Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir - frábær blogg

Þegar ég byrjaði að blogga, vissi ég lítið út í hvaða heim ég var að hella mér, en mikið skelfing er ég ánægð að hafa gert það.  Það hefur bara verið skemmtilegt.  Mis skemmtilegt auðvitað, en aldrei leiðinlegt.

Hvað um það, hér á Moggabloggi eru athugasemdirnar heil veröld út af fyrir sig.  Þar er heill heimur af allskyns umræðum sem skapast við færslurnar og oftast víkka þær út umræðuna, dýpka hana og þær eru, að mínu mati, nauðsynlegt uppbót við pistlana sem ég les.  Stundum skapast svo skemmtileg stemming við færslurnar að ég ligg í hláturskasti yfir hugmyndaauðgi þeirra sem þar eru á ferðinni.  Hlátur er svo heilandi krakkar mínir.

Þeir sem banna athugasemdir hjá sér, eru svolítið sér á báti, ég persónulega nenni ekki að lesa þá, en þeir trufla mig ekki lengur.  Ég lét þetta fara skelfilega í taugarnar á mér á tímabili, en svo sleppti ég því og nú er blóðþrýstingurinn ekki lengur í hættu (segi sonna).

Svo eru það nafnlausu athugasemdirnar og nafnlausu bloggin.  Í flestum tilfellum er það bara í góðu lagi ef fólk kýs að blogga nafnlaust og það geta verið margar og skiljanlegar ástæður fyrir því.  Það sem mér finnst ólíðandi eru dónarnir og hugleysingjarnir sem eru með dónaskap og árásir á fólk, í athugasemdakerfunum, og fela sig á bak við fölsk nöfn eða nafnleysi.  Það er samt ótrúlega sjaldgæft á mínu bloggi, að ég hafi þurft að taka út færslur og/eða loka á ip-tölur, þó það hafi að sjálfsögðu komið fyrir.

Ég hvet amk. alla að kíkja í kommentakerfið (sem ég er viss um reyndar, að flestir gera), því þar er hin eiginlega umræða í gangi, oft á tíðum.  Skemmtileg, fróðleg, gagnrýnin og allskonar.  Það er bara skemmtilegt.

Ég lofa.

Later.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Blogg fara sjaldnast í taugarnar á mér. Aftur á móti geta komment stundum hækkað hjá mér blóðþrýstinginn  En ég er að vinna í sjálfstjórninni og þroskanum hjá mér.

Mail til þín esskan

Jóna Á. Gísladóttir, 27.9.2007 kl. 19:56

2 Smámynd: Ragnheiður

 hvaða vitleysa ?! Hér er ekkert að gerast

Ragnheiður , 27.9.2007 kl. 20:11

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

sammála þér, oft ansi gaman að lesa kommentin við færslurnar en óþolandi þessir margir af þessum óskráðu, nafnlausu sem gera ekki annað en að kommenta með dónaskap og leiðindi.

Huld S. Ringsted, 27.9.2007 kl. 20:12

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sem betur fer eru þeir tiltölulega fáir Huld.

Ragga: Farðu í einhverja aðra færslu sem er líflegri addna

Jóna: Auðvitað eru sumar athugasemdir óþolandi en hinar bæta það upp.

Arna: Við erum svo bloggsjúkar stelpurnar

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 20:21

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi Jóna meilið kom ekki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 20:21

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvað, hér eru bara feministar að segja hvorri annarri að hún hafi fengið meil.

Já já ég skal vera úti......

Þröstur Unnar, 27.9.2007 kl. 21:15

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það er sko alveg rétt hjá þér Jenný mín þetta með athugasemdirnar.....mér finnst þær alveg ómissandi og oft ferlega skemmtilegar. Gæti ekki hugsað mér bloggið án athugasemda.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 22:08

8 Smámynd: krossgata

Með athugasemdalausu bloggin þá finnst mér þau svolítið eins og mynd í litabók sem enn er í hillunni búðinni - ólitaðar.  Svolítið tómlegt eitthvað.

krossgata, 27.9.2007 kl. 23:12

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega Krossgata.  Eins og litabók sem á eftir að lita í.  Frábær samlíking.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 23:19

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það er athugasemdakerfið sem lyftir þessum vettvang upp. Nafnlausar athugasemdir draga hann hinsvegar mikið niður. Það er dónaskapur að kynna sig ekki.

Oft geta umræðurnar verið líflegar, en því miður stundum dregnar niður í svaðið, t.d. þegar ráðist er á persónur þeirra sem skrifa, þeir kallaðir ýmsum ljótum nöfnum og þeim gerðar upp skoðanir, í stað þess að koma með mótrök.

Ekki eins slæmt,en samt hvimleitt, er þegar umræðurnar fara að snúast um eitthvað allt annað en upphaflega var lagt með.

Theódór Norðkvist, 28.9.2007 kl. 00:02

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Aðalgrínið við bloggeríð eru athugasemdirnar náttúrlega.  Þeir sem að blokka á athugasemdir á sínu bloggeríi eru ekki bloggarar, heldur 'mónófónar' sem að hafa ekkert við athugasemdir okkar bjánanna að gera, þegar þeir setja sínu einu réttu einræðu fram.

Annars háþrýstast ég nú eiginlega meira yfir því fólki sem að veður um athugasemdakerfið hjá þeim sem að brúka moggeríisbloggeríið, en taka snyrtilega fram að, náttúrlega séu þeir ekki ´moggabloggarar', þeir bloggi annars staðar, líklega vitulegar en við hin.

Það finnst mér fyndið fólk, alltént.

S.

Steingrímur Helgason, 28.9.2007 kl. 00:02

12 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég er sammála þér, en ég á alveg ótrúlega erfit með að fá fólk til að koma með athugasemdir, nema helst ef ég er með leiðindi. Stundum er það eðlilegt því oft er ég bara að skrifa um eitthvað sem ég er sjálf að gera og enginn hefur áhuga á, en stundum skrifa ég um stórmerkilega hluti og býst við einhverri umræðu en...nada...ekkert. Alveg undarlegt.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 28.9.2007 kl. 00:03

13 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Mér finnst erfiðast þegar ég þarf að svara með vísum...svo ansi eitthvað tímafrekt...þegar maður er með þrjú börn..mann ...hund kött og hænur...nei lýg því

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 28.9.2007 kl. 03:54

14 identicon

Sammála Jónu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.