Leita í fréttum mbl.is

Ég hefði, ég hefði betur

Ónefndur vinur kom að máli við mig í gær, hann var miður sín yfir óförum sínum og hann sagði mér eftirfarandi:

Árið 2005 hefði ég átt að hætta að drekka opinberlega.

Þá stefndi í óefni.  Konan og krakkarnir komnir í Kvennaathvarfið og ég ætlaði aldrei að ná þeim heim aftur.

Þá var ég enn með vinnu, átti húsið og bílana og var á fullu blússi við amfetamínframleiðslu í kjallaranum.

Hefði ég gert það, hætt að drekka opinberlega og skandalisera þannig að eftir var tekið, væri ég enn í blússandi bissness, með kerlu, krakka, bíl og bát og sumarbústaðinn á Þingvöllum.

En gerði ég það?

Nei og helvítis kerlingin náði af mér öllu því sem ég átti og meiru til og ég á leið í fangelsi svei mér þá.

Ég spurði hann hvort hann væri ekki miður sín yfir framkomu sinni við allt og alla.

Hann laut snöggvast höfði, ég sá tár á hvarmi og mér sýndist hann vera að falla saman.

Svo leit hann upp, horfði fast í augun á mér og sagði ákveðinni röddu sem titraði þó örlítið af geðshræringunni sem honum var ekki töm og sagði:

"Ég er miður mín og drullusvekktur yfir að fá aldrei að vera í friði með mitt.  Þetta er kerlingunni og fíkniefnalögreglunni að kenna.  Glætan að ég taki það á mig.  Það eina sem ég er sekur um hérna er að hafa fært út kvíarnar 2005 og haldið áfram á djamminu í staðinn fyrir að halda mér í kjallaraframleiðsunni á heimilinu, setja kerlinguna í járn og drekka í mínum prívat og persónulegu hýbýlum. "

Svei mér þá ef ég veit af hverju mér datt þessi atburður í hug akkúrat núna.


mbl.is Áttum að hætta árið 2005
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Eins er með mig.

ÞEgar ég er á göngu suður Fríkirkjuveg á líð minni heim, horfi ég stundum upp að Glaumbæ, og hugsa um allar þær sem ég gæti sagt við ,,Við hefðum átt að vaka lengur og vera betri hvort við annað"

Svo labba ég framhjá Hljómskálanum, sem nú hefur fengið hlutverk áningastaðar, með kaffi og svoleiðis (hefði betur verið með krana og bjór af honum) og þa´geri ég me´r auðvitað grein fyrir því, að flestar eru betur komnar án vökunótta með mér í denn, --eða hvað???

Gæti verið.......

Mibbó

alltaf að horfa í baksýnisspegilinn

Eða ekki.

Bjarni Kjartansson, 10.9.2009 kl. 10:24

2 Smámynd:

Ja maður spyr sig

, 10.9.2009 kl. 10:25

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ef maður hefði bara!!!  Svei mér þá Jenný þessi er ótrúlega sterkur hjá þér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.9.2009 kl. 10:42

4 identicon

Já ef ég hefði bara

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.