Leita í fréttum mbl.is

Alkalegur metnaður

 hippie-girl

Í staðinn fyrir að blogga um hversu ósmekklegt mér finnst að mótmæla fyrir utan heimili manna (ekki sambærilegt og um daginn þegar einhverjir tóku göngutúr heim til dómsmálaráðherra og spjölluðu við hana), nú eða blogga um hvernig mér líður eftir að hafa fengið á kjaftinn með því að horfa á Silfrið, þá ætla ég að blogga um allt annan hlut og algjörlega fánýtan þar að auki.

Þetta er sjokkjöfnun.

Ég var að átta mig á því að ólíkt flestum, held ég, þá var ég aldrei ákveðin í að verða eitthvað ákveðið þegar ég yrði stór.

Man ekki eftir að hafa ætlað að verða rík, fræg, ferðalangur, læknir eða hjúkka.

Ég held að ég hafi siglt í gegnum æskuna lesandi annaðhvort bókmenntir eða námsefni.

Algjörlega metnaðarlaus krakki.

Svo rofaði til og ég var að pæla í að verða svona kona sem fer um heiminn og hjálpar börnum.

Annað komst líka á hreint, maður kemst ekki spönn frá rassi án æðri menntunar.

Ég átti nú eftir að taka góða pásu frá skólanum vegna anna en það er svo önnur og merkilegri saga sem má lesa um í mínum endurminningum sem koma út um jólin (jeræt).

En..

Þegar ég byrjaði að djamma hrundu framtíðarmarkmiðin fyrir lítið.

Í staðinn fékk ég mér nýtt markmið og það aðeins eitt og það var að verða nógu gömul til að ráða sjálf hvað ég væri lengi úti á nóttunni.

Rosalega metnaðarfullur krakkaandskoti þarna á ferð eða hitt þá heldur.

Ég lét mig dreyma um óheftan útivistartíma til að geta djammað og hangið með vinkonunum og lent í ævintýrum með sætum strákum.

Sko, þegar ég var að hugsa um þetta áðan þá brá mér smá.

Þetta er nefnilega svo rosalega alkalegur metnaður.

Kannski ekki skrýtið að ég hafi svo endað í meðferð löngu síðar.

Æi, ég dauðvorkenni þessari stelpuskömm sem var að kafna úr lífsþorsta.

Meiri verkunin og fyrirkomulagið.


mbl.is Mótmælendur enn í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Krakkar verða nú ekki mjög metnaðarfull er þau hugsa ekki neitt eins og þegar maður fer á gelgjuna Æ eða hvað þetta heitir.
Ég var úti í London að læra enskuna bara með því að vera selskapsdama (sko svo flott) en var svo ástfangin að ég var komin heim fyrir jól eignaðist Dóru mína og gifti mig það hjónaband entist í 2 ár, en við vorum samt alltaf vinir.
Knús til þín

Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 20:23

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Jenný, í nokkur skipti var farið og mótmælt  fyrir utan heimili hjá vini þínum Davíð Oddssyni og grýttu hús hans. Nú semur þú eitthvað fallegt blogg til stuðnings Davíð!

Sigurður Þorsteinsson, 5.4.2009 kl. 20:58

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég tel að mótmælin gegn dómsmálaráðherra hafi gengið full langt en vinnubrögðin gegn þessum sárafáu hælisleitendum voru þó algjörlega til skammar hjá ríkinu.

Hilmar Gunnlaugsson, 5.4.2009 kl. 21:26

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ójá! Ég man hvað ég hlakkaði til að verða nógu gömul til að vera eins lengi úti og mig lysti.....

...mig minnir líka að skömmu eftir að því takmarki var náð var það hreint ekki jafn spennandi!

En svona kona sem fer um heiminn og hjálpar börnum.... Hvort er hún fegurðardrottning eða prinsessa?

Hrönn Sigurðardóttir, 5.4.2009 kl. 22:08

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Milla: Góð.

Sigurður: Slakaðu maður, þú ert alveg á innsoginu alltaf hreint.  Mér finnst ekki viðeigandi að fara að prívatheimilum fólks, hver sem á í hlut.  Voðaleg Davíðsviðkvæmni er þetta.

Hilmar: Málefnið er gott, staðurinn til að mótmæla rangur.

Hrönn: Hún er bæði fegurðardrottning og prinsessa án titla.

En hún er fyrst og fremst dropp dedd gjorgíus hjúman bíing.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.4.2009 kl. 23:15

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hélt það einmitt....

Hrönn Sigurðardóttir, 6.4.2009 kl. 01:25

7 Smámynd: Auður Proppé

Ég ætlaði alltaf að verða mamma og tókst það.  Skál í boðinu.

Auður Proppé, 6.4.2009 kl. 04:29

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Jenný varstu ekki einhvern tímann beðin um að taka þátt í svona fegurðarsamkeppni?

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.4.2009 kl. 06:31

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Rosalega metnaðarfullur krakkaandskoti þarna á ferð eða hitt þá heldur.

Stundum geturðu næstum drepið mann Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2009 kl. 11:26

10 identicon

 Ég djammaði eins og mér sýndist,í marga daga ef það var partý þegar ég var skammarlega ung.Aklalegur metnaður minn kom snemma í ljós .Ég hékk meira að segja í húsi Fylkingarinnar,gerðist kommi og gekk í hermannafötum sem versluð voru í Sölunefnd varnarliðseigna þar sem Alfreð nokkur Þorsteinsson réð ríkjum.Ég hjálpa börnum í dag,þau eru að vísu sum á aldri við mig en þarfnast hjálpar eins og börn.Ég er fegurðardrottning engin spurning

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 2985794

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband