnarsdóttir, 19.6.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband