Leita í fréttum mbl.is

Tjónajöfnun Gísla græna

Ef höfuðið á mér gæti snúið sér, eins og hjá stelpunni í Særingarmanninum, þá myndi það vera á öflugum snúningshraða, við að reyna að ná og skilja Borgarstjórann og Co í Reykjavík.

Hvernig er þetta eiginlega, þarf maður túlk á þetta fólk til að ná lágmarksskilningi á hvert það er að fara, hvað það meinar?

Í síðustu viku töluðu þeir tungum, íhaldið annars vegar og Ólafur hinsvegar vegna REI og ég og fleiri vorum eitt spurningarmerki.

Nei, nei,

og núna sá ég Óla í sjónvarpinu um helgina, messa á borgarafundi um skipulag Vatnsmýrarinnar, sem hann taldi búið til að fólki sem hefði ekki skilning á þörfum nútíma samfélags.  Svo sá ég endursýnt viðtal við hann frá því í febrúar þegar hann tók þátt í að samþykkja sama skipulag og þá var hann nokkuð glaðbeittur með málinu.

Nú kemur Gísli Marteinn í fréttir og reynir að tjónajafna yfirlýsingar Borgarstjórans.  Að það ríki einhugur, jájá, allir glaðir saman.  Þessi einhugur sem alltaf er verið að segja frá eftir að einhver hefur misst út úr sér óheppilega hluti, er þá bara prívat.  Hann birtist mér ekki í fjölmiðlum, svo mikið er víst.

Og Borgarstjórinn tjónajafnar líka og kemur með yfirlýsingar um að orð hans séu rangtúlkuð, að hann sé í GRUNDVALLARATRIÐUM sama sinnis og í febrúar.

Ók, ég hlýt að vera skemmd í höfðinu.  Fyrir mér er þetta ekki bara katastrófurugl í meirihluta sem hangir saman á óskinni um að fúnkera en engu öðru, þetta er glundroði.  Algjört mess.

Kannski er þetta merkjamál þeirra í meirihlutanum.  Hvað veit ég sitjandi hér uppi í Gólanhæðum.

En þetta horfir við mér eins og handónýtur samstarfshópur og best væri að þeir segðu af sér og það strax.

Helst vildi ég fá að kjósa aftur.

En ekki hvað?


mbl.is Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 5.5.2008 kl. 19:54

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Settu þig inn í málið addna Jóna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2008 kl. 19:56

3 Smámynd: Tiger

Ég er svo hlessa á þessum pólitíkusum að ég er næstum ringlaður. Svona Ragnars REI-kás syndrúm eins og einkennir borgarstjórnina stundum er bara brosleg. Við ættum að hafa vald til að koma þeim frá - enda kusum við þessa karla ekki í að vera þar sem þeir sjálfir hafa komið sér fyrir! Undarlega þessi tík sem pólitíkin er ... eða þannig.

Knús á þig Jenný mín og eigðu ljúft kvöld.

Tiger, 5.5.2008 kl. 20:00

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ætli það séu ekki frekar þau öll sem eru skemmd í hausnum. Ég held að enginn heilvita maður (kona) skilji orðið hvað kemur frá þessum tveimur stjórnum, ríkisstjórn og borgarstjórn (já og Akureyrarstjórn ef út í það er farið) , þetta lið ruglar eitt í dag og annað á morgun. Ég vil nýjar kosningar fyrir allt heila klabbið og hana nú!

Huld S. Ringsted, 5.5.2008 kl. 20:36

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

....ekki er það betra á Selfossi því get ég lofað.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.5.2008 kl. 21:26

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

 eru ekki 7 í meirihlutanum??

Hólmdís Hjartardóttir, 5.5.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Linda litla

kjósa aftur ?? Nýjar kosningar ?? Kjósum við ekki bara ný mistök í staðin fyrir þessi ??

Linda litla, 5.5.2008 kl. 21:42

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mér finnst hann dálítið kjánalegur þessi borgarstjóranefna.  Þekki manninn ekki neitt en hann kemur alla vega ekki vel fyrir mín augu og eyru. Ætli flestir séu ekki með nýjum kosningum, gæti trúað því.  

Ía Jóhannsdóttir, 5.5.2008 kl. 21:43

9 Smámynd: Bergljót Aðalsteinsdóttir

Þarna er aðalmálið að halda völdum og hvaða íhaldsmaður sem kemur fram í fjölmiðlum reynir að verja þennan auma meirihluta í Reykjavík með þvílíkum látum hvað þarna liggur á bak við verður verkefni sagnfræðinga framtíðarinnar  ég sakna þess að það er aldrei krufið til mergjar í fjölmiðlum hvaða flokki þessi Ólafur borgarst. tilheyrir eiginlega og þessi Ásta þ voru þau í sama flokknum um síðustu borgarstjórnarkosningar? þessi valdataka og þetta samstarf  er borgarbúum æ meira undrunnarefni og íhaldinu til ævarandi skammar

Bergljót Aðalsteinsdóttir, 5.5.2008 kl. 22:20

10 identicon

Ég vil að Ólafur F verði blurraður aftur í Spaugstofunni. Fyrir mér er hann ansi blurraður. Hm... eða er ég í móðu og úti á túni með þér og fleirum, Jenný?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 22:40

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég segi það sama og Jóna!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.5.2008 kl. 23:02

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi bara knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 5.5.2008 kl. 23:19

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Eina sem ég get sagt er:  Þetta er hætt að vera fyndið! Við erum að tala um Borgarstjórann í Reykjavík. - Eitt valdamesta embætti landsins.  Eins og Ólafur sagði sjálfur á brogarafundinum í Gamla Miðbæjarskólanum, um leið og hann veifaði samanbrotnu og margþvældu korti.  -   Hann ræður - Og HANN ætlar sko ekki að láta einhverja ÚTLENDINGA sem bera ekkert skynbragð á skipulag fyrir Ísland, eyðileggja fyrir sér -  BORGARSTJÓRI RÆÐUR - Það vantaði  bara: smá hæl og svartan blett á efrivörna.-  Þá hefði ekki verið hægt að toppa þetta.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.5.2008 kl. 23:38

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fyrirgefðu Jenný:  Þetta á að vera "Borgarafundinum í gamla Miðbæjarskólanum. - Ekki brogarafundinum - þó hann hafi svo sannarlega verið brogaður. - Svo var það þetta með efri vörina -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.5.2008 kl. 23:42

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LG: Ég skil þig og það er rétt, þetta er löngu hætt að vera fyndið.

Stelpur, þetta er borgin okkar, við eigum að hafa á því skoðun hvað fyrir hana kemur og ekki láta yfir okkur ganga.

Andskotinn sem ég er reið.

Takk fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.5.2008 kl. 00:00

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og strákar líka. Þorrí guys.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.5.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.