Leita í fréttum mbl.is

Ýtt undir mýtuna um klikkaðar konur

 

Skemmtilegt, eða hitt þó heldur, þegar þegar maður lifir klisjuna um konur, eins og í viðtengdri frétt hér.  Þrjú yfirlið takk fyrir á jafnmörgum konum á útsölu í Nexst í Birmingham.  Hm... Ein afgreiðslustúlka og tvær kúnnur.

Það er auðvitað engin lýgi að fólk er gjarnan tryllt á útsölum, en fyrr má nú aleilis fyrr vera.  Það mætti ætla að það væri mjólkurskortur í landinu og börn í sveltihættu.

Ég nenni nú yfirleitt ekki á útsölur.  Finnst svo leiðinlegt að láta rífa flíkurnar úr höndunum á mér.  Það var helst í gömlu Evu, þar sem maður fékk að fara á generalprufuna daginn fyrir opnun að ég læddi mér til að versla. 

Það er ekkert eins frústrerandi og að standa á rými á stærð við frímerki og færast áfram með straumnum og ná hvergi fótfestu.  Sautjándi júní er hátíð miðað við útsölur á fyrsta degi.

Og hvað ber fólk úr býtum fyrir að standa í röð tímunum saman, rífast um einhverja fatagarma og komast svo að því að viðkomandi flík er annaðhvort of lítil eða stór þegar heim er komið?  Jú ergelsi og ves.

Mitt ráð til kynsystra minna er að bíða fallega og fara þegar farið er að hægjast um, eða hreinlega endurskoða fataþörfia. 

Vantar okkur svona rosalega föt, allt í einu? 

Þetta minnir mig á vinkonu sem vantaði alveg svakalega styttu, einn daginn, þannig að hún varð að fara og kaupa hana.

Bítsmí.

Úje.


mbl.is Þrjár konur féllu í yfirlið á útsölu Next
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Örugglega fegurðarfeministar.

Þröstur Unnar, 27.12.2007 kl. 16:26

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég fer bara aldrei á útsölur, með því spara ég nefnilega meiri peninga en ef ég færi 

Jónína Dúadóttir, 27.12.2007 kl. 16:48

3 identicon

Mér hundleiðast útsölur og búðarráp yfirleitt.Mínir larfar eru þó flestir keyptir á útsölum. Því að borga 10000kr fyrir buxur í des sem þú færð á 5000 í jan. Hins vegar hleyp ég alltaf út þar sem örtröðin er mikil. En ég hef oft orðið vör við það erlendis að ef þú ert með fleiri en 1 poka sjá allirað þú ert útlendingur. Ég gleymi aldrei þegar ég skoðaði barnaföt í Benetton verslun í Baltimore fyrir 14 árum.Afgreiðslukona kom til mín og sagði mér hvað þetta kostaði allt saman á Laugaveginum!!!!!

Hólmdís Hjartardóttir (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 17:20

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mýta??

Jón Steinar Ragnarsson, 27.12.2007 kl. 17:33

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Steinar: Já mýta, eitthvað ósáttur við þá fullyrðingu????????????????

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 17:36

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Aldrei fer ég á útsölur, nenni ekki svona klikkun!!

Huld S. Ringsted, 27.12.2007 kl. 17:37

7 Smámynd: Viðar Eggertsson

Það var alveg óþarfi að birta þessa frétt, finnst mér. Því eins og kerlingin saggði: "Oft má satt kjurt liggja" Sei sei já

Viðar Eggertsson, 27.12.2007 kl. 17:37

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Meeeoww! Maður spurði nú bara svona.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.12.2007 kl. 17:42

9 Smámynd: Signý

Ég hef aldrei farið á útsölur á ævinni... ég er líka svo snobbuð, segir fjölskyldan mín. En ég meina hvað eru útsölur annað en lagersala/rýmingarsala fyrir nýjar vörur? ég fer sko þegar nýju vörurnar koma... nýjasta tískan sko. Eða nei ég lýg því, það er ekki útaf nýju tískunni... aðallega sú staðreynd að ég veit að ég passa ekki í neitt sem er á útsölum, þar sem mínar stærðir virðast bara ekki finnast í svona afgöngum... Það er fötlun að vera hávaxin kvenmaður

Eigðu góð áramót!... þeas ef ég næ ekki að rífa kjaft hérna áður en það skellur á...

Friður!

Signý, 27.12.2007 kl. 17:49

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Signý mín, er í stríðsskapi, finn mér eitthvað til svo þú getir rifið kjaft með mér áður en árið er liðið.  Muahaha

Jón Steinar: Ég held að ég sé grjótharður töffari í dag

Viðar: Sannleikurinn skal fram, ávallt og eilíflega.

Huld: Þú verður að prufa, amk einu sinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 17:57

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég vann einu sinni í kvenfataverslun og man sérstaklega vel eftir fyrirbærinu útsölufólki. Sjálf versla ég mikið á útsölum en ég reyni að fara frekar í útsölulok. Þá er allt eins ódýrt og það getur orðið úrvalið er minna þannig að maður kaupir síður óþarfa og það sem best er, brjálaða liðið er víðsfjarri

...annars dettur manni nú helst í hug að þessar blessuðu konur sem féllu í yfirlið hafi verið að svelta sig til að passa í fleiri númer Púff!

Laufey Ólafsdóttir, 27.12.2007 kl. 18:21

12 Smámynd: Viðar Eggertsson

EN Jenný Anna, elskan mííín!

Svona sannleikur ætti bara ekki að vera á vetur setjandi, segi ég nú bara, þú hlýtur að sjá að hann ýtir bara undir "mýtuna" um klikkaðar konur!!!

Jón Valur almáttugur hjálpi þér manneskja!

Þú hlýtur að sjá það sjálf manneskja, eða er þér ekki sjálfrátt, elskan mín?

Nei, þá er sko betra að þegja yfir sannleikanum.

Og þessi Jón Steinar prakkari ætti barasta að skammast sín að setja spurningamerki við "mýta"! Já skamm prakkarinn þinn, sem getur ekki einu sinni látið vera að þykjast og þykjast. Og gengur svo langt að þykjast vera vesalings einfarinn hann Þórmundur!

En þú Jenný Anna mín, þú hvæstir nú sko aldeilis á hann aumingjann: "Jón Steinar: Já mýta, eitthvað ósáttur við þá fullyrðingu????????????????"

Haha... Mikið var það flott hjá þér! Ef ég vissi ekki betur þá hefði þetta svar þitt sko sannað fyrir mér í eitt skiptið fyrir öll að þú værir höfundur og skapari (fyrirgefðu kk-orðin Jenny mín) hennar "Gerðar Önnudóttur!" Þú hefur sko skapið og húmorinn til þess og ekki vantar í þig gallharðan feministan! (fyrirgefðu aftur Jenny mín kk-orðin)

Hvílík kona og svona mýtulaus, svo ég tali nú bara hreint út og fyrir mig sjálfan.

Með eilífri ást, þinn

Viðar Eggertsson, 27.12.2007 kl. 18:22

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgerður: Góð.

Viðar: Ástin mín og krúttlega dúllurassgatið mit og sæti, flekklausi og umburðarlyndi, mannkærleiksfrömuður og húmoristinn hennar Jenný sinnar; geturðu ekki tekið eina skák, lesið Bændablaðið eða eitthvað?

Laufey: Þú ert svo praktísk.  Ekki alveg að marka

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 19:33

14 Smámynd: Signý

Tjah, jú það eru útsölur í öllum búðum, en það er ekki allt árið um kring því ef svo væri þá þyrfti ég líklega að ganga um eins og Michael jackson í buxum sem næðu rétt niður á ökkla, það er ekki minn stíll

hefur ekkert með snobb að gera... Ég held að ég verði að fara skrifa handbók með mér svo fólk hætti að taka mig svona ofsalega bókstaflega Ég er als ekki snobbuð og ef þú hefðir lesið alveg til enda það sem ég var að segja þá hefðiru væntanlega náð innihaldinu. 

Ég þekki annars alveg helling af fólki, t.d bara fjölskylduna mína þar sem allir kallarnir (bræður og faðir) borða grænar orabaunir úr dós með öllu nánast... en ég er ekki hrifin af þeim samt.. enda gikkur

ohhh mig langar svo að fara rífast... nennir einhver að koma og rífast við mig?

Friður á jörð!  

Signý, 27.12.2007 kl. 19:38

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég fer yfirleitt aldrei á útsölur, en man eftir að hafa farið á slíkar hér í den, þegar ég var í Glasgow, og þar var sko farið í röð, og bara smá hópum hleypt inn í einu á því herrans ári 1965, og þeir hefðu betur tekið upp þann sið og haldið honum þarna í næstabæ.   Man meira að segja hvað ég keypti mér, þar var brúnn rússkins skokkur hnepptur og hálfsíður hin mætasta flík.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2007 kl. 19:38

16 identicon

Ég viðurkenni hér og nú að ég forðast útsölur eins og heitan eldinn. Þegar ég var stelpa var mamma verslunarstjóri í fataverslun. Lýsingarnar þegar hún lýsti framkomu fólksins sem hleypt var í hollum inn í búðina fyrsta útsöludaginn voru hrikalegar. Fólk slóst og reifst um flíkurnar og tróðst áfram í hálfgerðu brjálæði. Ég ákvað að taka aldrei þátt í svona athöfnum nokkurn tímann á lífsleiðinni. Hef staðið við það.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 19:38

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég seigi satt fer ekki á útsölur ég nenni því bara ekki.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.12.2007 kl. 19:39

18 Smámynd: Gísli Hjálmar

... er maður að missa af einhverju skemmtilegu hérna, ha?

Ég skilaði einni bók í dag og var stökk í biðröð í 30 mín.

Gísli Hjálmar , 27.12.2007 kl. 19:40

19 Smámynd: Halla Rut

Ég þoli ekki útsölur enda kaupir maður eitthvað sem er "out" en enginn vildi. GLATAÐ.

Halla Rut , 27.12.2007 kl. 20:31

20 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Eru konur sem bíða í röð eftir útsölu nokkuð klikkaðri en karlar sem bíða í röð eftir opnun enn einnar Elko/BT/Max/eitthvað rafmagnsvöruverslunar?

Ég hef aldrei beðið í röð eftir opnun á búð, hvorki Elko, Toys R Us eða neinnar annarrar verslunar og hef ekki hugsað mér að gera það í bráð. Hef slysast á stöku útsölur, en glætan að ég stæði í röð til að komast á eina slíka.

Svala Jónsdóttir, 27.12.2007 kl. 22:50

21 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mér fannst þessi færsla hreinlega árétta klisjuna um 'mig konuna' & 'svo þær hinar konurnar'.

Það er gott, þá er Jenný í stuði.

Enda þá framlengi ég bloggjólunum mínum á meðan...

Steingrímur Helgason, 27.12.2007 kl. 22:58

22 Smámynd: halkatla

humm, þetta er ástæðan fyrir því að ég versla bara í tiger, þar eru aldrei útsölur og ekkert stress

halkatla, 28.12.2007 kl. 00:34

23 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

...myndi nú ekki ganga svo langt að kalla þetta goðsögn.

Páll Geir Bjarnason, 28.12.2007 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband