Leita í fréttum mbl.is

Horfi á skrásettningu sögunnar í beinni

Einn afdrifaríkasti þingfundur sögunnar er að hefjast klukkan níu eða eftir þrjár mínútur.

Klukkan tíu verður atkvæðagreiðsla.

Ég ætla að sitja þar til yfir líkur yfir sjónvarpinu, sjá, heyra og meðtaka.

Þingfundur hefst með því að formenn flokka flytja stutt ávörp.

Sem þeir hafa auðvitað legið yfir enda mun hvert orð verða í sögubókum framtíðarinnar.

Spennan liggur í því að heyra hvernig lýðskrumarar þingsins greiða atkvæði.

Og þeir sem eiga Icesave með öllum þeim óverra sem á okkur dynur.

Þá á ég við Sjálfstæðisflokk og Framsókn.  Einkabankaflokkana.

Jább, komin með kaffið í hönd.

Nú skal horft á söguna skrásetta.


mbl.is Þingfundur hefst klukkan 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég segi nei

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 09:29

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Sem fulltrúi lýðskrumara, segi ég nei.

Axel Jóhann Axelsson, 28.8.2009 kl. 09:40

3 identicon

Ætli Hannes Hólmsteinn sé búinn að fela sig í garðinum á bak við Alþingishúsið í dag ? Gæti verið dulbúinn sem tré eða álfur. Þarf svo sem ekki að dulbúa sig sem álfur, en það er alltaf gaman að mönnum sem mótmæla sjálfum sér á torgum. Svo gæti hann tekið upp á því að hirða peningana sem fólk hendir í hann og safnað í sjóð til greiðslu á ritstuldasektum.   

Stefán (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 10:32

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stefán: Góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2009 kl. 11:52

5 Smámynd: hilmar  jónsson

VG og SF hafa óneitanlega ekki verið í öfundsverðu hlutverki að moka flórinn eftir 16 ára stjórnarsetu XD og XB. Og auðvitað legið vel við höggi,

Davíð og Hannes mæta eins og saklausir píslarvottar til að mótmæla fyrir framan alþingi.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur reyna að segja þjóðinni að núverandi stjórn beri nánast höfuðábyrgð á efnahagshruninu.

Ósvífnin og firringin hjá þessum boðberum græðginnar á sér sennilega fáar hliðstæður í stjórnmálasögunni.

Ber okkur ekki að læra eitthvað af þessu ?

hilmar jónsson, 28.8.2009 kl. 11:55

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hilmar: Ég er hrædd um að margir séu þegar búnir að gleyma því hverjir eru hinir eiginlegu hönnuðir og arkitekar Icesave og alls ruglsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2009 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband