Leita í fréttum mbl.is

Álfheiður spyr (og ég líka)

Í grein í Mogganum í dag spyr Álfheiður Inga spurningar sem ég held að alla fýsi að fá svar við.

Hverjir gáfu fyrirmæli um hertar innheimtuaðgerðir hjá Intrum?

Nú er það þannig að Landsbanki, Sparisjóðirnir og Intrum Justitia eru skráðir eigendur Intrum á Íslandi og það skýtur nokkuð skökku við að fyrirtæki í eigu Nýja Landsbankans og Sparisjóðanna sé að bjóða vinskiptavinum sínum aukna hörku í innheimtuaðgerðum á sama tíma og stjórnvöld fara fram á að ekki sé gengið mjög nærri heimulunum í landinu á þessu stigi málsins.

Hver andskotinn er í gangi spyr ég og ég þakka Álfheiði fyrir að spyrja.

Spurningin er hvort henni verður svarað.

Það virðist ekki vera á danskorti ríkisstjórnarinnar að svara einu eða neinu nú um stundir.

Ég neita að trúa því fyrr en ég tek á að Intrum fái leyfi til aukinnar aðgangshörku gagnvart skuldurum á þessum svörtu tímum þvert ofan í loforð stjórnvalda.

Sjá nánar hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segðu, nógu finnst mér þeir nú harðir á stundum.  Takk fyrir innlitið á mína síðu, við erum sko lífsseigar í bloggheimum, þó ert þú nú iðnari en ég, ég á til að detta í leti, en ég kem alltaf aftur.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 17:35

2 identicon

Þú ætlast þó ekki til að aðaláherslan verði lögð á að bjarga skussunum Jenný?

Konni (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 17:40

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Á sama tíma og stjórnvöld fara fram á að ekki sé gengið mjög nærri heimilunum í landinu á þessu stigi málsins hækka þau stýrivexti og lama þannig atvinnulífið í landinu! Að ekki sé minnst á að ekki er hægt að fá vörur keyptar til landsins sökum þess að engar greiðslur til útlanda eru leyfðar! Sem þýðir að atvinnulífið er í andaslitrunum sökum birgðaskorts!

Er þetta ekki bara enn eitt dæmið um tvískinnungshátt þessarar ríkisstjórnar? Þarf þetta að koma nokkrum á óvart?

Það er kannski alveg eins gott að klára málið bara hratt og örugglega. 

Hrönn Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 17:45

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er satt sem hér kemur fram, hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir, og ekki fá landsmenn svör hjá ráðamönnum.  Er nema von að fólki sé farið að ofbjóða ?  Svei því bara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2008 kl. 17:55

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Zuzzum&zweiattann á 'lögfræðilegann' handrukkaraskríl þjóðarinnar.

Steingrímur Helgason, 2.11.2008 kl. 19:51

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ógeð

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.11.2008 kl. 19:56

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

nú er tíska að mótmæla. nú ætti fólk að kúka í poka. setja hann í umslag og pósta á Intrum.

Brjánn Guðjónsson, 2.11.2008 kl. 20:44

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Skussunum, Konni?  Eru allir þeir sem voru gabbaðir til að taka myntkörfulán núna orðnir skussar?  Eða varstu hæðinn? 

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:11

9 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sá þetta á Eyjunni og tek ofan fyrir Álfheiði!

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.11.2008 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband