Leita í fréttum mbl.is

Ég elska alla femínista

proud tob fem

Ég er oftast sammála Steingrími J. enda finnst mér hann einn af heilsteyptari stjórnmálamönnum sem við eigum.  Svo er hann svo vel máli farinn sem skemmir ekki fyrir heldur.

Í Silfrinu áðan blés maðurinn mér baráttuanda í brjóst eftir hálfgerða depurð og vonleysi undanfarna daga.

Ég elska jakkafatafemínista.  Ég elska alla femínista, líka í kraftgöllum með lambhúshettu, sko hugmyndafræðilega, ekkert persónulegt.

Án gamans þá fagna ég því þegar stjórnmálamenn draga fram í umræðuna skortinn á jafnrétti í þessu þjóðfélagi, eins og t.d. á konum í lykilstöðum í samfélaginu.  Raddir kvenna heyrast ekki, viðhorf þeirra eru ekki með í ákvarðanatökum og því eru lausnir einsleitar eftir því.

Það þarf svo sannarlega að bæta úr enda var Jóhanna að skamma nýju ríkissbankana en þar eru 5 konur af þrjátíuogeitthvað toppum og stjórnarmönnum.  Ha?

Svo þarf að kjósa á nýju ári, þar er ég sammála formanninum.

Hvort það verður einhverjum mánuðum fyrr eða seinna má kannski liggja á milli hluta.

Ég er afskaplega hrifin af hinu blandaða hagkerfi þar sem velferðarmálin eru á ábyrgð ríkisins.

Við megum aldrei lenda á þessum ömurlega stað aftur, þá meina ég þeim stað sem við erum stödd á núna.

Þetta nægir okkur næstu aldir takk fyrir.

En hvað um það, ég held að margir séu skelfingu lostnir við að stjórnin springi þá og þegar.  Bara búmm bæng upp í loft.  Kannski á meðan við sofum í nótt.  Eins saklaus og okkur er ætlað að verða miðað við aldur reynslu og fyrri störf.

Það er að minnsta kosti bullandi ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar.

Lára Hanna var flott í Silfrinu.

Og tókuð þið eftir kraftaverkinu í þættinum?

Í fyrsta skipti í öll þessi ár sem ég hef horft á Silfrið þá var kurteisi í hávegum höfð á vettvangi dagsins.

Það greip enginn fram í svo fólk fékk að tala óáreitt.  Þvílík dásamleg tilbreyting.

Ég hélt að ég ætti ekki eftir að upplifa önnur eins undur og stórmerki.

Kannski á að hafa max einn stjórnmálamann á vettvanginum.  Sigrún Elsa er frábær og kurteis kona, Lára Hanna er bestust og strákarnir stóðu sig með prýði.

Segið svo að það séu ekki góðir hlutir að gerast.

Mig langaði ekki til að grýta mér í vegg í eitt einasta skipti allan þáttinn.  Né garga mig hása.  Ha?

Annars er ég í ástar/haturs við Silfrið.

Ég sveiflast á milli tveggja póla;

Can´t live with it - can´t live without it.

Það er þess vegna sem ég hef sjaldan misst úr þátt.

Lífið er unaður og þetta er gleðijöfnun dagsins.


mbl.is Vill að kosið verði í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarkey Gunnarsdóttir

Frábær færsla hjá þér. Formaðurinn var flottur og gat ekki endað viðtalið á frábærari hátt. Það á enginn flokkur í dag svo feminískan formann sem þorir að segja það upphátt.

Tek undir með þér varðandi kurteisina - var mjög áberandi og gerði það að verkum að maður hugsaði - já Egill getur þetta. ;-)

Bjarkey Gunnarsdóttir, 2.11.2008 kl. 14:56

2 Smámynd: Tori

Það tala allir eins og einhver enda punktur sé kominn í þessu ástandi. En svo er ekki. Við eigum langt í land. Hvernig verða ágreiningsmálin við Evrópuþjóðirnar, Bretland, Holland, fleiri? leyst?

Farsællega fyrir okkur eða?

Þjóðstjórn allra flokka held ég að sé nauðsynleg næstu tvö til fjögur árin til að tryggja að við einbeitum okkar í að halda íslensku þjóðfélagi til frambúðar. Flokkakarp og kosningarbarátta á þessu stigi þá er verið að eyða kröftunum í vitlausa hluti.

Tori, 2.11.2008 kl. 15:20

3 identicon

Formaðurinn var flottastur, eins og alltaf!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 15:52

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þú ert væntanlega að vísa tIl lokaorða hans. vissulega tek ég undir þau. það vantar fleiri konur að taka þátt. þó er það algerlega á þeirra ábyrgð að trana sér fram.

talandi um jafnrétti. ég heg gegn um árin haft ýmis samskipti við embætti sýslumanns. ég giftist þar. ég skildi þar og hef þurft að þynglýsa einu og öðru.

ég gef mér að einhverir karlmenn starfi þar, en ég hef þó ekki séð þá enn.

hvar sem ég kem og kvern sem ég tala við þar. allt eru það konur.

er tilviljun að sýslumaður úrskurði forsjárlausum feðrum í óhag? er tilviljun að ólögin sem kallast Barnalög séu alltaf ósanngjarnt  túlkuð forsjárlausum feðrum í óhag.

meðan feministar vilja ekki taka þetta í umræðuna, geta þær étið sk..

Brjánn Guðjónsson, 2.11.2008 kl. 16:53

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

en tók eftir þessu ekki-frammígripum. gerði þáttinn pínu eins og 70's Kastljós

Brjánn Guðjónsson, 2.11.2008 kl. 17:02

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Skemmtileg færsla, takk fyrir mig

Jónína Dúadóttir, 2.11.2008 kl. 17:08

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já thetta er vonandi allt i áttina hafdu gott sunnudagskvøld Jenný

María Guðmundsdóttir, 2.11.2008 kl. 17:13

8 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

Konur í lykilstöðum í þjóðfélaginu !

Var ekki Margareth Thatcher í lykilstöðu á sínum tíma í Bretlandi  ?

Var Járnfrúin KONA ?

Eða skiptir það ekki máli ?

Bara ef hún er kona, þá er allt okei ?

Máni Ragnar Svansson, 2.11.2008 kl. 19:29

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Að sjálfsögðu ekki, Máni, hún verður að hafa rétta stefnu og vera í réttum flokki, það er að segja VG!!!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.11.2008 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband