Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Framlag í kreppu?

Eru þetta hugmyndir núverandi starfsstjórnar og fyrrverandi ríkisstjórnar um aðgerðir til handa heimilum í landinu, atvinnu mála og svo framvegis?

Öllu ræstingarfólki Borgarspítalans eða þrjátíu manns er sagt upp og bjóða á störfin út á Evrópska Efnahagssvæðinu?

Um að gera að bæta við atvinnuleysið í kreppunni.

Annars veit ég ekki hvað maður er að verða hissa alla daga en þannig er það nú bara.

Ég skil ekki þessi vinnubrögð sem eru í hrópandi mótsögn við allt tal um aðgerðir til bjargar hinu og þessu.

Er ekki hægt að láta þennan gjörning ganga til baka?

Skömm að þessu.


mbl.is Óskiljanleg harka Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggja þjóð - halló!

Ég get ekki á mér setið.

Sigmundur Ernir ætlar í póltík.

Gott hjá honum.

En hann verður að taka númer, röðin er löng.  Margir kallaðir fáir útvaldir, æi og allt það kjaftæði.

En kommon maður, hvaðan kemurðu með þetta uppskrúfaða málfar?

Hvernig ætlarðu að höfða til fólks með svona yfirborðstali og hátimbruðu orðalagi?:

Ég hef haft gaman af að smíða úti í garði,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson í viðtali í Morgunútvarpi Rásar 2 rétt í þessu, en „nú ætla ég að byggja þjóð“.

Á ekki að fara í kosningabaráttuna með stuðla og höfuðstafi að vopni bara?

Íklæddur vaðmáli og suðskinnsskóm?  Ha?

En ný stjórn er í burðarliðnum það er næsta víst.


mbl.is Fundað um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlegt eðli

Hér er "frétt" yfir persónur og leikendur þeirra sem sitja og æfa fyrir nýja leikverkið "bráðabirgðakreppustjórnin".

Það telst kannski fréttaefni að sumir hafi verið lengi í pólitík.

Það væri gaman að sjá lista yfir íhaldsþingmenn.  Þeir eru þaulsætnari en árinn sjálfur.

Annars vill ég reglulega endurnýjun í pólitík.

Annars fer allt í bölvaða stöppu.

Svo finnst mér enginn koma til greina í dómsmálin í nýrri stjórn ef af verður, annar en Atli Gíslason.  Hann nýtur víðtæks, þverpólitísks stuðnings og fólk treystir honum.

En..

Eruð þið ekki eins og ég að fylgjast með hvað starfstjórnarráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru að bardúsa núna á síðustu metrunum?

Einar K. Guðfinnsson sýndi sitt skítlega eðli með að gefa út hvalveiðikvóta á tíma sem hann á bara að halda ráðuneytinu gangandi.

Flestir og eiginlega allir sem ekki hafa beinna hagsmuna að gæta varðandi hvalveiðar eru gapandi yfir þessu hefndarbragði ráðherrans sem kemur nýrri stjórn í töluverðan vanda.

Slægvitur maður sjávarútvegsráðherrann á plani.

Hvað er svo Gulli að bedrífa?

Ég ráðlegg öllum að fylgjast vel með.

Já þið lásuð rétt, ég kalla þetta skítlegt eðli.

 

HÉR ER SVO MARTRÖÐIN HENNAR KATRÍNAR

 


mbl.is Nýtt verk, sömu leikarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkurs konar ljóska

 d

Í mér blundar kona með viðkvæmt tilfinningalíf.

Nokkurs konar ljóska sem þolir ekki pólitík, vill kaupa sér föt, dingla augnhárunum og lesa glanstímarit.

Eftir að hafa verið lokuð inni síðan í hruni braust hún fram í morgun og gargaði blíðlega á mig þar sem ég sat og horfði framan í daginn.

Ég vil borða gæsalifur og mótsartkúlur í öll mál!

Ég vil ganga um á háum hælum með bera leggi og Gucci tösku á búlevard í útlöndum.

Ég vil fara á frumsýningar á leiðinlegum söngleikjum þar sem ilvatnsblandan frá hinum innantómu gestunum blandast þannig að lyktin verður peningar og eilíf veisluhöld.

Ég vil lifa lífi mínu í einni andskotans óslitinni dömubindaauglýsingu.

Þegar hér var komið sögu, múlbatt ég konuna og læsti hana inn í skáp.

Skilur hún ekki að við lifum á erfiðum tímum?

Er hún ekki meðvituð um ástandið í þjóðfélaginu?

Fífl og lofthöfuð.


Skyrp og hoj

 sjómaður

Ég er enginn hvalaverndarsinni þannig að það standi mér fyrir þrifum.

En ég tel glórulaust að veiða þessi ferlíki og senda heiminum þar með fokkmerki og stríðsyfirlýsingar.

Fyrir utan að það eru tæplega markaðir fyrir hval, ja nema eina og eina Hrefnu fyrir þá sem hafa lyst á þeim - mat.

Það er ekki eins og við sitjum á gullnámu þegar orðspor okkar er annars vegar.

Að við höfum efni á að taka sénsa með hvítflibbann hér og þar um víðan völl.

Við erum í skammarkrók þjóðanna nú um stundir.

Hvað finnst mér um STARFANDI sjávarútvegsráðherra?

Mér finnst hann ekki stórmannlegur.  Afar fallega orðað hjá mér sko.

En ég hef fordóma fyrir fólki sem talar sig blátt í framan fyrir hvalveiðum.

Ég veit það, skammast mín, en mér finnst þeir allir hljóta að vera neftóbaksmenn, sem þurrka af nefinu á sér í peysuermina, klóra sér í rassinum á almannafæri, ropa og fara á sveitaböll og segja haltu kjafti ef maður bíður þeim góðan daginn og senda slummu í næsta vegg.

Þetta eru menn sem telja hafragraut með lýsi toppinn tilverunni.  Aktú.

Svo kom Hvalur sjálfur í Kastljósið og var einhvern veginn alveg eins og ég sé fyrir mér þessa tegund fólks.

Þarna myndbirtust fordómarnir í beinni í sjónvarpinu.  Að vísu sá ég hann ekki klóra sér en appíransið smell passaði.

Ég er eiginlega komin á þá skoðun að ég er ekkert með fordóma fyrir þessum mönnum.

Þeir eiga ekki að hafa orðspor Íslands með höndum.

Þeir gætu gefið náttúruverndarsamtökum heimsins á kjaftinn bara, væru þau með múður.

Hinn íslenski karlmaður í merkingunni skyrp og hoj lifir enn góðu lífi.

Skammastu þín fyrir þessa löðurmannlegu gjörð EKG.

 

Kastljósið.
mbl.is Skýr skilaboð frá Svíum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úðafingur

Mig grunaði að þegar lögreglan byrjaði að nota piparúða liði ekki á löngu áður en það yrði daglegt brauð að hann væri rifinn upp og notaður af litlum tilefnum.

Þessa dagana finnst mér úðafingur lögreglunnar ansi viljugur til verka.


mbl.is Lögregla beitti piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bölvaðir vinstri mennirnir

Hugmyndaauðgi Moggans á sér engin takmörk þegar þeir eru komnir í kosningabaráttu fyrir sinn flokk.

Það er Ögmundi Jónassyni að kenna að það er erfitt að losna við Davíð Oddsson.

Ögmundur talaði nefnilega fyrir réttindum forstöðumanna opinberra stofnanna.

Sem er í sjálfu sér stórundarlegt er það ekki, maðurinn verandi formaður stéttarfélags opinberra starfsmanna!

Hvað er svoleiðis maður að vilja upp á dekk og semja um kaup og kjör?

En Davíð barðist með kjafti og klóm til að minnka þessi sömu réttindi.

Ergo: Davíð er skjólstæðingur Ögmundar.

Það er því helvítinu honum Ögmundi að kenna að Davíð situr sem fastast.

Fastar heldur en sjálf ríkisstjórnin sem féll á sverðið fyrir Davíð á endanum.

Svona eru þessir vinstri menn.  Alls staðar til óþurftar.

Frussssss


mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náið þið utan um þetta gott fólk?

Ég er ekki reikningshaus.  Kann að bregða fyrir mig algengustu aðferðum reiknilistarinnar og læt þar við sitja.

Það er ekki hægt að vera góður í öllu þrátt fyrir að sumir fúlir séu á öðru máli.

En eftir kreppu hefur þetta orðið að vandamáli hér á kærleiks.

Tölurnar í lífi mínu hafa fram að þessu ekki verið taldar í flóknum upphæðum.

Hverri krónu nánast hefur verið ráðstafað áður en þær rúlla inn á reikninginn.

Mitt góðæri fólst í því að geta staðið á sléttu, borgað mínar skuldir nokkurn veginn og haldið andliti.

Mér leið afskaplega vel með þá stöðu og hafði litlar óskir um breytingar.

Nú hins vegar, þarf að úlenndúllendoffa reikningana um hver mánaðarmót og því reiknisdæmi fylgir hnútur í maga og stöðugur seiðingur í hjartanu.  Þið þekkið það. Það er kreppan í máli og myndum eins og hún kemur persónulega við mig enn sem komið er, en ég veit að þetta er bara byrjunin.

Svo eru það upphæðirnar.  Upphæðirnar sem auðmennirnir léku sér með og göldruðu svo úr landi fyrir hrun.

Leikföng auðmannanna sem þeir fengu að dúlla sér með óáreittir án nokkurs eftirlits.

Þær hlaupa á milljörðum, hundruðum milljarða, þúsundum milljarða.

Höfuðið á mér snýst, augun ætla út úr höfði mér og tungan þvælist fyrir löppunum á mér þegar ég reyni að átta mig á þessum rosalegu upphæðum sem við skuldum á Íslandi.

Ég næ enn ekki alveg utan um þetta stærsta bankarán sögunnar.

Ég næ heldur ekki utan um það að ekki megi setja eigur þessara manna í sóttkví á meðan málið er rannsakað.

Löggan í Kefló gerði upptækar eigur hælisleitenda í fyrra og það sá enginn neitt athugavert við það.

Og VR-karlinn átti þátt í að lána Bretanum Tjengis (Khan) tvöhundruðagáttatíumilljarða góðan daginn?

VR-karlinn sem telur sig hafa unnið að fullum heilindum fyrir - Kaupþing, ekki umbjóðendur sinna.

Sem hírast á stórmarkaðskössum á skammarlaunum margir hverjir.

Eruð þið að ná utan um það gott fólk

Hvar er réttlætið?  Ég auglýsi hér með eftir því.


mbl.is Skuldir aukast um 400 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kom, sá og gjörtapaði

Það er ekki oft sem maður fær tækifæri til að sjá viðbrögð Sjálfstæðisflokks þegar hann verður af völdunum.

Reyndar ættu fræðingar af öllum tegundum um mannlegt eðli að hanga á húni Vallhallar þessa dagana og fylgjast með fyrirbrigðinu "fúll Sjálfstæðismaður".

Þeir eru eins og umskiptingar eftir stjórnarslitin.

Þeir segjast sjálfir vera fúlir, sem er auðvitað kurteist orðalag yfir bandbrímandibrjálaðir.

Samfylkingin hefur tekið frá þeim það sem þeir telja sig réttborna til - að stjórna íslenskum lýð.

Í viðtölum við Þorgerði Katrínu á báðum stöðvum í gær var hún ekki að skafa utan af því.

En Ragnheiður Elín í Kastljósinu í gær kom sá og gjörtapaði - konan var bitur.  B-i-t-u-r!

Það krúttlegasta og jafnframt besti vittnisburðurinn um veruleikafirringu íhaldsins sést best í "áhyggjum" þeirra af mögulegu klúðri nýrra ráðherra á fjármálum þjóðarinnar.

Hverjir hafa haft ábyrgðina á fjármálum íslenska ríkisins s.l. 15 ár eða lengur?

Nú nema hvað, hinir réttbornu.

Miðað við hvernig fyrir okkur er komið þá er það æði skondið að þeir skuli trúa því að það séu skelfileg örlög íslenskrar þjóðar að missa þau úr peningamálunum.

Það er til eitthvað sem heitir að horfast í augu við raunveruleikann.

Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að drífa í því.

Ragnheiður Elín í Kastljósi gærkvöldsins.

 


mbl.is „Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"The búhú game"

Ég get orðið ofboðslega reið út í fólk sem kann ekki að skammast sín.

Þar á meðal mig sjálfa þegar það á við og ég átta mig nokkrum árum síðar (segi svona).

En reiðust verð ég þegar fólk hagar sér á aumkunarverðan máta til að ná settu marki.

Reynir að emja og væla til að fá sínu framgengt eins og Gunnar Páll sem sendi öllum trúnaðarmönnum VR bréf.

Búhú, kjósið mig ég axlaði ábyrgð.

(Sú ábyrgð felst í því að hann stytti kjörtímabil sitt).

Búhú, leyfið mér að sitja áfram sem formaður VR með mín bæjarstjóralaun á mánuði, búhú.

Leyfið mér að sitja áfram þrátt fyrir að ég hafi samþykkt lán á um 150 milljarða til Breta sem allur viðskiptaheimurinn vissi að stóð mjög illa, síðast nokkrum dögum fyrir þjóðnýtingu Kaupþings.

Leyfið mér að sitja áfram þrátt fyrir að ég hafi gefið fullt af ríkum gæjum í Kaupþingi eftir ábyrgðir og þjóðin sitji eftir í sárum og borgi brúsann.

Leyfið mér að sitja áfram af því þetta eru allt smá ávirðingar og þið getið alveg litið framhjáessu ha?

Ég vann alltaf af fullum heilindum.  Búhú.

Leyfið mér að sitja áfram þó ekki væri nema fyrir það hvað ég er mikið krútt, ha?

Þvílík, væla og skortur á sjálfsgagnrýni.

Kann maðurinn ekki að skammast sín?

The búhú game hvað?

P.s. Trúnaðarráðið féll fyrir bréfinu.  Hann var að fá yfirgnæfandi kosningu þess.

Verði þeim að góðu.

 


mbl.is Gunnar Páll: „Starfaði af fullum heilindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband