Leita í fréttum mbl.is

Við í dágóðum félagsskap - Grímulaus Bush

1

Hana þar höfum við  það svart á hvítu.  Búski í eigin safa.  Samkvæmt útskrft af fundi  sem Bush átti með Jose Maria Aznar, þáverandi forsætisráðherra Spánar árið 2003, þá vissi forsetinn af vilja Saddam Hussein til að fara í útlegð að uppfylltum skilyrðum.

„Egyptar eiga í viðræðum við Saddam Hussein. "Hann virðist hafa gefið í skyn að hann sé tilbúinn til að fara í útlegð fái hann að taka með sér milljarð dollara og allar þær upplýsingar um gereyðingarvopn sem hann kýs að taka með sér,” sagði Bush. „Það yrði líka besta lausnin fyrir okkur og myndi auk þess spara okkur fimmtíu milljarða dala.”

Við vitum hvernig fór.  Við vitum líka hversu mörgum mannslífum saklausra borgara hefur verið fórnað í Írak frá innrásinni.

Við megum ekki gleyma að þarna erum við þátttakendur.  Eða kannski ekki lengur?  Mér skilst að það sé búið að taka okkur út af lista viljugu þjóðanna og það án þess að við höfum beðið um það.

Það væri kannski lag að fara að tékka á því hvort við séum með eða ekki.  Íslensk stjórnvöld vita það ekki, kannski veit Búski það.

Later.


mbl.is Bush vissi af vilja Saddams til að fara í útlegð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ef þetta er rétt að Bush vissi um þessa uppgjöf og þessi skilyrði hefði verið ódýrara að borga lausnargjaldið fyrir böðulinn hann Saddam, fyrir nú utan öll mannslífin sem eru ekki metinn til fjár.

Benedikt Halldórsson, 27.9.2007 kl. 18:53

2 Smámynd: krossgata

Finnast ekki alltaf beinagrindur í skápum þessara valdamiklu manna þegar farið er að skoða nánar.  Þeir virðast allir vera að spila Matador og svindla sem mest þeir geta. 

krossgata, 27.9.2007 kl. 19:01

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Hussein ætlaði að taka með sér sína "eigin" peninga (ekki að hann hafi svo sem átt þá bölvaður spillingagosinn).  Þetta er ekki þokkalegur félagsskapur að vera í.

Beinagrindurnar Krossgata eru mis ljótar.  Hundruðir þúsunda manna hafa látist í þessi ruglaða stríði um olíu.  Því það er það sem það er, spurning um olíu.

Og það er merkilegt að Búski talar um að það spari 50 milljarða að fara ekki í stríð en hann talar ekki um mannslífin sem hefðu "sparast" við að láta það eiga sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 19:05

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

1.068.035 mann skv. teljara hérna neðst á síðunni minni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 19:07

5 Smámynd: Linda

Þessi umræða tengist trúarbrögðum hvernig? Er þetta ekki betur geymt undir stjórnmál og samfélag? Að öðru leiti ágætis þráður hjá þér.

Linda, 27.9.2007 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.