Leita í fréttum mbl.is

Hver fær grjótið?

 img-thing

Þegar ég 28 ára gömul gekk með yngsta barnið mitt, hana Söru Hrund, þá bjó ég í Svíþjóð, Gautaborg nánar tiltekið.

Og einn eftirmiðdag korteri fyrir fæðingu, fór litla fjölskyldan, þ.e. mamman, pabbinn, Helga og Maysa í lítinn leiðangur í verslunarmiðstöð. 

Þetta var ferð sem er nauðsynlega í annála færandi. 

Við vorum að kaupa hljómflutningstæki.  Og til að gera langa sögu stutta þá tók það óratíma fyrir karlinn og afgreiðslumanninn að ræða hljómflutningstæki, sögu þeirra, þróun, merki og annað skemmtilegt og á meðan var ég beðin um að fara á "Systembolaget" og kaupa kippu af bjór fyrir minn löglega eiginmann. 

Ég og Frumburður sveifluðum okkur léttilega í ríkið, þ.e. miðað við að ég var nærri því búin að fæða.

Og ég bað um viðkomandi bjór.

Og afgreiðslumaðurinn bað mig um skilríki.

Þetta var áður en ég hafði áhyggjur af aldrinum og langaði til að vera fullorðin og hann særði mig inn að beini. 

Ég sagðist vera 28 ára, hann hlyti að vera að grínast í mér.

Og Frumburður sagði, á sinni syngjandi gautaborgísku; Min mamma är vuxen för länge sedan!! Og henni var stórlega misboðið.

En afgreiðslumaðurinn gaf sig ekki og ég varð að ná í bjóráhugamanninn sem ég var gift og láta hann díla um sitt fljótandi brauð sjálfan.

Og þess vegna veit ég að hún Claire Birchell á Englandi, sem er 25 og fékk ekki að kaupa Jack Daniel´s grillsósu vegna þess að hún var ekki með skilríki (2% alkahól), á einhvern tímann eftir að gleðjast yfir þessum atburði.

Sko, þegar hún er komin með aldurinn á heilann eins og sumar KONA sem ég þekki afskaplega náið.W00t

stones-petal%20pink

En Femínistafélagið ætlar að afhenda bleiku steinanna niður á Austurvelli kl. 11.

Hver fær grjótið?  Ég bíð spennt.

Kem að vörmu.


mbl.is Of ung til að kaupa grillsósu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þetta er nú ekkert! Ég var beðinn um að framvísa skilríkjum 32ja ára gamall á veitingahúsi í Bandaríkjunum.

En ég frábið mér alla steina.

Þorsteinn Briem, 19.6.2008 kl. 11:19

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mér finst þetta með Jack Daniel´s grillsósuna alveg frábært.  Hún er í miklu uppáhaldi hér á þessu heimili enda versla ég stundum í Tesco.  Vissi reyndar að  þetta var Whisky sósa en 2% hehehhe...næst fer ég á grillsósufyllerí ekki spurning.

Ía Jóhannsdóttir, 19.6.2008 kl. 11:54

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Min mamma är vuxen för länge sedan!! Snilld!

Ég var síðast spurð um skilríki þrítug á skemmtistað. Ég held í þá veiku von að það gerist aftur bráðlega

Laufey Ólafsdóttir, 19.6.2008 kl. 12:18

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey:  Hahaha, eftir því sem tíminn líður því glaðari verðum við þegar svona "mistök" eiga sér stað.

Ía: Góða skemmtun á sósufylleríinu.  Það er ábyggilega skemmtilegt að "borða" afengið.

Hallgerður: Til hamingju.  Hahaha.

Steini: Þú endar í grjótinu fyrir þetta miðaldaviðhorf.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 12:32

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég get nú verið femínisti þó ég vlji ekki steina.

Þorsteinn Briem, 19.6.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, Steini þetta kallar á skemmtilegan orðaleik. Ég vil steina

Og auðvitað var ég bara að grínast Steini minn. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 13:06

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Skórinn er dásamlegur - það er nóg fyrir mig að hann er í geymslu hjá þér!

 það eru margir sem fá grjótið!

Edda Agnarsdóttir, 19.6.2008 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband