Leita í fréttum mbl.is

Bormaðurinn "is back"

Bormaðurinn sem ég bloggaði um í fyrra og er giftur konunni sem er á móti því að fólk sé að "kogga" er kominn aftur.

Eða þá bróðir hans.  Eða mágur, eða andlegur tvíburi.  Mér er sama.

Þar með er framleiðsla á fakírbrettum hafin aftur hér við hliðina á mér.

Hversu mikið er hægt að bora í einni íbúð?

Ég sit og skoða særingabækur.

Ég hef keypt mér vúddúdúkku.

Ég hef safnað mjaðarjurt, hrafnakló og rottuhala og nú bullar og sýður í eldhúsinu.

Ég held að það verði ekki borað lengi enn.Devil

Næsta færsla verður skrifuð frá golfvellinum að Kvíabryggju.

Þíjú.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

4-5 færslur á dag áttu ekkert líf og þarftu ekkert að gera annað.

Arnar (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 18:20

2 Smámynd: Hulla Dan

Hvar keyptiru vúdú dúkku?

Hulla Dan, 12.6.2008 kl. 18:30

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já ekki einu sinni hægt að vera úti á svölum eða í garði fyrir hávaða!Djöf... leiðindi - er verið bú til einhverja pyndingaklefa í næstu íbúð við þig?

Edda Agnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 18:57

4 identicon

Koggu-fólkið hahahahahaha og bormenn íslands hahahaha.Er ekki fyrirtæki sem heitir bormenn íslands?Kanski þeir séu fluttir inn á koggu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 19:05

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arnar: Stundum fleiri færslur á dag, nóg að gera.  Don´t worry your pretty little head about it.

Hulla: Það er einkamál í héraði.

Edda: Ég er uþb að fremja eitthvað á einhverjum.

Birna:  Mannstu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.6.2008 kl. 19:12

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég skil þjáningu þína fullkomlega.....bý með einn bormann við hliðin á mér og stundum langar mig til að fremja myrkraverk...en ekki hafa það eftir mér opinberlega !

Sunna Dóra Möller, 12.6.2008 kl. 20:02

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

kvedja á Kvíabryggjuna

María Guðmundsdóttir, 12.6.2008 kl. 20:03

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég væri farin á tauginni sver það! Annars ef hann hættir ekki skaltu bara bjóða honum yfir og spyrja hvort hann vilji ekki bara koma og bora líka hjá þér, það sé kominn tími á breytingar. 

Ía Jóhannsdóttir, 12.6.2008 kl. 20:07

9 Smámynd: Jens Guð

 Það er gott ráð að setja "industrial" þungarokk á fóninn þegar einhver er með borvélina í gangi.  Það þarf ekki að spila það mjög hátt því að borhljóðið blandast vel saman við hljóðvegginn.  Hinsvegar er miklu skemmtilegra að hlusta á "industrial" þungarokkið mjög hátt spilað.  Sérstaklega plöturnar með Ministry.

Jens Guð, 12.6.2008 kl. 20:25

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jens, en það er álíka óþolandi og borvélin, sorrí...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 20:46

11 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

oooo, vildi ég hefði svona talningamann. ég verð að telja mínar færslur sjálfur

Brjánn Guðjónsson, 12.6.2008 kl. 20:48

12 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég hef bankaði eitt sinn hjá nágranna mínum sem var með loftpressu í gangi kl 23:00 á virkum degi....að vetri til meira að segja........konan hans kom 2 vikum seinna á Laugardagskveldi kl 21:00 til að biðja um að börnin mín hefðu lægra. Þau voru ekki að gera neitt nema horfa á Simpson......hún sagði að hún ætti svo mikið af börnum og ég svaraði á móti ;Ég á 5 börn; Hún er yngri en ég og sítuðandi. Ég vona samt að hún lesi ekki bloggið þitt. Þá neyðist ég örugglega líka til að kaupa mér VoDo dúkku.......því ekki ætla ég að flytja

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 12.6.2008 kl. 20:51

13 Smámynd: Linda litla

Er ekki hægt að senda hann til Arabíu, hann getur borað nóg þar.

Ég sendi þér bréf á Kvíarbryggju, heimsæki þig kannski bara líka.

Linda litla, 12.6.2008 kl. 21:00

14 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Nágranninn minn er einmitt í þessu að bora og er búin að vera að í um eina og hálfa vikuþetta er bara pirrandi og ég tala ekki um þegar er verið að byrja kl 22 á kvöldin, að bora, að negla og fl.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.6.2008 kl. 21:06

15 Smámynd: Hulla Dan

Ó ég er svo heppin. Á bara Lars sem nágrana og hann er aldrei að bora. Og hann kvartar aldrei þó við séum að spila og syngja út í garði þar til sólin rís upp.
Hann er besti nágrani í öllum heiminum hann Lars.

Góða nótt á þig kona

Hulla Dan, 12.6.2008 kl. 21:11

16 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég var þessi óþolandi nágranni þegar ég var að standsetja íbúð einu sinni.  ... meira að segja var verið að vinna með múrbrjóta á fleiri en einum stað í íbúðinni! ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.6.2008 kl. 21:38

17 Smámynd: Magnús Jónsson

Jenný: stilla útvarpið á gufuna skrúfa allt í botn snemma á Laugardags eða Sunnudagsmorgni eftir borvélaviku og skreppa síðan í langan bíltúr.......

Magnús Jónsson, 12.6.2008 kl. 22:59

18 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég væri orðin klikkuð! Átti reyndar svona nágranna þegar ég bjó í Safamýri, við spáðum mikið í það hvað hann gæti endalaust borað og neglt, það kom svo í ljós að hann var að stúka niður stofuna í lítil herbergi. Stór fjölskylda í lítilli íbúð

Huld S. Ringsted, 12.6.2008 kl. 23:21

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég þoli ekki þungarokk (sko industry) þannig að það er bara kakófónía í míum eyrum.

Allir þurfa að taka í gegn en reglulega s.l. 3 ár og stundum með stuttum hvíldum er aðeins of mikið.

Magnús: Tek þetta ráð og nota um helgina.

Takk öll fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2008 kl. 00:03

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hulla: Bið að heilsa Lars.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.