Leita í fréttum mbl.is

..nú fyrst þú segir það Guðmundur

"Guðmundur Hauksson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri SPRON, segir að þegar eiginkona hans seldi hlut sinn í SPRON hafi stjórnendur sparisjóðsins ekki búið yfir upplýsingum sem gátu haft áhrif á stofnfjárverð og höfðu ekki verið gerðar opinberar. Segir hann saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra staðfesta þetta."

Nú, nú, fyrst þú segir það Guðmundur þá er engin ástæða fyrir okkur múginn að efast er það nokkuð?

Gott að þú gast komið þessu á hreint að það hefur ekkert koddahjal átt sér stað á milli ykkar hjóna.

Hættið þið svo að vera svona tortryggin gott fólk.

Maðurinn hefur talað.


mbl.is Guðmundur: Bjó ekki yfir upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sénsinn að ég trú manninum.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2009 kl. 16:30

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Að vera að bera svona nokkuð á borð fyrir okkur. Ekki glætan að ég trúi gaurnum. Treystir hann á að við séum öll hálfvitar ?

Finnur Bárðarson, 9.9.2009 kl. 16:47

3 identicon

Ég trúi á jólasveininn og storkinn, en ekki bankamönnum (af biturri reynslu). Kanntu annann Guðmundur?

quo vadis (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 16:57

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvernig getur bankastjórinn EKKI haft innherjaupplýsingar? Mætti hann aldrei í vinnuna?

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.9.2009 kl. 17:00

5 Smámynd: Dúa

Láttu ekki eins og að hjón tali yfirleitt saman.....

Dúa, 9.9.2009 kl. 17:06

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sumir menn þurfa ekki að opna munninn til að sanna sig. Óheiðarleikinn flæðir út úr eyrunum á þeim.

Árni Gunnarsson, 9.9.2009 kl. 17:08

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Árni.G er klárlega með þetta...

hilmar jónsson, 9.9.2009 kl. 17:25

8 identicon

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 18:04

9 Smámynd: Páll Blöndal

Maðurinn er örugglega að segja satt.
Er þetta ekki einhver fj... öfund í ykkur krakkakjánar?

Páll Blöndal, 9.9.2009 kl. 18:41

10 identicon

ég var að upgvötva alveg nýja staðreind,það vantaði heilann í fjármálasnillingana

Sigurður Helgason (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 18:54

11 identicon

það er þekkt að fólk í svindli talast ekki við hver man ekki eftir Dómsmálaráðher(funni)herranum sem talaði ekki við manninn sinn aðal persónuna í olíu svindlinu

Tryggvi (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 21:44

12 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jáenn ég heyrði sjálf eftir manninum haft í útvarpsfréttum í gær að enginn honum nákominn hefði selt bréf -nema bara konan hans.

So what´s the fuzz ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 10.9.2009 kl. 07:20

13 identicon

Frímúrarinn Guðmundur Hauksson treystir eflaust á að reglufélagar hans verji svínaríið með kjafti og klóm. Mikið er annars gott að vera laus við SPRON-skrýmslið af Skólavörðustígnum. Í staðinn fyrir þann rotna banka er komin bóka og menningarverslun. Nú gengur fólk ánægt út úr því húsi en ekki þungbúið með lafandi haus. 

Stefán (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 08:21

14 Smámynd: Alli

"Guðmundur Hauksson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri SPRON, segir að þegar eiginkona hans seldi hlut sinn í SPRON hafi stjórnendur sparisjóðsins ekki búið yfir upplýsingum sem gátu haft áhrif á stofnfjárverð og höfðu ekki verið gerðar opinberar. Segir hann saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra staðfesta þetta."

Það rata nú ekki endilega allar upplýsingar í skýrslur.  Menn geta nú vitað ýmislegt þó það sé ekki sett niður á blað.

Alli, 10.9.2009 kl. 08:36

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er hægt að reyna að snúa sig niður úr snöru.  En ég segi nú bara heldur maðurinn að fólk sé svona mikil fífl?  Já sennilega heldur hann það.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.9.2009 kl. 08:49

16 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Sparisjóðsstjórinn fyrrverandi  er að segja að hann hafi ekkert  vitað um rekstur  , stöðu eða  verðmæti SPRON. Réttur maður á  réttum  stað.

Eiður Svanberg Guðnason, 10.9.2009 kl. 08:58

17 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Ég held að þetta sé rétt hjá honum,hann vissi ekkert um bankastarfsemi eða hvað hann var að gera í vinnu sem hann hafði engan skilning á.

Konráð Ragnarsson, 10.9.2009 kl. 09:18

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gaman að þessu gott fólk.  Þetta er íslenska leiðin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2009 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband