Leita í fréttum mbl.is

Frankestein dýraríkis, epplingar og lyklar á Kletthálsi

Fréttir eru ekki alltaf fréttir í sjálfu sér heldur meira svona lýsing á stemmingu, jafnvel prívat skoðunum þess sem heldur á pennanum.

Á Ísafirði varð útlendur ökumaður fyrir því að loka bíllyklana inni í bíl þar sem hann var staddur á Kletthálsi.

Svona klúður hendir ekki Íslendinga.  Aldrei nokkurn tímann.  Við læsum ekki bíllykla inn í bílum og þá aldrei á Kletthálsum heimsins.

En ég fór á frábæran fyrirlestur hjá næringarþerapista í gær.

Varð margs vísari.

Veit til dæmis að spelt er ein af þeim mjöltegundum sem verður að vera lífræn til að það skili sér í gróða fyrir kroppinn.

Komst líka að því að venjulegt smjör (ekki mýkt) er hollara og betra en léttoglaggottið og systkini þess í hillunum í búðinni.

Við vindum okkur nú yfir í lífrænt ræktaða ávexti.

Ég keypti einu sinni lífrænt grjót, æi ég meina döðlur en þær eru auðvitað minni og harðari en risastóru spíttræktuðu döðlurnar.  Fékk að vita að ég hefði átt að leggja þær í bleyti. 

Þetta vissi ég ekki og notaði því þær lífrænt ræktuðu í mitt vikulega grjótkast við nágrannana.

eldrauð

Svo að eplunum.

Lífrænt ræktað epli, til dæmis, er lítið og aumingjalegt og það er vegna þess að epli eru ekki hlussustór og glansandi frá náttúrunnar hendi.  Þau eru búin til á rannsóknarstofum og eru Frankensteinar ávaxtaríkissins.

Mér létti, þessi horrorepli sem ég hef verið að kaupa í stórmörkuðum og hræddu úr mér líftóruna með stærð sinni og glansi eru þess vegna ekki epli, í sannri merkingu orðsins, þau eru stökkbreytingar,  meira svona epplingar.

Héðan í frá mun ég reyna að kaupa lífrænt ræktað þar sem því verður við komið.

Hver vill verða fyrir árás ógeðisepla sem gætu jafnvel farið að tala til manns frá ávaxtaskálinni.

Þessi epli sem ég kaupi fyrir jólin og má spegla sig í eru bónuð.

Ég meina það, kommon, maður ber ekki gólfefni á mat.

Nú verð ég leidd fyrir aftökusveit vegna þessara pælinga minna.

Það kemur einhver eplaheildsali og lemur mig í hausinn með kílói eða svo.

Gott að eplamálin í lífi mínu eru að komast á hreint.  Einu vandamálinu minna að díla við.

Farin að skoða í grænmetisskúffuna.

Hver skyldi vera Swartzenegger grænmetissins?

Í alvöru, vitum við hvað við erum að leggja okkur til munns?

Ha?


mbl.is Læsti bíllykla inni upp á Kletthálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég fór á næringafyrirlestur um daginn! Fróðleikur valt út um eyrun á mér þegar ég kom heim. Algjörlega nauðsynlegt að fara reglulega til upprifjunar.

Auðvitað síast eitthvað af þessu smátt og smátt inn endar með því að ég verð næringargúru sjálfrar mín ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 6.5.2009 kl. 10:29

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Vid á tessu heimili kaupum lífrænt ræktad eins og mögulegt er .Ég ætla ekki ad segja tér hversu mikill bragdmunur er á tessum vörum.Taktu T.d. lífræntræktadar gulrætur og svo hinar ljótu og finndu muninn.Mæli med rifnum gulrætum til fólks ef tad er t.d. ad hætta ad reykja eda langar ad grenna sig.Eiga rifnar lífræntræktadar í ískápnum tad er málid.

Med kvedju  frá Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 6.5.2009 kl. 10:55

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gulrótum:)

Gudrún Hauksdótttir, 6.5.2009 kl. 10:55

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Égkaupi alltaf íslenska smjérið en ekki eitthvað létt og laggott.  Eplin sem ég kaupi eru lítil og ekki glansandi, er ef til vill einhver millivegur þarna á milli Frankensteins og Einsteins?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.5.2009 kl. 12:00

5 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Eina leiðin til að vera viss um hvað maður setur ofan í sig er að rækta það sjálfur.

Emil Örn Kristjánsson, 6.5.2009 kl. 14:41

6 Smámynd: Rebekka

Prufaðu að hætta að reykja fyrst, svo kannski hafa áhyggjur af því að borða lífrænt 

Gróðinn af því að borða hollan mat fer fyrir lítið ef að tjöru er sogað niður í lungun strax á eftir! 

Rebekka, 6.5.2009 kl. 17:40

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég hef einungis borðað lífræn epli síðan ég setti jólaeplin í skál í lok nóvember,  þessi glansandi rauðu stóru,  en þegar ég var svo að taka niður jólaskrautið eftir þrettándann, þá sá ég að eplin voru einhverra hluta vegna óhreyfð í skálinni, en litu samt svona ljómandi vel út.  - Svo leið tíminn, og komið var fram að páskum, Dymbilvikan byrjuð og enn voru eplin glansandi í skálinni, ég að vísu þurrkaði af þeim um leið og ég þurrkaði af í stofunni. Þá áttaði ég mig á hverslags skelfing það var sem ég ætlaðist til að börnin borðuðu. Síðan kaup ég bara lífrænt.  Og lífrænar gulrætur frá Hæðarenda slá allt annað sælgæti út. Þú verðu að prófa þær.  Þetta með smjörið og rjómann er alveg satt, það eru hreinar afurðir. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.5.2009 kl. 19:36

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fyrirgefðu stafsetningarvillurnar hér og þar í skrifum mínum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.5.2009 kl. 19:37

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það er bara verst hvað smjörið er lengi hart!! Og svo ætla ég alls ekki að segja það sem ég hugsaði núna

Hrönn Sigurðardóttir, 6.5.2009 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband