Leita í fréttum mbl.is

"Veronica decides to lie"

Það er ekki nóg með að Berlusconi sé stórklikkaður pilsaeltir allur löðrandi í hormónum, heldur er konan hans (fyrrverandi) í meira lagi undarleg!

Hugsið ykkur perraháttinn, að neita orðrómi um framhjáhald!

Ég hef reyndar aldrei heyrt neinn ganga svona langt í forherðingu.

Allir, sem ég þekki og eru með "salada on the side" játa fúslega öllum ásökunum um framhjáhald alveg um leið og einhver svo mikið sem ýjar að því.

Hvaða funn er í að hoppa um á afleiðum/hliðarvegum ef enginn er til að velta sér upp úr því?

Tökum mig t.d.

Ég hef haldið reglulega framhjá mínum fjölmörgu eiginmönnum.  Aldrei nokkurn tímann hef ég lýst mig saklausa af því þegar (ef) þeir hafa spurt. Aldrei.

Ég lýg ekki að mínum löggiltu elskhugum - það er auðvitað ekkert annað en óheiðarleiki og ruddamennska.

Maður hefur sómatilfinningu þó lausgirtur sé og það með afbrigðum.

Andskotinn, ég er að fokka í ykkur, finnst svo merkilegt að það skuli teljast til tíðinda að fólk neiti framhjáhaldi.

Alveg: Veronica Lario, ástkær eiginkona mín, er það rétt að þú haldir framhjá mér, dúllurassinum þínum honum Berlusconi, elsku litla, sæta krúttinu þínu?  Ha Veronika? Gússígússígússi!

Hún alveg: Neiiii - ertu ekki að fokking kidda mig Berli?  Ég elska þig hormónavöndullinn minn.

Halló, það er kreppa, allt á leiðinni til andskotans og það er verið að velta sér upp úr þessu.

Mátulegt á ykkur að fá þetta brössoff frá mér fyrir að lesa þessa "frétt".

Farin að hitta elskhugann - eða væri á leiðinni i það ef ég ætti einn.

Take me to the limit one more time - lalalalalala!


mbl.is Neitar orðrómi um framhjáhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

En þú veist það að á Ítalíu er enn við lýði, að lögum samkvæmt þá má eiginmaður drepa eiginkonu sína ef að hún "viðurkennir" að hafa haldið framhjá.  -

Svo hún er nú kannski bara að reyna að halda sér á lífi konan. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.6.2009 kl. 20:12

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Og dóttir Cher vill verða karl. Gleymum kreppunni...hvað er að ske ??

hilmar jónsson, 12.6.2009 kl. 21:19

3 identicon

Þú getur drepið mig:):):):):)Love you

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 21:37

4 Smámynd:

Jiiii   

Talandi um "ekkifréttir" 

, 12.6.2009 kl. 21:48

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

hahaha

Sigrún Jónsdóttir, 12.6.2009 kl. 22:12

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 já thetta eru háalvarleg mál sem tharf ad hafa helst á forsídu  

María Guðmundsdóttir, 13.6.2009 kl. 06:38

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha Gússígússígússí Takk Jenný mín fyrir hláturinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2009 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband