Leita í fréttum mbl.is

Ofbeldisfullur skíthæll!

OJ Simpson er ofbeldisfullur skíthæll án tillits til þess hvernig hann er á litinn.  Hann er að líkindum morðingi og hann er sannanlega ofbeldismaður, margsinnis kærður meira að segja. 

Þess vegna finnst mér merkilegt að kynþáttur skuli marka afstöðu fólks til sektar eða sakleysis mannsins.  Auðvitað er ég enginn sérfræðingur um bandarískt þjóðfélag, en þeir sem fylgdust með réttarhöldunum 1994 og 1995, eru flest allir jafn hissa á að hann skuli hafa sloppið þá.

Ég hef ekkert álit á ofbeldismönnum og mér er alveg sérstaklega í nöp við menn sem beita heimilisofbeldi.  Það litar kannski afstöðu mína, til nýjasta útspils OJ.

Ég veit hverju ég hefði svarað, hefði ég verið spurð.  Ég hefði sagt sekur og það án þess að hika.

Svona getur maður nú verið "litblindur".


mbl.is Kynþáttur markar afstöðu fólks til O.J. Simpson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Ég var í háskóla í Kanada þegar dómurinn var kveðinn upp yfir honum árið 1995. (Vááá, mar, 12 ár  og ég enn jafn ungur?) Ég man eftir sjokkinu hjá fólkinu þegar þetta kom í ljós og einnig eftir myndum af fagnaðarlátum blökkumanna í USA sem voru nánast obscene. "Jei, svartur maður komst upp með að drepa tvo hvíta, rahrahrah".

Ingi Geir Hreinsson, 28.9.2007 kl. 08:26

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Flest það svarta fólk sem ég hef heyrt til og þekki til, bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa ekki mikið álit á OJ Simpson og ég veit að hann hefur ekki stuðning annarra "svartra seleba" í Hollywood sem flest hafa fengið hundleið á málinu. 

Ég held að þessi könnun endurspegli frekar traust mismunandi kynþátta til réttarkerfisins en ekki beint til OJ Simpson. Málið hefur verið alger skrípaleikur frá upphafi til enda en slíkt er auðvitað daglegt brauð í USA.

Ég held að ef gaurinn var ekki andlega brenglaður fyrir þá er hann það örugglega núna

Laufey Ólafsdóttir, 28.9.2007 kl. 09:29

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey: Ég held að þetta sé nokkuð rétt hjá þér, þ.e. að þetta endurspegli traust (eða vantraust) á réttarkerfinu.

Ingi Geir og Arna, takk fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 10:10

4 identicon

Sekur  er gaurinn og ég er sammála Laufey

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband