Leita í fréttum mbl.is

Halló - ekki neinar smá fréttir

Hérna er stórfrétt sem lætur lítið yfir sér.  Undarlegt.

Ráðherrar Samfó lögðu fram bókun á ríkisstjórnarfundi þar sem þeir segja Davíð Oddsson, formann stjórnar Seðlabankans, alfarið starfa í umboði Sjálfstæðisflokks!

Halló - þetta eru ekki neinar smá fréttir.

"Sigurður Líndal, lagaprófessor, segir við blaðið að bókun sem þessi sé afar sérstök og beri vitni um alvarlegan ágreining. Þegar slíkur ágreiningur sé uppi sé undarlegt að fólk sætti sig við slíka stöðu án þess að krefjast breytinga."

Ég skil ráðherra Samfó þræl vel, Davíð er ekki til samstarfs hæfur eins og flestir vita.

En er þetta hægt?

Ríkisstjórnin samanstendur af tveimur flokkum, varla er hægt að segja sig frá einstökum stofnunum eða hvað?

Ég spyr og spyr enda eru sífellt hlutir að gerast hérna þessa dagana sem eru án fordæmis.

En er ekki einfaldast að hætta þessu jukki, bóka þetta og bóka hitt?

Ríkisstjórnin er varla stjórntæk þegar svona er komið.

Því segi ég, hætta að bóka, mótmæla, tuða og stöffast áfram í handónýtu hjónabandi.

Þetta er eins og samband hjóna sem er að fara í vaskinn.

Ef eiginmaðurinn myndi segja við frúna; Gunna ég tvæ hendur mínar af syni okkar honum Villa, hann hlýðir engu.  Hann er héðan í frá alfarið á þínum vegum! 

Fíflaganur eretta.

Kjósum.

Jájá.


mbl.is Samfylking afneitar Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sjáðu til mín ljúfa.

Smjörklípur eru margrar gerðar.

Þessi er tilkomin, vegna þessa að Davíð sagði frá IMF skilyrðunum um 18% vexti en INGIBJÖRG hafði LOGIÐ hellings steypu um allt annað.

Allt frá því,að þetta væri undan rifjum Davíðs----- les Seðlabankans--- (þó þar starfi hellingur af fólkki sem er með allskonar gráður í Hagfræði og hinu og þessu er það alltaf Dabbi kóngur sem allt illt gerir, jafn heimskuleft og svoleiðis Kremlalógía er) að því , að það hafi verið ákvörðun Ríkisstjórnar --hjálparlaust,.

Svona bulli sjá allir við.

Auðsýnilega þú, þó svo að þú verðir seint í aðdáandahóp eða klappstýruliði Davíðs.

Með Sunnudagskveðju o gblómasendingu

(svona í huganum)

Miðbæjaríhaldskrúttið

Bjarni Kjartansson, 2.11.2008 kl. 10:52

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Þessir ráðherrar hefðu átt að bóka að það sé DO að kenna að nú þurfa þeir að borga fyrir matinn á Saga Class.

Júlíus Valsson, 2.11.2008 kl. 10:57

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Eftir nokkur ár verður þetta stjórnarsamstarf notað sem söguþráður í farsa sem slær öll met í leikhúsunum

Eigðu góðan sunnudag Jenný

Huld S. Ringsted, 2.11.2008 kl. 11:20

4 identicon

Kratar undirbúa nú flóttann af miklum móð.

"Þegar á bjátar má alltaf treysta á uppgjöf Samfylkingarinnar"

101 (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 12:01

5 Smámynd: Tína

Það hefur því miður aldrei farið vel (ekki svo ég viti) að hafa vinstriflokk í stjórn. Sorry en sagan bara sýnir það.

Annars langaði mig bara að senda á þig hjartansknús krútta.

Tína, 2.11.2008 kl. 12:21

6 identicon

Tina. 

Eftir minni skilgreiningu á hægri og vinstri þá er Samfó ekki vinstri flokkur. Þetta er flokkur sem hefur á stefnu sinni hverju sinni það sem ætla má að auki vinsældir.  Nú er það að vera á móti Davíð og morgun eitthvað annað. 

Flokkurinn er í stjórn á alþigi en í stjórnarandstöðu úti á götu þessa dagana. 

Skoðaðu söguna. Nóg var að lesa forsíður dagblaða hér áður til að vita á hvað Samfó legði áherslu vikurnar á eftir.

Þetta er kölluð tækifærismennska og á ekkert skilt við vinstri. 

101 (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 12:51

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Er stjórnin ekki bara að falla? Þetta eru ekki fyrstu merkin um ágreining. Það væri ótrúlegt ef hún stæði þetta fárviðri af sér.

Guðríður Haraldsdóttir, 2.11.2008 kl. 13:17

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm. Skyldi Dario Fo hafa skrifað handritið að þessu?

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2008 kl. 13:29

9 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ef rétt reynist þá segi ég: alltaf sami undirlægjuhátturinn hjá Samfylkingunni.   Eru þeir ekki í meirihluta spyr ég?   Það er auðséð að þeim langar í kosningar þar sem kannanir benda til að þeir komi vel út. Allt í fínu að kjósa en þá verða þessir flokkar tveir að axla sína ábyrgð og ættu báðir að hvíla í næsta leik.   

Merkilegt samt, þar sem Samf. er jú í ríkisstjórn en þykjast hvergi koma nálægt einu eða neinu.   Ef allt væri nú Davíð að kenna þá væri þetta sko ekkert mál en svona pólitík er ekki svona einföld og ég held að fólk eigi eftir að sjá hvaða áróður er í gangi.  

Marinó Már Marinósson, 2.11.2008 kl. 13:36

10 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ef þessi bókun ráðherra Samfylkinarinnar er bókun án aðgerða þá er hún marklaus.
Ef þeir gera ekki neitt situr Davíð þarna einnig í umboði Samfylkinarinnar.
Það vita það allir að Geir mun EKKI víkja Davíð - það er alveg klárt mál.

Óðinn Þórisson, 2.11.2008 kl. 13:45

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eina sem ég veit er að það þarf að breyta ástandinu!! Þetta gengur ekki svona!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 14:17

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það sér það hver meðalhúsmóðir....

Hrönn Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 14:18

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Neyðarstjórn strax, kjósa í vor

Sigrún Jónsdóttir, 2.11.2008 kl. 14:35

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kjósa í vor ekki spurning

Ásdís Sigurðardóttir, 2.11.2008 kl. 14:43

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyr, heyr, við kjósum á nýju ári.

Þá er það ákveðið.

Sendi mail niður í stjórnarráð og læt vita af ákvörðun þessa fundar.

Úff ef þetta væri svona einfalt.

Nei annars, ekki alveg svona einfalt.

Takk fyrir frábæra umræðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.11.2008 kl. 14:46

16 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Tína, ég veit ekki til þess að ein einasta vinstristjórn hafi komið okkur í þvílíka klípu og við erum í núna.  Nefndu mér eina...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:16

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Það er búið að syngja þennan vinstri söng svo lengi í eyrun á fólki, að vinstri flokkarnir geti ekki komið sér saman, sundrung og læti, gangi ekki upp, að það er orðinn sannleikur hjá fjölda fólks.

Svona má hamra járnið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.11.2008 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.