Leita í fréttum mbl.is

Heimsóknarbann á pakkið

Ja hérna hér, Íslenskar konur eru ekki heimisins fegurstu konur samkvæmt einhverju plebba tímariti.

Þessu tímariti er greinilega mjög illa við Íslendinga og lætur þá ekki njóta sannmælis.

Það veit hvert barn að hér eru fegurstu konurnar, besta vatnið, fallegustu fjöllin, besta loftið, hreinasta umhverfið og laaaangt besta grænmetið.  Ég ætla ekki út í að mæra lambakjötið það tekur of mikið pláss.

Við erum alltaf best, fallegust, ríkust, gáfuðust frábærust, sniðugust, klárust og víðlesnust.

Miðað við höfðatölu.

Ég legg til að við lokum á alla þess aula þarna úti sem sjá ekki augljósar staðreyndir og kunna ekki gott að meta.  Við setjum þá í heimsóknarbann.

En mér þætti gaman að vita, í alvöru sko, hver kom þessari mýtu af stað.

Að íslenskar konur væru fallegri en konur í öðrum löndum.  ´

Ætli goðsögnin sú sé ekki heimatilbúin?

Gæti trúað því.


mbl.is Fegurstu konurnar ekki á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ekki veit ég hvert tímaritið er, en með þessum afleik hefur það opinberað sig sem ómark. framvegis mun enginn trúa neinu sem þar birtist.

say no more

Brjánn Guðjónsson, 12.6.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Signý

Iss sá/sú sem skrifaði þessa grein hefur nú ekki farið víða. Ég held því nefnilega fram að fallegustu konurnar séu í Lettlandi og Litháen. Ég í alvörunni hef aldrei séð jafn mikið samansafn af óþægilega fallegu kvennfólki eins og í þessum tveimur löndum. Ég held síríjösslí að það sé eitthvað fegrunarbætanandi í vatninu hjá þeim. En það virðist samt bara virka á kvennfólkið, því karlmennirnir eru alveg eitthvað allt annað en myndarlegir

Svo er lambakjötið ofmetið, en allt hitt er rétt.. sko með besta vatnið og loftið og það allt þarnma.. vantaði í þessa upptalningu líka hversu fyndin við erum en við erum nottla fyndasta þjóð í heimi, fólk bara fattar það ekki

En þessi sögusögn um fallegu konurnar, kom það ekki bara með farsælum ferli í ungfrú heimur?... Við höfum ábyggilega reiknað það út einhversstaðar að við eigum fleiri alheimsfegurðardrottningar miðað við höfðatölu... svo eitthvað er það

Signý, 12.6.2008 kl. 15:48

3 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Fegurstu konurnar ekki á Íslandi???

Hmm hvert fóru þær? Með Flugleiðum eða Norrænu ??? Einhver???Fóru þær kannski að leita að Framsóknarmönnunum sem virðast ekki finnast í miklum mæli á Íslandi.

Var ekki einhver fyrirsögn um eina meinta fegurðardís að hún hefði breyst í sel. Ásdís Rán selur!

Kveðjur með þökk fyrir það liðna.

Ásta, Barði börnin

Einar Örn Einarsson, 12.6.2008 kl. 15:48

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Í þessu útlandi þar sem ég er staddur snöggvast, er þvílíkt samansafn fagurra fljóða að mig setur hljóðan. Geturðu kannski fyrir mig spurt Magga Þór hvurt ég mætti hafa með heim, eins og eina kippu af sollis, þá færum við í toppsætið aftur.

Annars er vatnið hérna fúlt, þannig að það er ekki málið.

Þröstur Unnar, 12.6.2008 kl. 16:02

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þetta hlýtur að vera prentvilla segi ég líka.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2008 kl. 17:07

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Við erum nú fallegastar inn við beinið! Það hljóta að hafa verið stríðsárin sem markaðsettu fljóðin á Íslandi!

Edda Agnarsdóttir, 12.6.2008 kl. 17:15

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Við erum flottastar alveg sama hvað eitthvað tímarit út í heimi blaðrar.

Ía Jóhannsdóttir, 12.6.2008 kl. 17:27

8 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það eru íslenskrar konur um allan heim. Skekkir mælinguna ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2008 kl. 17:34

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Andskotans endemis vitleysa

Jóna Á. Gísladóttir, 12.6.2008 kl. 17:46

10 identicon

Of margar konur á Íslandi virðast bara vilja vera illa útlítandi feministar og hafna fegurðinni.  Það er eins og þeim langi fátt meira en að líkjast karlmönnum í sem flestu, bæði vinnu og útliti.  Ekki gott mál.  Margar af fegurstu konum heims að mínu mati eru í austur-evrópu.  Gríðarlega fallegar konur þar.  Fegurðin þarf ekki að vera meðfædd, hana er hægt að rækta og þannig geta konur geislað af ómótstæðilegri fegurð kjósi þær að rækta garðinn sinn.  Flestir karlmenn eru veikir fyrir fegurð kvenna og það vopn verður ekki slegið úr höndum kvenna nema þær geri það sjálfar.

Gunnar (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 18:19

11 identicon

Nb ! Það stendur "og kemst REYKJAVÍK ekki einu sinni þar á blað"  Þeir nefnilega held ég, gleymdu að kíkja á okkur landsbyggðar tútturnar :)

Skemmtileg bloggsíða hjá þér sem fær mann að brosa, já oftast út í bæði :)  Takk fyrir það :)

Spákonan á Kambinum (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 23:20

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Lítillátar, ljúfar, kátar og flottastar! ..  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.6.2008 kl. 10:40

13 identicon

Lítillátar!?  Nei Íslenskar konur er ekki lítillátar.

Gunnar (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 12:49

14 identicon

Talandi um fegurð kvenna að þá langar mig að minnast á fegurð eldri kvenna.  Þar þykir mér ítalskar mömmur og ömmur alveg einstaklega fallegar konur.  Þær búa yfir einkennum og þokka sem er fáheyrður og hafa fegurð og návist sem veita karlmanni vellíðan.

Gunnar (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband