Leita í fréttum mbl.is

Rölt niður Minningagötu

Í hitanum og beinverkjunum í dag vissi ég ekkert hvað ég átti að gera af mér.

Og svo datt ég inn á vef Ljósmyndasafns Íslands og þar gott fólk, komst ég í feitt.

Æska mín lagði sig fyrir framan mig í svarthvítu.  Rifjaði upp það sem ég var búin að gleyma úr umhverfinu og ég fór í heiftarlega nostalgíu.

Einhverra hluta vegna er ofboðslega mikið til að myndum úr Vesturbænum, af mínum slóðum.

En þetta var ekki bara gleðileg upprifjun.

Ég sá myndirnar af öllum kömpunum, kofunum og hreysunum sem margir bjuggu í á þessum árum.

Kamp Knox

untitledd

var braggahverfi steinsnar frá mér.  Þar bjó t.d. Ásta Sigurðardóttir rithöfundur og fleira merkt fólk, en á þessum tíma voru fordómarnir miklir og mér var harðbannað að stytta mér leið í gegnum kampinn.

Pólarnir

pólar

Þeir stóðu við Flugvallarveg á leiðinni út í Nauthólsvík.  Það voru skelfileg hreysi og allt fullt af barnmörgum fjölskyldum.  Sagan segir að þegar Danakóngur hafi þurft að keyra þarna framhjá hafi framhlið Pólanna verið máluð og hænur settar í gluggana.  Hænsnahús þótti eina réttlætingin fyrir húsinu því.

Höfðaborgin

hofdaborg

Þessi hús stóðu þar sem Sparisjóður Vélstjóra stendur núna, eða gegnt Höfða.  Einu sinni þvældist ég heim með stelpu sem átti heima hérna og ég hef aldrei séð eins lítil húsakynni fyrir 8 manna fjölskyldu.

Melabragginn

melabraggi

Þessi stóri hryllilegi braggi var við hliðina á ísbúðinni á Hjarðarhaga og við vorum skíthrædd krakkarnir af Hringbrautinni að koma nálægt honum vegna mögulegra hrekkjusvína.

Merkilegt hvað fordómarnir voru sterkir, hræðslan við fátæktina skelfileg.  Líftóran var hrædd úr mér varðandi braggahverfin.  Þangað átti maður ekkert erindi.

En auðvitað ólu braggahverfin af sér mæta Íslendinga og prýðisfólk.

En ein og amma mín sagði: Það ætti ekkert barn að alast upp í saggafullum bragga og kvíða morgundeginum.

Svona er nostalgían.

Mér finnst fínt að minna mig á hversu stutt er síðan eymdin var svona mikil í Reykjavík.

Þessu langaði mig að deila með ykkur dúllurnar mínar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Elsku Jenný mín:Ennþá er eymd, sálarangist og þaðan af verra! Bara í fínni umbúðum!!

Himmalingur, 18.6.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk fyrir það!

Ég spjallaði við eina fyrir einhverju síðan. Upp úr kafinu kom að hún ólst upp í braggahverfinu í Laugarnesinu. Man ekki hvað hún sagði að það hefði heitað. Ég var svo hissa því mér fannst hún svo ung. Svo rann upp fyrir mér ljós......

....það er ekkert langt síðan fólk bjó svona! 

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2008 kl. 21:18

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit allt um það.  En ég er einfaldlega að benda á hversu stutt er síðan þetta var SVONA.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 21:19

4 Smámynd: Himmalingur

Veit elsku Jenný mín! Gaman að sjá þessar myndir! Synd að leikmyndin úr Djöflaeyjunni skildi rifin niður!

Himmalingur, 18.6.2008 kl. 21:25

5 identicon

Frábærar myndir.  Ég man nú ekki sjálf eftir neinum bragga nema Hafnarbíói.  Þar var okkur blaðburðarbörnunum boðið í bíó.  Gleymi aldrei "Dr. Goldfoot and the Bikini Machine".  Sá hana í bragganum í boði Vísis.

Og á meðan ég man;  Ég er orðin amma....

Elísabet Ronalds (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 21:30

6 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Enn á kona sem er með 38.78965 stiga hita og drepast úr beinverkjum, túrverkjum og með svimaköst ekki frekar að vera í rúminu með heitan tebolla enn röltandi  hágrátandi um bæinn með fullan hausinn af ranghugmyndum um hvað hún var heppin að sleppa lifandi úr fátæktinni og matarleysinu hérna fyrir um 50 árum síðan.

S. Lúther Gestsson, 18.6.2008 kl. 21:38

7 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir þetta. Mamma heitin bjó í Kamp Knox, ég á bækur frá þeim systkinum sem eru merktar með því heimilisfangi, ég ætla að fá að stela amk þeirri mynd hjá þér og geyma hana. Ég fékk tár í augun við að sjá Kamp Knox, vesalings mamma mín.

Hvar gastu fundið svona myndir ?

Ragnheiður , 18.6.2008 kl. 21:41

8 Smámynd: Himmalingur

Heyrðu það er rétt! Takið ekkert mark á síðustu færslum Jennýar!

Himmalingur, 18.6.2008 kl. 21:42

9 Smámynd: Ragnheiður

Jenný með hita er mörgum sinnum klárari en sumir aðrir með engan hita

Ragnheiður , 18.6.2008 kl. 21:49

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég man vel eftir þessu öllu saman - og móralnum - nema Melabragganum. Hvenær ætli hann hafi verið rifinn?

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.6.2008 kl. 21:50

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég mun  aldrei geyma Kam  knox þar var ég gestur þegar ég var lítil telpa. Mamma mín og ég gistu þarí nokkrar nætur. En svo fluttum við ´til Reykjarvíkur og á framanesveg.Ég fór í skóla í melaskóla.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2008 kl. 21:55

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kamp nox átti þetta vera fyrirgefðu  villurnar alltaf.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2008 kl. 22:01

13 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Mamma var einmitt að tala um þetta, í sambandi við bókina um Bíbí.  Stelpa úr einum kampinum var með henni í bekk, sjaldgæft að krakkar af þessum svæðum kæmust í "góðu" bekkina, yfirleitt sjálfkrafa plantað í B og C bekki.  Svo hefur hún væntanlega kennt Bíbí og systkinum hennar í Laugarnesskóla, en ekki gat hún ímyndað sér við hverskonar atlæti börnin bjuggu.

Skelfilegt.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 22:35

14 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Ragnheiður, Lára, Katla. þakka ykkur fyrir þessar fallegu endurminningar. það er skrítinn tilfinning sem umlykur mann þegar maður finnur  hvernig hálsinn á manni skreppur saman og tárkirtlarnir vökna.  manni situr hljóðann eftir þennan lestur.

Megi guð hjálpa ykkur í þessum erfiðleikum ykkar. 

S. Lúther Gestsson, 18.6.2008 kl. 22:41

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lúther: Farðu að slaka á.

Ragga: Hér.

Lára Hanna: Ég held að hann hafi verið rifinn 1965.  Ekki viss samt.

Katla: Ég var líka í Meló.

Beta: Til hamingju með ÖMMUNA

Hrönn: Það er óthuggulega stutt síðan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 23:00

16 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir Jenný..

Þú þarna Lúther, ég á ekkert bágt og þarf enga vorkunn. Það er samt hverjum manni hollt að skoða sínar eigin rætur.

Ragnheiður , 18.6.2008 kl. 23:06

17 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Ok, ég er bara að reyna að vera ekki meðvirkur.

S. Lúther Gestsson, 18.6.2008 kl. 23:07

18 Smámynd: Linda litla

Takk fyrir þetta Jenný. Gaman að sjá svona gamlar myndir úr Reykjavík. Maður getur varla ímyndað sé borgina svona, þegar maður ólst ekki upp í henni.

En það var gaman að þessu, takk aftur fyrir mig.

Linda litla, 18.6.2008 kl. 23:27

19 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hvenær varst þú í Meló.???

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2008 kl. 23:31

20 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já Jenný ég man svo vel eftir þessum braggahverfum og mér var bannað að hafa samskipti við krakka sem bjuggu þar.  Hugsaðu þér hvað mikil stéttarskipting var í landinu okkar á þeim árum þrátt fyrir að við þvertækjum fyrir að hér ríkti eitthvað slíkt.

Man eftir hvað ég forðaðist krakka sem fylgdi fúkkalykt, það voru braggabúar og maður umgekkst ekki slíkt fólk í þá daga.

Guð minn góður hvað við meigum skammast okkar fyrir allt sem við gerðum í bernsku einungis vegna þess aðþetta var fyrir okkur haft af foreldrum, ömmum og öfum.

Hefurðu hugleitt hversu margir af okkar færustu listamönnum koma einmitt úr þessum bröggum sem við svívirtum.  Hvað við meigum skammast okkar í dag.   Frábær færsla vinkona eins og oft áður!!!!

Ía Jóhannsdóttir, 18.6.2008 kl. 23:36

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ía: Vorum við ekki bara að hlýða því sem fyrir okkur var lagt?  Saklaus börn?  En þetta er sorglegt.  Nú er þetta faldara og með öðrum hætti, þ.e.a.s. fátæktin.

Katla: Ég er fædd 1952 og var í Meló frá 7 - 12 ára bekkjar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 23:40

22 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einum Einari tókst nú það vel til með það að skrásetja þetta tímabil í sögu þjóðarinnar að töff þótti vera að telja ættir til 'braggaskrílsins'.

Hálf öld síðan, hálfri öld áður bjuggum við í moldarkofum, núna búum við í litlum steypuközzum, öllum næstum eins, en samt merkjanlega ekki fyrir þá sem að kjósa svo að dæma. 

Steingrímur Helgason, 18.6.2008 kl. 23:40

23 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Nei,nei,  nú fer þetta að verða eins og ein stór klósettferð hjá ykkur. Ég veit hvernig þetta endar....verðið hringjandi í hvor aðra í allt kvöld grát............ok, ég þegi núna.

S. Lúther Gestsson, 18.6.2008 kl. 23:42

24 identicon

Ég er 35 ara, og mér fannst þetta æðisleg lesning, einlæg, og skemmtileg.  Veistu Jenný, ég ætla að þakka þér fyrir að vera til, líf mitt er ríkara fyrir vikið.  Þú ert megaflott.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 23:50

25 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Nostalgían er komin á fullt hjá mér! Ég kom nokkrum sinnum í Kamp Knox.

Og nokkrum sinnum í Höfða.

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 23:54

26 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Takk fyrir það Jenný. Vona að þú verðir skjótt afturbata.

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 19.6.2008 kl. 00:21

27 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Svanur og Guðrún og Steingrímur.  Lúther, þú verður að meðvirknijafna.

Edda: Ég varð aldrei svo fræg að koma inn í bragga, nema Hafnarbíó auðvitað. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 00:25

28 Smámynd: Kolgrima

Þetta er stórmerkileg saga og eiginlega ekki hægt að skilja hversu mikið íslenskt þjóðfélag breyttist á síðustu öld - ekki einu sinni á þessum stutta tíma sem liðinn er síðan við vorum stelpur! (nema þú Jenný sem heldur að þú sért á svipuðum aldri og Jón Sigurðsson )

Kolgrima, 19.6.2008 kl. 00:25

29 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kolgríma: Hehe, þú tókst auðvitað eftir þessu.  Glögg kona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 07:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985827

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.