Leita í fréttum mbl.is

Rauður bolur á morgun!!

1

Nú berast tölvupóstar eins og eldur í sinu, víða um heim, þar sem fólk er beðið að klæðast rauðum bolum á morgun, til að sýna stuðning við frelsisbaráttuna á Myanmar.  Níu manns hafa látist í mótmælunum undanfarna daga.

Ég hvet alla sem koma hér inn að lesa, að láta þetta berast og klæðast rauðu á morgun. 

Sýnum samstöðu.

Komasho.


mbl.is Fólk hvatt til að mæta í rauðum bolum á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég ætti nú ekki annað eftir. Ekki beint hlítt hérna á Skaganum núna.

Þröstur Unnar, 27.9.2007 kl. 21:41

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi Þröstur jákvæði þessa dagana, troddu jólasveinahúfu á hausinn á þér og vertu til friðs drengur

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 21:46

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Það væri miklu nær. Ne djók þetta er fínn málstaður, á bara ekki rauðan bol.

Þröstur Unnar, 27.9.2007 kl. 21:50

4 Smámynd: Þröstur Unnar

En á rauð leðurstígvél, dugar það?

Þröstur Unnar, 27.9.2007 kl. 21:51

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eitthvað rautt drengur, bindi eða eitthvað.  Komasho. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 21:57

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þröstur minn klæddu þig bara hlýlega og settu svo á þig eldrauðan varalit. Ég er handviss að það munu allir vita af hverju þú ert varalitaður á föstudegi með rauðu. Til að sýna samhug þinn drengur!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 22:04

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ekki spurning! Rauðan bol, rauða skó, rautt veski og rauðan varalit!! Fínt uppátæki

Heiða B. Heiðars, 27.9.2007 kl. 22:26

8 Smámynd: Fiðrildi

 . . takk fyrir ábendinguna . . . var einmitt að vandræðast í hverju ég ætti að vera á morgun :)  Það verður pottþétt eitthvað rautt.

Fiðrildi, 27.9.2007 kl. 22:54

9 Smámynd: krossgata

Ég brunaði í fataskápinn og ég á ekki eina einustu rauða flík.  En ég bið bara einhvern að segja eitthvað ósmekklegt svo ég roðni. 

Annars er rautt í mynd á svörtum bol sem ég á.  Það bjargast kannski. 

krossgata, 27.9.2007 kl. 23:15

10 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Humm.. ég á þennan fína rauða jakka og trefil.. verður að duga, því æðaslitið kemur svo vel fram í andlitinu á mér þegar ég er í rauðu

Ester Sveinbjarnardóttir, 28.9.2007 kl. 00:29

11 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Já, rauð skyrta verður fyrir valinu greinilega hjá mér á morgun. Þá er það afgreitt.

Bjarndís Helena Mitchell, 28.9.2007 kl. 00:43

12 Smámynd: halkatla

ég var búin að heyra af þessu en er dáldið pirruð, ég á næstum engin rauð föt nema einn sparibol og eina peysu og bol sem ég finn ekki núna. Þannig að ég verð að vera í peysunni þartil annað kemur í ljós. Gat þetta ekki frekar verið appelsínugult? Það hefði verið svo miklu þægilegra fyrir mig!  segi svona, það er verið að biðja fyrir þessu um allan heim sem er gott mál

halkatla, 28.9.2007 kl. 11:06

13 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég var í rauðum bol í allan dag

Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2007 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.