Leita í fréttum mbl.is

EINKALEYFI Á ORÐ

 

Ég mun í dag setja mig í samband við Einkaleyfastofu og fá eftirfarandi orð skráð sem orðmerki:

Kerlingabók

Útlimagleði

Súmí - Bítmí - Bætmí

Áhyggjufrömuður

Það eru fleiri orð en þetta sem ég á í pússi mín og vill teljast höfundur að (og mér er alveg sama hvort einhver annars þykist eiga þau líka) og ég sé enga ástæðu til annars en að eyrnamerkja mér þessi orð og stofna svo til málaferla ef einhver annar vogar sér að nota þau án míns leyfis.

Nú er Húkkaraballið og Brekkusöngurinn  í tengslum við Þjóðhátið orðin orðmerki (sambærilegt við vörumerki).

Í framtíðinni má ekki ástunda Brekkusöng annars staðar en í Eyjum en það má ástunda söng í brekkum.  Þá verður að auglýsa fyrirbrigðið sem Söngbrekku, nema að fengnu leyfi hjá ÍBV.

Var einhver að segja að lífið væri flókið?

Ég hélt ekki.

Æmsúingevríbodí!

Úje


mbl.is Eyjamenn þeir einu sem mega halda Húkkaraball
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Einu sinni var systur minni ráðlagt að fá einkaleyfi á nafn fyrirtækis síns. Hún gerði það og borgaði stórfé fyrir (marga þúsundkalla alla vega). Ekki svo löngu síðar var þetta nafn notað af stórfyrirtæki og hún fór og spurðist fyrir, þetta olli nefnilega strax misskilningi og ruglingi, en sorrí, stína, henni var sagt að þetta væri það almennt orð að hún gæti ekki átt einkaleyfi á því. Við gleymum alltaf að fara niður á Hagstofu til að fá einkaleyfið endurgreitt. 

Guðríður Haraldsdóttir, 21.8.2007 kl. 14:33

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa; súmí!

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2007 kl. 15:05

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 21.8.2007 kl. 15:21

4 identicon

Það er mér ógleymanlegt þegar að Davíð Sc. Torsteinsson fv. forstj
óri Sól Fékk einkaleyfi á orðinu SNAKK! Það er staðreynd að hann/Sól á orðið! Púff eins gott að það er ekki stef gjald tekið fyrir hverja notkun hehe

Solveig (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 15:38

5 Smámynd: Rebbý

hvað næst .... ég bara spyr

Rebbý, 21.8.2007 kl. 15:50

6 identicon

Gott hjá þér Jenný . En kostar það ekki marga peninga?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 16:40

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að það muni kosta bæði hönd og fót og jafnvel hvítuna úr augum mér, but what the hell, you only live once.  Híhí

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2007 kl. 17:01

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ekki gleyma einkaleyfi á "Úje".  Og fyrirgefðu að ég skrifaði það óvart !  

Kerlingabók er pottþétt þitt !  Og fyrirgefðu aftur gæskan. 

Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband