Leita í fréttum mbl.is

Skoðanakönnun um áhorf í sjónvarpi

Ég var að lesa á visi.is að ný skoðanakönnun um áhorf í sjónvarpi væri að líta dagsins ljós og að RÚV bæri höfuð og herðar yfir hinar stöðvarnar í áhorfi.  Til hamingju með það RÚV.  Annars horfi ég svo lítið á sjónvarp, hætt að nenna Kiljunni og Silfrinu nema á netinu, þar sem ég get spólað yfir það sem er leiðinlegt.  Þetta er kannski sinnisstemmingin hjá mér og hefur ekkert með gæði þáttanna að gera. Tek  þetta til baka, það er alltaf verið að tala við sama uppskrúfaða liðið.  Ég missi ekki af Fréttum og Kastljósi, né heldur Fréttum á Stöð 2, horfi á Loga, amk. með öðru og svona.

Allar stöðvarnar eru ánægðar með sína útkomu.  Eins og vera ber.  Könnunin er gerð með einhverju tæki sem mér skilst að fólk hafi hangandi á sér meðan það horfir.  Jösses.

En það sem ég get ekki skilið er að Laugardagslögin skuli vera vinsælasti þátturinn.  Mér finnst hann svo leiðinlegur að ég myndi frelar horfa á flatkökugerð undir rótum trjáa í Hallormsstaðarskógi að vetralagi, heldur en það fyrirbæri.  Reyndar bíð ég eftir að hann komi á netið og horfi á Jón Gnarr og Sigurjón.  En ekki segja neinum, það hangir ekkert um hálsinn á mér.

 Skár 1 hvað? Horfi ekki einu sinni á House, hvað þá heldur annað.  Læt mér nægja þessar tvær stærstu, en Sjónvarpið er að gera góða hluti ásamt ömurlegum í bland, sama gildir um Stöð 2.

 

Svo eru þær báðar hundleiðinlegar annars slagið en sem betur fer yfirleitt ekki á sama tíma.

Leiðinlegt með hann Egil, Eftir að ég fór að lesa bloggið hans þá stendur það mér fyrir þrifum að horfa á þáttinn hans.

En lífið er bölvuð tík.

Og svo er leiðinlegt með hana Jóhönnu ef hún sér sig knúna til að hætta vegna umfjöllunar um pabba sinn.  Þar hafið þið þopsmenningu smálandsins í hnotskurn.

Dem, dem, dem.

Annars bara góð.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Vonandi verður Jóhanna áfram, hún er snillingur.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 15.2.2008 kl. 09:16

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta segir á visir.is: Þrátt fyrir staðhæfingar þess eðlis að Jóhanna Vilhjálmsdóttir sé hætt í Kastljósi hefur Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri þáttarins, ekki gefið upp alla von um að fá hana til baka.

"Það stóð til að hún myndi hætta en ég er að vinna í því að finna nýja möguleika þannig að hún geti sameinað vinnuna og fjölskylduna," segir Þórhallur og bendir á að vinna í fjölmiðlum sé ekki alltaf sú fjölskylduvænasta.

Jóhanna sagði sjálf í samtali við Vísi í dag að það væri engin launung að hún vildi eyða meiri tíma með ungum syni sínum.

Markús frá Djúpalæk, 15.2.2008 kl. 09:21

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er svo greinilegt að ekkert tæki var hengt á mig þegar þessar mælingar voru gerðar! Laugardagslögin horfi ég aldrei á, Spaugstofuna hef ég séð ca einu sinni síðasta hálfa árið, Gettu betur fer líka alltaf framhjá mér, ég hef ekki hugmynd um hvað The Librarian eða The Breakup er, hvað þá Brothers and Sisters, Taggart þekki ég en missi oftast af.....

Svei mér þá, ég veit ekki á hvað ég glápi eiginlega! Reyndar stóð ég mig að því um daginn að gleyma að borga Stöð 2 og ég hef bara ekki haft rænu á að laga það. Sakna þess ekkert. Er farin að sitja æ oftar með bók á kvöldin, án þess að kveikja á sjónvarpi.

Þetta eru áreiðanlega ellimerki hin mestu. En ég er samt ákaflega veik fyrir góðum sakamálamyndum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.2.2008 kl. 09:50

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eftir að loftnetið fauk, hér um árið..... þá sé ég mjög takmarkað á sjónvarp, horfi enn minna og sakna þess svo lítið að það er ekki merkjanlegt í könnunum

Hrönn Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 10:25

5 Smámynd: Kolgrima

Ég er sammála þér, Laugardagslögin er svo leiðinlegur þáttur að það er blátt áfram sársaukafullt. Hvernig er það, er ekki að verða búið að velja þetta %$## júróvisjónlag?

Kolgrima, 15.2.2008 kl. 10:38

6 Smámynd: M

Ég er sjónvarpsglápari og finnst eins og það flokkist sem  niðrandi athöfn hjá fólki, fer hálf hjá mér að segjast horfa á kassann.  Margt þar gott og líka slæmt og glápi ekki á allt. Alveg sammála þér með Laugardagslögin, útþynntur þáttur.  En Jóhönnu fíla ég ekki en það er bara mín skoðun og má hún alveg vera heimavinnandi fyrir mér. 

Mín í föstudagsstuði

M, 15.2.2008 kl. 10:42

7 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Sjónvarp er ágætt, en við megum ekki gleyma að lifa lífinu bara vegna þess að það er eitthvað í því.

Markús frá Djúpalæk, 15.2.2008 kl. 10:54

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég horfi álíka lítið á sjónvarp þessa dagana.....hef samt horft á lördagslögin með öðru því að mín yngsta er forfallinn júró aðdáándi og þetta er hennar uppáhalds í viku hverri! Annars er þetta orðið frekar útþynnt og mér er eiginlega hálfpartinn sama hvaða lag fer út í þessi keppni vegna þess að við erum svo sem ekki að fara að slá í gegn frekar en fyrri daginn...!

Ljósi punkturinn við þennan þátt eru einmitt Jón Gnarr og Sigurjón og mér finnst hann umferðar Einar snillingur !

Annars er bara best að lesa bók og blogg frekar en að glápa á sjónvarp......!

Sunna Dóra Möller, 15.2.2008 kl. 10:57

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Horfi frekar lítið á sjónvarp, sest þó niður ef ég er stödd fyrir framan imbann og það kemur einhver þáttur sem er áhugaverður, þá yfirleitt breskir þættir, eins og með þorpslæknirinn feimna, veit ekki hvað hann heitir.

Laugardagslögin finnst mér líka frekar leiðinlegur þáttur, og lögin þó skárri en Gnarrinn og Sigurjón, er búin að fá nett ofnæmi fyrir Jóni Gnarr  Hvefur ekkert með hæfileika hans að gera.  Fékk svipað ofnæmi fyrir Ladda á sínum tíma og hjónakornunum Bibbu á Brávallagötu og kaffibrúsakarlinum.  Það má ekki ofnota skemmtikrafta í okkar litla samfélagi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 11:19

10 Smámynd: Garún

Við tengdum loftnetið í fyrradag í fyrsta sinn í tvo mánuði. Komst aðþví að við náum bara Omega og Rúv. Horfi stundum á Omega og verð svo áhrifagjörn að ég tala eins og predikari næstu klukkutímana (öskra og sveifla höndunum útum allt). Rúv horfi ég bara á þegar það eru fréttir og Kastljós. Fannst einu sinni plebbalegt að horga á kastljós, en núna finnst mér það nauðsynlegt, svona jafnnauðsynlegt og það er að taka þátt í gallup könnunum!

Garún, 15.2.2008 kl. 12:06

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

KLOVN er uppáhaldið mitt þessa dagana og svo finnst mér yfirleitt danskt efni dejligt! ... Fréttir við og við ef ég man og hef tíma, en tja.. lítið annað.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.2.2008 kl. 12:18

12 Smámynd: Brynja skordal

Horfi alltaf á allar fréttir og kastljós og einstaka þætti erum með svo margar sjónvarpsstöðvar að dagurinn myndi ekki endast þó ég reyndi að fylgjast með þessu öllu svo ég læt aðra um það á heimilinu geri eitthvað allt annað en að glápa endalaust á imbann en reyni samt að horfa á flest íslenskt efni sem er misgott að sjálfsögðu ekki hægt að gera öllum til hæfis í þessum efnum en hafðu góða helgi

Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 13:44

13 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég verð að viðurkenna að ég horfi talsvert á sjónvarp. Hlusta og horfi á alla fréttatíma og oftast Kastljósið. Og Brothers and sisters, Aðþrengdar, Klovn (þetta er reyndar allt á fimmtudögum) Við erum ekki með stöð tvö og ég sakna þess ekki.

Með hana Jóhannu Vilhjálms þá hefur örugglega verið mjög erfitt fyrir hana að vera í vinnunni á meðan ósköpin gengu á. Það er náttúrulega ekki líft fyrir hana inn á starfstöð þáttarins því þar fara fram miklar umræður um þáttinn og hvernig á málum á að taka og það getur ekki verið gaman að vera þar þegar öll spjót standa á pabba þínum. Að sama skapi er ekki heldur hægt að ræða þetta ekki af því að pabbi hennar á hlut að máli.

Jóhanna er mjög góð og ég vona svo sannarlega að hún komin aftur. Að sjálfsögðu átti að gefa henni frí meðan ósköpin gengu yfir.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 15.2.2008 kl. 13:51

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég horfi ekki mikið á kassann, en hann er samt oftast í gangi á kvöldin.  Finnst gott að heyra svona mal í fjarska.  Á mér ekki neitt uppáhalds núna, nema þá fréttir, Kastljós og Loga.  Eigðu góða helgi Jenný mín.   Wink 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 15:13

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst sko ekkert að því að horfa á sjónvarp.  Mér finnst bara of lítið um heimildarmyndir, fréttatengdaþætti og góðar bíómyndir.  Nenni ekki að hanga yfir hollywoddefni.  Hundleiðinlegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2008 kl. 15:29

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Garún; Þú er lethal.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.2.2008 kl. 15:30

17 Smámynd: Tiger

  

Tiger, 15.2.2008 kl. 15:35

18 Smámynd: Tiger

Úpsss... með þessum syfjaða gaur átti að standa PAZZ. Hef ekkert álit á skoðanakönnunum og finnst þær ekki gera neitt annað en að hafa áhrif á framvindu hinna ýmsu málefna - án þess að sýna mikið meira en lítið úrtak, úrtak sem að mínu mati er á engan veg það sem hægt er að kalla "spegill þjóðarinnnar"...

P.s. i dislike Miss Vilhjálmsdóttir and think she´s a arrogant and rude TV bitch... esxúse mæ langvitch Frú Milljón.

Tiger, 15.2.2008 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband