Leita í fréttum mbl.is

Ég og RÚV....

 

..höfum átt í eldheitu ástarsambandi frá því kl. 19,00 í kvöld og þar til að seinni bíómyndinni lauk, fyrir fimm mínútum eða svo.  Svo eldheitt var á sambandið að það slitnaði ekki slefan á milli okkar.  Ég daðraði ekki einu sinni við Stöð 2, hegðaði mér eins og ungmey í festum sem hugsar bara um sinn heittelskaða.

Fréttir eru nauðsynlegar.  Ég horfði frá upphafi til enda.  Só?

Ég horfði á heimildarmyndina um Jón Pál.  Hló og grét eftir pöntun.  Ég sá þennan merkilega persónuleika í þætti á gamlársdag úti í Svíþjóð, 1983, og féll fyrir þessu krútti.  Síðan þá hefur hann átt ponsu pláss í hjartanu mínu, þrátt fyrir að ég sé algjörlega laus við áhuga á íþróttinni sem hann stundaði.  Það á reyndar við um flestar íþróttir, en hva, JP var frábær.  Mér fannst þeir nú verða ansi hástemmdir í lok myndarinnar, með "Hærra minn Guð til þín" og allt það.  Stundum á að kunna sér hóf.  Saga JP snertir mann, það þarf enga englakóra til að framkalla jarðarfararstemmingu og sorg, þær tilfinningar koma af sjálfu sér, þegar ungar manneskjur deyja langt um aldur fram.

Ég er búin að bíða lengi eftir að sjá kvikmyndina Börn.  Allir segja að hún sé betri en Foreldrar, sem ég er auðvitað heldur ekki búin að sjá.  Og nú þegar ég hef séð hana,  veit ekki hvað mér finnst.  Hún er grípandi þessi mynd en samt svo vandamála sænsk og ég hef séð grilljón svoleiðis myndir.  Uppskriftin var pottþétt.  Sorgmædd börn, móðir í basli, ábyrgðarlaus faðir og andstyggileg stjúpmóðir, yfirvofandi forræðisdeila, sjálfsmorðstilraun, geðræn vandamál, krabbamein, ofbeldi og Breiðholtið, svei mér þá.   Ætla mætti að ég myndi krullast upp, eftir að hafa fengið óverdós af vandamálamyndum, og þessi var meira að segja í svarthvítu, en ég horfði með áfergju.  Hvers vegna veit ég ekki.  Allt var svo fyrirsjáanlega bömmerað eitthvað.  Ég held að mér hafi fundist hún ágæt, eða þá að hún hafi verið vænlegri kostur en Harðskafi sem beið mín á stofuborðinu, en eins og þeir sem lesa bloggið mitt vita, þá er ég ekki mikið fyrir svakamálasögur.

Og svo kom Íslenski draumurinn!! Tammtaratamm.  Ég hef séð hana áður og ég elskaði hana og nú elska ég hana enn meir.  Hvað er orðið af þessum dásamlega leikara í aðalhlutverkinu?  Hann á nottla að vera í vinnu við að gera lífið bærilegt hjá fólki (í Breiðholtinu svarthvíta?).  Sjaldan sem ég ligg í hlátri yfir bíómyndum en þarna er íslenskur plebbismi fangaður svo gjörsamlega að ég krullast upp af gleði og aðdáun.

Svona leið nú þetta jólakvöld hjá mér.  Með konfekti (skammastín Jenný með sykursýki, líka á jólunum), sjónkanum, húsbandinu og milljón kertaljósum.

Lífið er bjútífúl.

Ég held ég sofni þokkalega ánægð, einkum og sér í lagi vegna þess að það er komið veður.

Verða að minnast á að þegar ég var að kíkja á nýjustu bloggin þá sá ég einn bloggnörðvera að blogga um feminista og Sóleyju Tómasdóttur og ladídadída.  Fara sumir aldrei í jólafrí?  Er ekki hægt að njóta jólanna fyrir argaþrasinu? Alveg er ég viss um að Sóley er að borða konfekt eða gera eitthvað skemmtilegt og þetta tuð snertir hana minna en ekki neitt.  Ekki frekar en það snertir mig.

Sumir kunna ekki að vera í jólaskapi.´

Meira var það ekki í augnóinu.

Ég og jólasveinninn höfum lokað deginum.

Falalalalalala

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já sæl og góðan dag, ég gleymdi bara alveg að horfa á sjónvarpið í gærkvöldi.... eins og reyndar flest kvöld Enda búin að sjá það sem boðið var uppá á Rúv.

Njóttu dagsins til hins ýtrasta

Jónína Dúadóttir, 27.12.2007 kl. 07:58

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góðan daginn elsku Hallgerður, nú er allt eins og það á að vera, þú á réttum stað í býtið.  Njóttu dagsins mín kæra.

Jónína: Það eru ár og dagar síðan ég hef legið svona yfir sjónvarpi.  Hjá mér er það næstum því heilbrigðismerki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 08:02

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

....næstum því heilbrigðismerki... góð

Jónína Dúadóttir, 27.12.2007 kl. 08:17

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jón Páll var frábær karakter og eftirtektarvert að allir sem töluðum um hann nefndu hvað hann hefði verið ljúfur  Synd og skömm að hann skyldi falla frá svona snemma. Maður sá samt á honum einhver merki þarna í viðtalinu.... vantaði neistann.

Ég gafst upp á Börnum. Aðeins of mikill vandamálapakki þar á ferð fyrir minn smekk. Hinsvegar er íslenski draumurinn alltaf góð og hrikalega góður í aðalhlutverkinu hann þarna maðurinn sem ég man ekki hvað heitir. Svo yndislega mikill lúser að maður gæti knúsað hann

lovjú

Hrönn Sigurðardóttir, 27.12.2007 kl. 08:57

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Jólaknús. Mín fór í frí, líka frá imbanum Undarlegt hvað þessir nerðir nenna endalaust að rausa um Sóleyju. Blablablablabla.... Horfi á þessar myndir í ellinni um leið og ég les allar þær bækur sem ég ætlaði að lesa.

En þú ert bestust. Líka á jólunum

Laufey Ólafsdóttir, 27.12.2007 kl. 10:18

6 identicon

Mér fannst myndin um Jón Pál alveg stórskemmtileg, en rétt hélt út að horfa á myndina Börn til enda. Hún er svo sannarlega alltof ,, sænsk ". Er þó virkilega vel leikin, en ég vona að íslendingar fari ekki að gera margar svona ,, sænskar " myndir í framtíðinni, því að þær geta verið svo niðurdrepandi.

Stefán (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 10:34

7 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Nákvæmlega sama sagan hér - við flatmöguðum í allt kvöld fyrr frama RÚV. Ég hafði reyndar séð bæði Börn og Íslenska drauminn en það gerði ekkert til. Ég var mjög hrifin bæði af myndinni um Jón Pál og eins Bræðrabyltu. Ég var með gesti bæði á aðfangadag og á jóladag og annar í jólum á akkúrat að vera svona. Ég las Arnald og glápti á imbann og til að toppa þetta þá  báðum við stelpurnar á bænum karlmanninn á heimilinu að koma heim með hamborgara og franskar sem við hesthúsuðum fyrir framan sjónvarpið. Getur það orðið sjoppulegra.......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 27.12.2007 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.