Leita í fréttum mbl.is

Sukkjöfnun og perrafegurðarsamkeppni

 

Ég vaknaði í morgun með matarógeð. 

Renndi mér í huganum yfir inntöku á mat og fylgihlutum yfir jóladagana og varð óglatt.

Ég er sko ekki eins og hann Þórbergur sem elskaði að gera það en fékk ógeð á kynlífi um leið og hann fékk það.

Sko, róleg, varðandi mat, er ekki að ræða mitt kynlíf hérna, hef gert það sinnum þrír eins og börnin mín sanna svo fallega.Halo

Engar ríðingar án framleiðsluhugsunar hér, þið saurugu lesendur. (Þetta er heilagleikajöfnun, búin að vera svo væmin yfir jólin).

En án gamans þá er þetta beinlinis stórhættulegt að borða svona mikið af óhollum mat, fleiri daga í röð og ég er ekki sú versta, enda nokkuð fljót að verða södd.

En það er eins og ég sé ólétt af steini, algjörum grjóthnullungi.

Annars bara góð.  Ég og bandið ætlum að borða fjallagrös fram á gamló.

Það er skemmst frá því að segja, að þrátt fyrir lélegar prógnósur frá umhverfinu eigum við bandi 10 ára brúðkaupsafmæli í dag.  Takk og takk og allt það.  Sleppum hamingjuóskum á prenti, því ég hef fengið svo margar fallegar undanfarið.  Mig langar í umræður um mat, óheilbrigt líferni (með því auðvitað) og svo langar mig að koma upp heilafegurðarsamkeppni þar sem verðlaunað verður fyrir kvenfyrirlitningu og subbulegar hugsanir sem myndbirtast í bloggfærslum og athugasemdakerfum. 

Ég er með tilnefningu.  Alkóatalsmanninn rauðhærða sem hefur stofnað til fegurðarsamkeppni feminista inni á síðunni sinni og allar subburnar í kommnetakerfinu eru tilnefndir líka.

Komið endilega með tilnefningar.  Af nógu er að taka.  Ótrúlegustu menn hafa kynt undir sóðalegri umræðu um feminista og feminisma á árinu.  Egill Helga lagði t.d. sitt af mörkum.  Margir kvenhatarar sáu hann sem leiðtoga sinn í greininni, eins og sjá má í athugasemdum á blogginu hans.  Reyndar var Agli alls ekki gefið um það, þannig að honum er fyrirgefið.

Úrslit verða tilkynnt á gamló.  Verðlaunin eru ferð til Kolbeinseyjar, vetrarlangt.

Annars er þetta blogg um sukkjöfnun í mat.

Ég er ÖLL komin aftur, ég verð aftur góð og blíð þegar gamló gengur í garð.  Þangað til ætla ég að rífa kjaft.

Ég elska ykkur öll, bloggvinir og aðrir gestir.

En nú er ekkert falalalala í dag, það verður tekið á morgun.

Súmítúðedogskikkmíandbítmíækenteikitt!

Úje.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Sukkjöfnun, hmmm af hverju bara að einskorða hana við mat? Hvað með innkaupajöfnun eftir jólaflóðið. Svefnjöfnun eftir marga frídaga í röð.

Ingi Geir Hreinsson, 27.12.2007 kl. 11:25

2 identicon

Takk fyrir jólakveðjuna hjá mér og hlýjar kveðjur til þín og þinna héðan frá Akureyri. Vona bara að fjallagrösin smakkist bærilega ... hjá mér heldur sukkið áfram, þar sem eldað verður lasagna í kvöld ...já, þvílíkur ólifnaður á manni þessa dagana.

En gleðilega hátíð, elsku Jenný. Hafið það gott það sem eftir lifir árs, og takk fyrir skemmtileg kynni, sem vonandi vara áfram næstu ár!  

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 11:27

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er ekki komin að hinum jöfnununum Ingi Geir.  Rólegur, vér gerum ekki allt í einu hér við hirðina

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 11:27

4 Smámynd: krossgata

Gleðilega hátíð.  Auðvitað er maður búin að eta á sig gat, en mér hefur mistekist algerlega að éta á mig óværu, sem auðvitað hefði verið sérlega smellið með tilliti til aukakílóa.  Nei, nei, ég verð bara þrifalegri og þrifalegri. 

krossgata, 27.12.2007 kl. 11:35

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha éta fjallagrös fram að gamló  Einhverntímann hlæ ég yfir mig að lesa bloggið þitt.  

En til hamingju með brúðkaupsafmælið elskuleg.  Og bara til hamingju með allt lífið.  Það er yndislegt að lesa færslurnar þínar og sjá hvað þú hefur í raun og veru komið langan veg framávið.  Það er örugglega gott fyrir svo marga að fylgjast með þér og lesa.   Sérstaklega þeir sem þekkja til vandamálsins, af eigin raun eða ættingja.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2007 kl. 11:45

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fjallagrasapaté, fjallagrasasúpa, fjallagrös "de le Chéf Enorme", fölsk fjallagrös, fjallagrasagúllas, innbökuð fjallagrös....... ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.12.2007 kl. 12:27

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég ætla sko að óska þér og bandinu til hamingju með daginn, yndislegt að halda upp á svona daga.  Ég hef lesið svo lítið frá "karlrembum" að ég get bara ekki tilnefnt neinn.  Búðu til ysting úr grösunum, ostarnir eru æðislegir. 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.12.2007 kl. 12:43

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

til hamingju með daginn þið gömlu

Skemmtileg tilviljun þetta með subbu-tilnefningar.. ætlaði einmitt að setja inn færslu um kommentakerfið hjá Gerði Önnudóttur. Í gær las ég færslu hjá því fyrirbrigði og varð óglatt af því að lesa kommentin þar. Ég tilnefni því kommentakerfið hjá skvísunni.

Jóna Á. Gísladóttir, 27.12.2007 kl. 13:07

9 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha...æj úpps. Ég held að ég kjósi ekki í þessu vali þarna, tek ekki sjénsinn á þessu vetrarfríi á Kolbeinsey. Ég er hinsvegar svo heppin að ganga ekki með stórt steinbarn eftir þessi jól...þegar maður er á spani að afhenda öðrum mat út og suður þá hefur það áhrif á lystina a.m.k. hjá mér.

Til lykke með brúðkaupsafmælið..sendi klús á kallinn þinn.

Ragnheiður , 27.12.2007 kl. 13:26

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

gleymdi að segja: meilí meil

Jóna Á. Gísladóttir, 27.12.2007 kl. 13:33

11 identicon

Til hamingju með brúðkaupsafmælið

En já maður er sko búin að borða yfir sig af mat, smákökum og nammi þessi jólin.  Ætli það verði ekki bara Danski kúrinn eftir þrettándann bara

Bryndís R (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 13:34

12 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Ég er að borða hafragraut og það er svo gott, umm ahh dísös

Varðandi subbutilnefningar þá eru feminísku jólakortin ofarlega á blaði, líka Gerður Önnudóttir enda virðast bæði fyrirbærin koma úr sama ranni. Sem einlægur jafnréttissinni þá vona ég að við gleymum ekki að bera virðingu hvert fyrir öðru og standa saman í baráttunni fyrir jafnrétti. Það vinnst ekkert með því að tala niður til karlmanna á þann hátt sem við konur myndum aldrei vilja láta tala til okkar. Svona ruddaskapur er bara skemmdarverk.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 27.12.2007 kl. 13:59

13 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég ákvað að fara ekki inn á bloggið eftir að ég hafði lesið fyrstu tvö kommentin. Það fór um mig svo mikill aumingja hrollur að ég var lengi að jafna mig. Þvílíkir karlmenn! Höfundurinn fer þar fremstur í flokki.....´

Þeim er nú bara vorkunn þessum köllum með litlu typpin.....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 27.12.2007 kl. 14:01

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ein aðferðin til að þagga niður í fólki er að reyna að gera grín að því. Ég skil ekki hvers vegna svona margir karlmenn eru hræddir við femínista, svo hræddir að þeir reyna með öllum ráðum að þagga niður í þeim/okkur. Vilja þeir ekki að dætur/mæður/eiginkonur þeirra séu metnar að verðleikum og fái sömu tækifæri og karlmenn? Mér finnst málflutningur femínistanna rifinn illilega úr samhengi og hamast er við að misskilja allt. Þetta er bara þöggun sem vonandi misheppnast og hefur ekki áhrif. Knús í bæinn, elskan.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.12.2007 kl. 14:02

15 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Til lukku með daginn !

Ég hef borðað fullkomlega yfir mig af Hreindýrakjöti, Kalkúnakjöti, Rjúpum. sælgæti og kökum! Nú er farið í aðhald fram á gamlárs og ég er búin að hlaupa 4.8 km í morgun....jei fyrir mér !

Nú er sannarlega sukkjöfnun í gangi...en það er bara svo gott að borða svona góðan mat...ég verð alltaf smá döpur þegar fisk- og grjónagrautsvertíðin gengur í garð í janúar..! En það má þó hugsa til þess að páskar eru snemma í ár hahahaha...stutt í næstu hátíð í bæ !

tjusss....

Sunna Dóra Möller, 27.12.2007 kl. 14:40

16 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Mitt komment á við um keppnina hjá ÓV

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 27.12.2007 kl. 14:42

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með brúðkaupsafmælið É ætla að sleppa keppninni, mig langar ekki baun til að vera heilan vetur í Kolbeinsey

Jónína Dúadóttir, 27.12.2007 kl. 15:26

18 identicon

Til hamingju með daginn kona góð. Var að snæða hafragraut með rúsínum og sojamjólk útá í hádegismat.Nói-Síríus er búinn.Bara kál og hafrar hér fram á seinnipart á mánudag.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 15:36

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Er ekki hægt að breyta verðlaununum, t.d. að vera að sumarlangt á Bahamaeyjum ?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.12.2007 kl. 15:39

20 Smámynd: halkatla

til hamingju með það Jenný, finnst þér annars voða gaman að safna öllu skemmtilegu saman í eina og sömu vikuna ha?

talandi um mat þá þarf nú ekki mikið til að ég fyllist ógeði á matarvenjum mínum þessa dagana, þær eru ekki par fagrar, og aukakílóin hlaða sér kát og glöð á minn annars fagra líkama... en ég meina eitthvað verður maður að gefa eftir, ég hugsa sko aldrei um kynlíf en mjög mikið um pizzur  

halkatla, 27.12.2007 kl. 15:40

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko stlepur, HALLÓ, öll ljós kveikt og enginn heima?  Þið fáið ekki verðlaunin.  Fegurðarkóngurinn fær þau og Kolbeinsey smellpassar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 17:12

22 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég bara verð að óska þér og bandinu til hamingju með daginn. Það er alltaf eitthvað fallegt við brúðkaupsafmæli - a.m.k. ef fólk er enn hamingjusamt saman þegar þessir dagar koma.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 27.12.2007 kl. 20:47

23 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Mér sýndist sukkjöfnunarmerkið þitt fyrst vera ný útgáfa af lógói fyrir Framsóknarflokkinn. Til hamingju með brúðkaupsafmælið  

PS. Mjög góður leiðari í Fréttablaðinu í dag um karlmennsku.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 27.12.2007 kl. 21:16

24 Smámynd: Steingrímur Helgason

Alltaf er ég of seinn til...

Sett mitt skófar á flestar eyjar hérlendis nema þessa, & svo er allt búið þegar ég ætla að fá að vera með.

 'Zwindl...'

Klaga í júnó ...

Steingrímur Helgason, 27.12.2007 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.