Leita í fréttum mbl.is

Óðinn og Þór klikkuðu báðir

Ég vaknaði áðan, nuddaði stírur úr augum og sendi stífa beiðni til Óðins og Þórs.

Óðinn og til vara Þór, ekki láta mig ramba á ógeðisfréttir af spilltum embættis- eða stjórnmálamönnum á þessum mánudegi þegar átta dagar eru til jóla.

En auðvitað eru þessir guðir jafn miklir ónytjungar og kollegar þeirra.

Ég er ekki tilbúin að blogga um fæðisgjaldið á spítölunum alveg strax.  Hef ekki áhuga á að deyja úr hjartaáfalli fyrir hádegi og ekki búin að greiða mér.

En á dv.is gengur að lesa um Sigurjón Árnason fyrrverandi bankastjóra og núverandi frílanser í bankamennsku sem segist vera að koma sér fyrir með ráðgjafafyrirtæki í húsnæði Landsbankans (sem við eigum krakkar þið munið).  Hann er ekkert að vinna hjá bankanum, heldur fyrir sjálfan sig (fyrirgefðu en varstu ekki alltaf að því?) en vonast auðvitað eftir að fá verkefni þar eins og annars staðar.

Við erum ekki hálfvitar kæri fyrrverandi bankastjóri með skít og skömm.

Bílinn þinn hefur staðið þarna frá því eftir fall.

Þið sem eigið að hugsa um hag þjóðarinnar sem hefur verið rænd milljörðum á milljörðum ofan og ætlið að bregðast við því með því að leggja fæðisgjald á inniliggjandi sjúklinga, skammist þið ykkar, setjið nálgunarbann  á fyrrverandi gróðærisbankastjóra og látið þá ekki koma nálægt bönkunum.

Það er krafa sem við ætlumst til að verði fylgt eftir.

Þvílík djöfuls spilling.

Sigurjón hér.

Og ekkert andskotans falalalalalala núna.

P.s. Fréttin er gömul og mun ekki hafa verið birt vegna þrýstings málsmetandi manna.  Hvað um það enn stendur bíll Sigurjóns við Landsbankans þanning að krafan stendur.  Út með Sigurjón.

Út með allan pakkann af spillingarliðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jæja... þurfa þá þeir sem ekki hafa efni á að borga fæðið á spítalanum að svelta eða biðja fjölskyldu og vini að smygla til sín mat... ef hann er þá til...?Æi, ég er svo þreytt á öllu þessu andskotans rugli út í gegn...................................

Jónína Dúadóttir, 15.12.2008 kl. 09:21

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kíktu líka á snilldargóðan leiðarann eftir Jón Trausta á dv.is.

Ég var líka að blogga um aðför að sjúklingum! Ætli þeir finni ekki fleiri skúringakonur til að reka úr starfi? Eða fleira eldra fólk til að sparka í? Er búið að níðast nóg á langveikum börnum? Er fullreynt að ekki sé hægt að skera aðeins meira niður þar?

Guðríður Haraldsdóttir, 15.12.2008 kl. 09:30

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvern halda þeir að þeir gabbi??

Lít ég heimskulega út?? 

Hrönn Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 09:47

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur þetta er að verða gott.

Ég er á garginu hérna.

Og fæðisgjaldið.  Var að blogga um það.

Búin að lesa leiðarann Gurrí.  Les hann reyndar alltaf.

ARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2008 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985804

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband