Leita í fréttum mbl.is

Áföll í hita leiks

 ofbrún

Jössess hvað maður er búinn að vera intúitt í pólitíkinni.  Varla getað sofið, borðað eða hugsað. Eða svona næstum því.

Og þegar þannig er ástatt þá gerast hlutir og ég er að segja ykkur satt og alls ekki að ljúga.

Í gærkvöldi var ég á hlaupum, man ekki af hverju en sennilega hef ég verið að passa mig á að missa ekki af fréttum úr borginni í sjónvarpinu.

Og hendurnar á mér voru ó svo þurrar að það brakaði og brast í þeim vegna næringarskorts.

Ég stökk inn bað og makaði kremi á mínar fögru meyjarhendur og það sem umfram var af kremi fór í andlitið á mér.

Svo stökk ég inn í stofu mundi að ég var búin að lofa að hringja á ákveðinn stað, greip símann (eða það hélt ég) og það tók dálítinn tíma fyrir mig að fatta að það er ekki hægt að hringja með fjarstýringunni. Hm..

Og í morgun voru hendurnar á mér brúnflekkóttar og andlitið líka.

Hver í andskotanum fékk mig til að kaupa brúnkukrem? 

Já og ekki orð...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 12:42

2 identicon

Hahahahaha.Ég þekkti eina sem "misnotaði"brúnkuklúta og var kölluð skjalda í einhvern tíma á eftir.hahahahaha.Fara í sund og sólbað

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 12:51

3 Smámynd: Hulla Dan

ÓMG  

Þú ert ágæt!

Góða helgi.

Hulla Dan, 15.8.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 15.8.2008 kl. 13:03

5 identicon

Þú getur alveg farið að anda rólega. Enda blágrænn himinn yfir borginni og borgarstjóri með bein í nefinu tekinn við. Til hamingju með meirihlutann...

Sigurður Einarsson (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 13:27

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

AAAAAhahaha ooo hvað ég held að þú sért mikið krútt núna, svona skjöldótt og sæt.

Mamma gerði svona um árið nema að kremið var háreyðingarkrem

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 15.8.2008 kl. 13:32

7 Smámynd: Brynja skordal

úje nú ætlar mín að vera flott um helgina röndótta mær vonandi verður helgin þér ljúf og slök

Brynja skordal, 15.8.2008 kl. 13:42

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Sem alvöru karlapi, er samúð mín mezt með fjarstýríngunni brúnkukremuðu...

Steingrímur Helgason, 15.8.2008 kl. 13:54

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

umhleypingar síðustu daga alveg búnar að fara með þig.

svo er bara allt í plati. sjáðu bara hér.

Brjánn Guðjónsson, 15.8.2008 kl. 14:10

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 14:22

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Uss, og svo voru þetta bara endurteknar fréttir, sem við höfum margoft séð áður, kunnum m.a.s. frasana utanbókar:  Heilindi, vinskapur, hagur borgarbúa o.s.frv.

Brúnhvíta hetjan mín.....

Sigrún Jónsdóttir, 15.8.2008 kl. 14:27

12 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

 Ég sprakk núna

Takk fyrir það, ég þurfti á því að halda.

Elísabet Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 15:14

13 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú ert nú meiri krúttan!

Edda Agnarsdóttir, 15.8.2008 kl. 15:40

14 Smámynd: Laufey B Waage

.

Þú verður greinilega að leggjast í klór. 500 metra kafsund dugar vonandi. 

Laufey B Waage, 15.8.2008 kl. 16:46

15 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég var sveitt í allt gærkvöld við að halda úti fólki í að gera allt vitlaust í borginni, troða fjarstýringunni á símaþíngi, troða brúnkukremi í Atrixtúpuna og handáburðinum í tannkremstúpuna................

Tókst greinilega allt vel..nema þú hefur svindlað og ekki nennt að bursta tennurnar ;)

Heiða B. Heiðars, 15.8.2008 kl. 17:19

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

In LoveInnlitskvitt og ósk um góða helgi

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.8.2008 kl. 18:20

17 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Úpps, líklega hefðir þú borið kremið aðeins þynnra og jafnar á ef þú hefðir vitað hvað þú varst með í höndunum, er það ekki? Fáum við ekki að sjá mynd????

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.8.2008 kl. 18:22

18 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl kæra Jenný, þú ert einstök.  Takk fyrir frábæran pistil.

Góða helgi.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 15.8.2008 kl. 18:44

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

In Love stendur ekki til að koma með myndir af heimsókn barnabarnanna Olivers og Jennýjar???

Ásdís Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 18:54

20 Smámynd: Tiger

 Brilljant færsla Jenný, like always.

Kom þó aðallega til að afsaka yfirgang ákveðinnar Lólítu (opnast í öðrum glugga)! Henni hefur nú verið settur stóllinn fyrir dyrnar og lesinn pistillinn!

Hafðu ljúfa og fallega helgi mín kæra...

Tiger, 15.8.2008 kl. 19:13

21 identicon

Ha, ha, ha, ha    þið yrðuð góð saman þú og spúsi minn fréttafíkillinn!!!  ha,ha,ha 

Edda (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 21:20

22 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Úpps þú ert aldeilis flott núna  Já,þessi stjórnmál geta aldeilis komið öllu í rugl

Katrín Ósk Adamsdóttir, 15.8.2008 kl. 22:20

23 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þetta hefur auðvitað verið eðalkremið Banana Boat frá Jens!?

Mjög innihaldsrík kveðja hér hjá S.E. en hann heldur líklega að fólk sé fífl og hefur jú rétt fyrir sér um einhverja.

Magnús Geir Guðmundsson, 15.8.2008 kl. 22:34

24 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

 Jii hvað maður kannast vel við svona fréttafíkla!!!!!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.8.2008 kl. 22:54

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LG: Nákvæmlega, híhí.

Magnús Geir: SE er örugglega litblindur.  Liturinn á himni yfir borg er blóði drifinn.

Tiger: Vissi að Lolíta var feik.  Hehe.

Myndir af Oliver settar in fljótlega og takk öll fyrir frábær komment.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.8.2008 kl. 23:00

26 Smámynd: Jens Guð

  Jenný,  Maggi fer villu vegar þegar hann heldur að þetta hafi verið brúnkukrem frá mér.  Ég skal láta þig fá alvöru krem.  Ég fletti póstfangi þínu upp í símaskránni og redda þér kremi sem þú verður ánægð með ásamt upplýsingum um hvernig á að umgangast þau.     

Jens Guð, 15.8.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985768

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband