Leita í fréttum mbl.is

Framlag í kreppu?

Eru þetta hugmyndir núverandi starfsstjórnar og fyrrverandi ríkisstjórnar um aðgerðir til handa heimilum í landinu, atvinnu mála og svo framvegis?

Öllu ræstingarfólki Borgarspítalans eða þrjátíu manns er sagt upp og bjóða á störfin út á Evrópska Efnahagssvæðinu?

Um að gera að bæta við atvinnuleysið í kreppunni.

Annars veit ég ekki hvað maður er að verða hissa alla daga en þannig er það nú bara.

Ég skil ekki þessi vinnubrögð sem eru í hrópandi mótsögn við allt tal um aðgerðir til bjargar hinu og þessu.

Er ekki hægt að láta þennan gjörning ganga til baka?

Skömm að þessu.


mbl.is Óskiljanleg harka Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

LSH í hnotskurn!!

Birna (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 15:24

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það að þú skulir ennþá verða hissa á hverjum degi þrátt fyrir allt ruglið, segir bara hversu góð og réttsýn manneskja þú ert

Jónína Dúadóttir, 29.1.2009 kl. 15:38

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Smart og alveg í stíl við hugarfarið og innmatinn í þessu liði. Notum frekar biðlaunin óverðskulduðu sem sjálfstæðismenn taka sér núna...til að borga þeim sem eru að gera hreint. Ekki veitir af að smúla þetta samfélag vel.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 15:54

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er ömurlegt. Þarna er verið að brjóta þá niður sem hafa unnið erfiðustu verkin fyrir minnsta kaupið. Hvað á Davíð að fá margar milljónir við uppsögn? Væri ekki hægt að láta þrífa spítalana í mörg ár fyrir það?

Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 16:31

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er gamla Ísland.  Byrjað að skera niður útgjöld, þar sem þau eru minnst fyrir

Sigrún Jónsdóttir, 29.1.2009 kl. 16:50

6 identicon

.

En hvernig væri að byrja á því að bjóða út dýrasta hluta í rekstri spítalanna, sumsé þjónustu læknanna og þeirra allra sem eru það sem kallað er "yfir-" og "aðal-".

Gæti verið að við fengjum laghenta lækna frá Evrópska efnahagssvæðinu á mun betri kjörum en okkar ástkæru íslensku læknar taka fyrir viðvik sín.

Það skyldi þó ekki vera. 

101 (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 17:35

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég á bara ekki orð

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985757

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.