Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Leyndarmálin afhjúpuð

5384

Ég hélt ekki að það ætti fyrir mér að liggja að sökkva mér ofan í skandinavíska fjölskyldusögu.  Norska að þessu sinni.  Ég hef verið með öfluga fordóma gagnvart skandinavískum bókmenntum lengi vel, þó ég viti að þar hafi mörg meistaraverk orðið til.  En fordómar mínir eiga sér örugglega rætur í oflestri á sænskum vandamálasögum, sem ég hakkaði í mig þegar ég var við nám í Svíþjóð.  Ég hélt að ég væri bólusett til eilífðar af "bakverkjum" en það  hugtak "ont i ryggen" súmmerar upp hina skandinavísku þörf fyrir kvöl og pínu.

En ég er glöð og ánægð með að hafa lesið Kuðungakrabbana.  Hún er sjálfstætt framhald Berlínaraspanna sem kom út í kilju 2006.

Í bókinni er fjölskylda sem hefur ólíkan lífsstíl að fást við og vinna úr sama fjölskylduleyndarmálinu sem hefur verið afhjúpað.  Það er skemmtileg lesning og stundum vissi ég ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta.

Bókin tekur mann m.a. inn í svínastíu á norskum bóndabæ iog þaðan inn í glæsiheim svo eitthvað sé upp talið, þannig að andstæðurnar eru sláandi.  Ég ætla ekki að segja ykkur meira um það börnin góð og ræna ykkur ánægjunni af lestrinum.

Katrín Jakobs sagði í Mannamáli í gær að fyrri bókin hafi verið betri.  Ég hef álit á dómgreind Katrínar og einhendi mér við fyrsta tækifæri í að lesa Berlínaraspirnar.´

Ég væri ekki að segja ykkur frá þessari bók nema af því að ég mæli með henni til lestrar.

Og það eru runnir upp dásamlegir tímar í bókaútgáfu á þessu landi.  Kiljurnar eru gefnar út allan ársins hring.

Hver vill innbundnar bækur þegar kiljur eru fáanlegar? 

Ekki hún ég.


Alkinn á snúrunni

 93

Það er langt síðan ég hef snúrað.

Í dag (mánudag) eru 19 mánuðir síðan ég fór inn á Vog.  Hm.. tíminn flýgur og hann gerir það skemmtilega, svo skemmtilega að ég man það. 

Miðað við ástandið á mér þegar ég dröslaði sjálfri mér í meðferð þá er ég á toppi tilverunnar.  Þrátt fyrir flensur af ýmsum toga, sykursýki og aðra óáran sem ég fæst við, þá er það tertubiti og ég í fantaformi,þegar þetta tvennt er borið saman.

11 daga pillufallið mitt í janúar, ýtti ansi vel við mér, er mér óhætt að segja.

Ég er vör um mig, mátulega hrædd við möguleg föll til að fara varlega.

En 19 mánuðir er heill hellingur af dögum.  Allsgáðum og dýrmætum dögum.

Ég er svo skemmtilega heppin.

Lífið býður upp á möguleika.

Og núna þegar ég leggst til svefns veit ég að ég man hvað ég gerði og hugsaði áður en ég lokaði augunum.

Það er þó nokkurs virði.

Það er ansi fagurt útsýnið af snúrunni, ég blakti rólega.


Nýtt Byrgismál?

Þessa dagana er mér beinlínis óglatt yfir fréttunum sem eru að berast um kynferðislegt ofbeldi.

Í Austurríki er villidýrið Frizl til umfjöllunar, hvert sem maður snýr sér.  Í smáatriðum fær maður fregnir af hvernig hann bar sig að, við að nauðga dóttur sinni.  Guð veit hvað fleira hann hefur á samviskunni þetta óargadýr.  En ég minni á að hann er ekki einn.  Það er þægilegt að halla sér að þeirri hugmynd að þessi maður sé verri en flestir.  Auðvitað er það rétt, hann hefur haft óvenjulangt úthald og djöfullega útsjónarsemi ásamt því að búa í þjóðfélagi sem kássast ekki mikið upp á nágrannann, en misnotkun á börnum er að eiga sér stað út um allt.

Ég þakka almættinu fyrir umræðuna sem hefur skapast hér í þjóðfélaginu og gerir óþverrunum erfiðara um vik að fela gjörningana.

Og nú er nýtt Byrgismál í uppsiglingu. 

Presturinn á Selfossi er farinn í frí á meðan mál hans er rannsakað.

Tvær unglingsstúlkur úr kórstarfinu hafa kært og tvær aðrar munu vera á leiðinni að leggja fram kæru.

Um þetta hef ég sem fæst orð.

Mér er bara alveg svakalega óglatt.


mbl.is Umkvörtun vegna sóknarprests barst kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir saman nú!

 Ég vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar.

Lára Hanna sem skrifar afspyrnu fróðlega og vandaða pistla leggur til  að við tökum nú öll höndum saman, sláum Íslandsmetið sem sett var í nóvember sl., og reynum að stöðva fyrirhugaða eyðileggingu á dásamlegri náttúruperlu með því að reisa þar jarðgufuvirkjun - á Ölkelduhálsi.

Ég ráðlegg öllum að fara inn á síðuna hennar og lesa frekar.

Stöndum saman og þrýstum á yfirvöld. 

Allir saman nú.

 


Kórónur, pell og pluss

 King_Crown_2

Þegar ég var bara ögn, sandkorn á lífsströndinni, sem ég er reyndar enn, kom Noregskonungur ásamt drottningu til Íslands.

Ég hef sennilega verið sex ára.  Það var mætt með mig út í Melaskóla til að berja goðin augum.

Alvöru kóngur og alvöru drottning!  Ég man enn spenninginn og tilhlökkunina sem hríslaðist um mig, enda með kónga og drottningar, prinsessur og prinsa á hreinu úr heimi ævintýrabóka.

Vonbrigðin voru gífurleg.  Maður í borðalögðum búning með húfu á höfðinu og drottningin var ekki með kórónu heldur og ekki var hún hlaðin gulli, konan sú.  Þau voru eins hversdagsleg og hugsast gat.  Ég held að ég hafi misst trúna á ævintýrin þarna í vornepjunni úti í Meló.  Við fórum samt niður í Tjarnargötu og horfðum á þau fara inn í Ráðherrabústaðinn og ekki höfðu þau orðið konunglegri í útliti við fataskiptin.

Þarna hefur örugglega orðið til græðlingur, sem síðan varð að heilum frumskógi.  Þarna fæddist nefnilega andúð mín og antípat á hvers kyns fyrirmennadýrkun.  Guð, takk fyrir það, hver sem þú ert.  Ég hef nefnilega komist að því að kóngar, bæði alvöru og sjálfskipaðir, standa aldrei undir væntingum enda af holdi og blóði eins og afgangurinn af mannkyninu.

Danska kóngafjölskyldan er þó krúttlegust og þolanlegust af öllu þessu eðalborna slekti.  Þórhildur er töffari og þessi ungu hjón Frikki og Mary eru nokkuð kúl.

Ég mun því ekki henda í þau eggjum við komuna til landsins.

Þeim verður hent við önnur og merkilegri tilfelli.

Súmí.


mbl.is Konungssteinar fá nýja ásýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músík í myndum

Það er langt síðan að ég hef eytt svo löngum tíma í sjónvarpsgláp og það á íslenskum þáttum.  Fyrst var það evróvisjón undirbúningurinn á RÚV, með Palla í brúnni.  Algjör eftiröpun reyndar frá sænsku þáttunum sem Eiki var í, í fyrra og undanfarin ár, en það kemur ekki að sök.

Sko, ef lögin hugnast mér ekki, þá mjúta ég sjónvarpið og hlusta svo með athygli á panelinn.

Ég hef nefnilega afskaplega litla ánægju af lögunum en settöppið í kringum þáttinn er svona félagslegt fyrirbæri, þó maður sitji bara með sjálfum sér heima í stofu.  Allir sameinast í heitri bæn.  Látum Ísland vinna.

Svo horfði ég á hátíðina í Háskólabíó, hlustendaverðlaun FM957.  Gaman að því.  Páll Óskar rakaði til sín verðlaununum.  Á þau örugglega skilið en ég er ekki með smekk fyrir þeirri tónlist heldur.

Mér fannst hins vegar gaman að hlusta á Ný-danska og Gus-Gus.

Restin var til uppfyllingar fyrir mig.

Af hverju glápir maður á sjónvarp?

Ég veit það ekki, en stundum er það bara gaman.  Ekki öðruvísi.´

Vindurinn gnauðar eins og að hausti.  Hér beinlínis hriktir í öllu.

Ég held að ég fari tímanlega í rúmið.

Góða nótt rúslurnar mínar.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir úr mollinu

Ég fór í Smáralind með Söru dóttur minni, en skírnarveisla stendur fyrir dyrum um næstu helgi.  Hún var að kaupa sér föt.

Ég keypti líka föt til að sýna henni stuðning.  Að sjálfsögðu.  En ekki hvað.

Ég þarf að fara að hætta að sjoppa, þetta er engan veginn viðeigandi.  Ég geng þvert á eigin reglur og haga mér eins og óábyrgur materíalisti.  Sem ég er ekki svona yfirleitt.

En ég geri auðvitað meira úr þessu en efni standa til.

Ég afrekaði líka að fara í sykurfall í mollinu.  Hreint dásamleg lífsreynsla. 

Afrakstur verslunarferðar:

Dásamlegir skór sem ég keypti í GS ég er búin að stilla þeim upp á stofuborðið og ég get horft endalaust á þá og dáðst að þeim.  Svartir með háum hæl, ökklabandi og fyrirkomulagi.

Kjóll og peysa, sem ég get ekki lýst nánar en amman verður að vera fín í skírnarveislunni.

Rosalega get ég verið yfirborðskennd.

En ég er afskaplega djúp að öðru leyti.

Ójá.


Typpið á Hilmi Snæ, seinni hluti

Hinn íslenski Gary Grant, eða einhver annar drop-dead-georgious kvikmyndaleikari, ætlar að fækka fötum einn ganginn enn í uppsetningu Vesturports á Kommúninni.

Hilmir Snær er að verða prófessjónal flassari. 

Maðurinn er svona lala sætur sko.Devil

En ég hef aldrei séð typpið á honum.

Fram að þessu hefur mér ekki fundist neitt vanta í þeim málum, í mínar listrænu upplifanir á ég við.

Ég hallast helst að því að ég þurfi ekki að bæta þar úr.

En ég verð að sjá Kommúnuna af því ég er svo mikið fyrir listrænar upplifanir, nekt karlmanna hefur ekkert með það að gera.Halo

Dem, dem, dem, ég neyðist þá til að horfa á manninn alsberan.Pinch

En ég er nagli og ég lifi það af.  Glerharður töffari úr hippamenningunni.  Ég harka af mér bara.

Allt fyrir listina.

Úje!

 


mbl.is Hilmir Snær í stað Gaels Garcia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir á hnén

Á hverjum sunnudegi, kvölds og morgna, að viðbættum helgidögum, glymja kirkjuklukkur um alla Reykjavík.  Ég bý við hliðina á einni og fæ klukkutónlist í eyrun, blásaklaus og algjörlega úr lögum við kirkjuna.  Ætti ég að fá mér lögfræðing, kæra til löggunnar, vera með kjaft og uppsteyt?

Nebb, sleppi því, heimurinn er ekki hannaður með sérþarfir mínar í huga.  Ég lifi því með klokkenspilinu, þrátt fyrir að þær byrji að klingja eldsnemma á morgnana. 

Ég sá og heyrði bænakallið sem er hljóðskúlptúr eftir Þórarinn Jónsson, myndlistarnema við LHÍ, í fréttunum í gær.  Krúttleg hugmynd.  Alvöru útkall í bænir hjá múslimum.  Mér fannst ögn skrýtið að heyra þetta í Reykvísku umhverfi, en verkinu er ætlað að varpa jákvæðu ljósi á múslímska trú.

Bænakallið hljómar fimm sinnum á sólarhring, eina mínútu í senn.  Það mun heyrast í viku.  Klukkan fimm í nótt vöknuðu einhverjir nágrannar og eru búnir að kvarta til lögreglunnar sem ætlar í málið. 

Ég segi róið ykkur og sýnið smá umburðarlyndi.  Rosaleg sérgæska er þetta í fólki að fara í símann og hringja í lögguna út af truflun sem er mínútulöng og tímabundin þar að auki.

Það má hugsa, liggjandi í rúminu, hálfsofandi: "Ok, svona hljómar bænakallið.  Ekki svo galið.  En mikið rosalega er huggulegt að vera bara trúlaus Íslendingur hér úti í ballarhafi og þurfa ekki að rífa sig upp til að henda sér á hnén núna um miðja nótt."  Og snúa sér svo á hina hliðina og sofna sætt og rótt.

Péess. Í staðinn fyrir trúlaus, má setja, heittrúaður, ofsatrúaður. smátrúaður, nærriþvíekkerttrúaður eftir þörfum.

Allah akbar.


mbl.is Kvartað til lögreglu yfir bænakalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beðmálsbömmer

Ég gæti alveg hugsað mér að læsa húsinu með slagbrandi, setja fjórfalt gler í glugga, draga niður gardínur og horfa stanslaust á alla Beðmálsþættina, þar til yfir lyki.  Þrátt fyrir að ég hafi séð þá alla, oftar en einu sinni.

Mér fannst þeir skemmtilegir en ekki svona skemmtilegir.  Það sem ég hef svo gaman af er að taka út skó og föt persónanna.  Ók, nú heldur fólk að ég sé brjáluð.  Auðvitað myndi ég ekki nenna að horfa á alla þættina út af þessu atriði, en það er bara vegna þess að allt stöffið í þeim er löngu komið úr tísku.  Got you!

Annars dauðsé ég eftir þessum þáttum.  Þeir hittu svo í mark hjá undirritaðri.  Þeir voru svo ekta eitthvað.  Maður þekkti sig og vinkonurnar í nánast hverju skoti.

Enginn þáttur um konur hefur komist í hálfkvisti við þessa, ekki Aðþrengdar, ekki Varalitafrumskógurinn og hvað þeir heita allir saman.

Ég mun mæta á Beðmálin í bíó og svo mun ég leigja hana og taka út klæðin.  Gæti fengið hugmyndir.

Það er draumur minn og margra sem ég þekki (þori ekki að alhæfa, það er bann við alhæfingum dagurinn í dag) að geta skipt um föt allan guðslangan daginn.

Eða það held ég.  No?

 


mbl.is Skiptir 81 sinni um föt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband