Leita í fréttum mbl.is

Við og græðgin

 

Á jólunum höfum við leyfi til að liggja á meltunni, éta á okkur óþrif, sofa úr okkur meðan lágmarksmelting og þarmabalett fer fram og svo byrjum við aftur.

Ég er frekar matgrönn undir venjulegum kringumstæðum.  Get t.d. aldrei lokið af disknum mínum á veitingahúsum.  Skammtarnir eru einfaldlega of stórir.  Og ég er ekki að tala um ameríska skammta, enda á ég ekki sögu um að hafa snætt á veitingahúsum í Ameríku, gamli komminn, en á vellinum í denn, borðaði ég 1/4  af því sem fram var borið.

Nú en hvað um það.

Svo koma jólin og þá umturnast ég eins og aðrir landsmenn og nágrannar okkar í kringum okkur, eins og Danir og Svíar.  Veit ekki með Finna og Norsarana, norskur matur hugnast mér ekki og ég get ekki ímyndað mér að þeir geti verið ýkja hrifnir af honum sjálfir.

Ég úða í mig forréttum, aðalréttum, desertum, tertum og ullabjökkum í samlede verker.  Rétt kem upp til að anda, áður en ég gref fésið á mér ofan í næsta fat.  Ég spyr alla sem ég tala við, náið út í hvað þeir eru með í matinn og eins og það sé ekki nóg þá spyr ég; en í gær og hvað ætlarðu að hafa á morgun, en á gamlaárs?

Maður er nottla bilaður úr græðgi.  En ég sé samt ekkert athugavert við að stöffa sig til vansa á jólunum.  Kommon, lífið er táradalur alla hina daga ársins.  Segi sonna.

Minnir mig á myndina sem ég sá í Háskólabíó (örugglega Fellini) sem hét Átveislan.  Einhver hópur af körlum söfnuðust saman í einhverjum kastala og úðuðu í sig mat, kúkuðu og ráku við og átu og átu og dóu svo í eigin saur.  Fyrirgefið, þetta er ekki jólalegt en myndin var svona.

En ég get glaðst yfir því að hafa í dag aðeins borðað eitt egg og eina ristaða brauðsneið með andapaté (kæfu, arg patékjaftæði).  Ég ætla að láta það nægja þangað til ég hendi mér á svínasteikina í kvöld.

Reykt kjöt er út fram að næstu jólum.  Fólk er að deyja eða veikjast alvarlega af hangikjöti og hamborgarahryggjum, bæði hér (ok ekki deyja kannski) og í Köben.

Svo eru snapsarnir hjá Danskinum auðvitað efni í heila færslu, en ég nenni því ekki, mér finnst áfengi leiðinlegt umræðuefni nema þegar ég skrifa um fjarveru þess úr mínu frábæra edrúlífi.

Og komasho allir með andlitið ofan í kjötkaltlana.

Úje og falalalalalala

 


mbl.is Átu yfir sig um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Þarmaballett!! Tíhí ... þúrt fyndin. Annars er ég, aldrei þessu vant, búin að vera ósköp pen í átinu. Hef vissulega borðað, en ekkert þannig að ég hafi staðið á blístri og ég get svo svarið að ég hef næstum ekkert verið að narta á milli mála. Það væri aldrei svo að maður grenntist um jólin? Það væri sko saga til Næstabæjar í Langtíburtistan. 

Hugarfluga, 26.12.2007 kl. 16:34

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þurrkaðu framan úr þér góða mín  Ég borða ekkert yfir mig um jólin, borða bara öðruvísi mat en venjulega, meira grænmeti og mandarínur í haugum Legg samt ekkert af, þyrfti líklega allt árið en ekki bara nokkra jóladaga til þess, ef mér dytti þá einhverntímann í hug að fara í megrun

Jónína Dúadóttir, 26.12.2007 kl. 16:51

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ofát er vont, samt gerir maður þetta ár eftir ár, reyndar hef ég aldrei borðað eins lítið og núna, er bara með einhverja leiðinda magapest sem var komin fyrir jól og er ekkert að yfirgefa mig í bráð. Vona að ég komist í lag fyrir gamlárs.  Kær kveðja á þig og þína.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.12.2007 kl. 17:16

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Gleðileg jól elskan.

Heiða Þórðar, 26.12.2007 kl. 22:28

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kalkúnn hér þrjá daga í röð ... fínasta líðan. Gaf hangikjötið mitt, eins og mér finnst hangikjöt gott. Ætla ekki að springa úr bjúg og slíkum fjára. Mikið held ég að veislan ykkar hafi verið dásamleg. Leitt að Þórbergsbókin var hundleiðinleg. Hef ekki lesið hana. Er að lesa um dularfullan jólabúðing eftir Agöthu Christie, sannarlega skemmtileg lesning. Jólaleg og alles. Knús í bæinn.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.12.2007 kl. 22:38

6 Smámynd: Karl Tómasson

Bestu jólakveðjur kæra bloggvinkona Jenný.

Ég óska þér og þínum alls hins besta á nýju ári, það hefur verið gaman að lesa skrif þín og finna í gegnum þau þá miklu hamingju sem árið sem er að lýða hefur gefið þér. Vegni þér og þínum alltaf sem best.

Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 26.12.2007 kl. 23:33

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Mér fannst fyndnast að það skuli hafa verið tekið fram í fréttinni að ekki hafi eins margir verið fluttir á sjúkrahús hér á landi og í Danmörku. Hvað eru þeir? 20 sinnum fleiri en við?

En bestu kveðjur í restarnar af matnum. Mmmmm!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 27.12.2007 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.