Leita í fréttum mbl.is

Djúsbókhald Theódórs

 lennongleraugun

Ég er í kreppufríi, fram að fréttum og þá leik ég mér að brauðbakstri og hangi yfir myndum af drukkinni Amy Winehouse og bláedrú Tinu Turner.

Svo fór ég að hugsa um fatnað.  Sem hefur verið eitt af mínum hitamálum í gegnum tíðina.

Ég man eftir að hafa verið fastur kúnni á Drengjafatavinnustofunni í denn hvar ég lét sauma á mig föt.  Enda ekki um auðugan garð að gresja í Reykjavíkurborg þar sem enginn var búinn að átta sig á því að börn yrðu unglingar en hoppuðu ekki beint í að verða litlar kerlingar og karlar.

Ég man eftir að hafa steðjað niður Bankastrætið í sérsaumuðu kápunni frá Drengjó, með Lennongleraugu, stífmáluð með hárið flaksandi í helvítis gaddi.  Til fótanna var ég í stígvélum sem náðu upp á mið læri og voru kölluð mellustígvélin af hlýlegum ættingja mínum sem nú er löngu dauður og óska ég honum til hamingju með það.

(Það má geta þess að sami ættingi kallaði mig kanamellu af því ég fór á ball í Stapann þegar Hljómar voru að spila.  Ak ei inn í Keflavíkurumdæmi ella skaltu mella kallast).

Svo var farið á Hressó.  Vér keyptum oss djúsglös á ellefu krónur og Teddi útkastari þessa veitingahúss, sat og fylgdist með að glösin tæmdust og henti okkur svo út, nú nema við ættum fyrir öðru.

Hugsið ykkur að vinna við að vera lifandi djúsbókhald?

Alveg: Taka status á þrjátíu djúsglösum jafnmargra unglinga.  Djöfuls karlinn er dauður, ég vona að hann hafi fengið skemmtilegri verkefni en unglingaofbeldi á himnum.

Og nú spyr einhver sem hefur ratað inn á þessa síðu til að lesa lærða grein um Tinu Turner: Hvað kom þessari nostalgíu af stað hjá konunni?

Jú, það skal ég segja ykkur.

Ég er löngu hætt að láta sauma á mig föt á Drengjó, mellustígvélin löngu ónýt og ég hef engan hug á að endurnýja þau.  Né heldur kynnin af Hressó og sykurdjúsnum sem þar var í boði.

Það var nefnilega þá, núna er núna.

En Tína krúttið, þessi frábæri listamaður er enn í hnébuxunum sem slógu í gegn í eitís.

Halló, hoppa inn í nútímann.

Ég er að berjast við að halda mér þar.

Úje


mbl.is Tina Turner enn í fullu fjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þá veit ég hvar við höfum hittstststst í Litlu Drengjafatavinnustofunni.  Þær gerðu allt fyrir mig, saumuðu á tölur, styttu og settu bætur á gallabuxurnar hans Egils ( þar til ég fann smile merkin sem hægt var að strauja yfir gatið). 

Þær gjörsamlega björguðu lífi mínu, ég fæ nefnilega útbrot ef ég snerti nál og tvinna, sver´ða.

Tina Turner er í miklu uppáhaldi hér á heimilinu, sko ekki mér heldur hinum sem liggur nú eins og stofustáss hér í sófanum í sétteringu við púðana.

Ía Jóhannsdóttir, 15.1.2009 kl. 16:57

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Aha kreppan og að leita í minningasjóðinn það gerir mér bara gott (í meðalhófi:)  Takk fyrir, gaman að heyra þetta með Drengjafatvinnustofuna.

Tveir strákar héldu mér uppi - þar sem ég hékk í hálfopnum grænum glugga á Hótel Hveragerði 1964 eða´65 Inni var beatið, Hljómar spiluðu þar og ég var 12, eða 13 ára. 

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 15.1.2009 kl. 17:15

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Rosalega hefur þú verið flott þegar þú steðjaðir þarna niður Bankastrætið í þessari múnderingu  Ég sveitastelpan hefði fallið í stafi  og gapað opinmynt af aðdáun

Sigrún Jónsdóttir, 15.1.2009 kl. 17:19

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Man sko vel eftir Drengjafatavinnustofunni. Tvær ferlega skrítnar kerlingar en flinkar að sauma.

Helga Magnúsdóttir, 15.1.2009 kl. 17:44

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Drengjafatavinnustofan hvað??? ..

Sorry, kannast ekki við þetta - man eftir Vinnufatabúðinni, það er svona helsta orðið sem mér dettur í hug sem er líkt þessu.

Man eftir yndislegum Hressó ferðum með mömmu og þessari yndislegu rjómatertu með möndluspænunum og heitu súkkulaði með rjóma, yummi

Gaman að svona nostalgíufærslum, Núið er stundum fullerfitt - þó ráðlagt sé að lifa í því.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.1.2009 kl. 17:47

6 Smámynd: Hulla Dan

Hulla Dan, 15.1.2009 kl. 18:09

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvernig geturðu munað þetta allt?

Vaá ég er eitt undrunarmerki í framan.

 Helv... karlinn á hressó, það má nú segja! Og að geta munað nafnið á honum er magnað. Hann er ímynd þess alklikkaðasta sem ég hef barið augum um æfina.

Ég var nær búin að gleyma gula djúsinum og hvað þá hvað hann kostaði, man bara eftir Kollu og síðar undrunina þegar Snorri póstur krækti í hana!

Ó je það var þá góa!

Edda Agnarsdóttir, 15.1.2009 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985793

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband