Leita í fréttum mbl.is

Var hann rekinn?

Ég saup hveljur þegar ég las þessa frétt inni á visir.is. 

Ef ein beljan mígur koma hinar á eftir.  Nú hrópar öryggisvörður sem segist vinna hjá Öryggismiðstöðinni, eftir gas-gas-gasi.  Mace svokölluðu.  Það er á manninum að heyra að það sé bráðnauðsynlegt að hafa úðabrúsa til að fólk beri virðingu fyrir öryggisvörðum.  Og hann nefnir til stuðnings máli sínu, 10-11 búðina í Austurstrætinu.  Sjáið þið lýðinn.  Gösum hann, svona sirkabát.

Löggan vill rafbyssur, löggan hefur gasúða.  Fólk hefur dáið af rafbyssustuði eins og allir vita.  Hvenær ætli byssurnar verði komnar á óskalista, ó, þær eru víst þegar komnar þangað.

Að mæta ofbeldi með meira ofbeldi er ein glataðasta hugmyndafræði mannkynssögunnar og bjargar aldrei einu né neinu.  Lítið í kringum ykkur gott fólk, lesið mannkynssöguna og sannfærist.

Mér sýnist lögreglan, í gegnum tíðina hafa staðið sig alveg þokkalega án morðtóla.  Það krúttlega við lögguna hefur einmitt verið vopnleysið.  Ekki að það eigi við lengur.

En aftur að öryggisverðinum.  Undir viðtali visis við hann er eftirfarandi athugasemd:

"Athugasemd. Öryggismiðstöðin vill taka fram að Pétur Gíslason er ekki starfsmaður fyrirtækisins. Það er heldur ekki skoðun Öryggismiðstöðvarinnar að starfsmenn þeirra beri mace-brúsa."

Eins gott fyrir þetta fyrirtæki að þvo hendur sínar af æsingamönnum sem eiga að gæta öryggis.  En var hann rekinn á staðnum?  Ég fer ekki á bensínstöðina þar sem hann vinnur, þessi náungi, það er á hreinu.

Frekar labba ég heim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sammála það er engin lausn að lögreglan fari að bera vopn geta nokkuð varið sig ef á þarf að halda með úða og kylfum og hvað þá að allir öriggisverðir fari að bera vopn það þarf þá heldurbetur að vanda valið á mönnum í þá vinnu .
þá er ég ekki að segja að það sé ekki gert en reglur þyrftu þá að vera miklu strangari.

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 11:40

2 Smámynd: Neddi

Mér finnst það nú vera frekar öfugsnúið að kalla eftir mace-brúsum til að hafa í gæslunni í 10-11 í Lækjargötu.

Er ekki eðlilegra að spyrja sig að því hvers vegna í ósköpunum þessi tiltekna verslun er opin allan sólarhringinn. 

Neddi, 2.5.2008 kl. 12:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er slegin yfir þessu ofbeldisgengi sem lögreglan er að vera.  Ég er alveg sammála þér að það er heimskulegasta sem til er að mæta ofbeldi með meira ofbeldi.  Burtu með ofbeldismennina í þjónustu ríkisins. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Tiger

Maður verður bara Gas-alega undrandi á svona gaspri eins og í þessum öryggisverði. Það held ég að allt myndi fuðra upp ef öryggisverðir væru að Gas-a dauðadrukkinn lýðinn - þá fyrst færu fyllibytturnar að slást. Að Gas-a dauðadrukkið fólk að öðru drukknu fólki sjáandi - segir sig sjálft að drukknir aðilar vaða í málið með öskrum og látum þess drukna og þá fyrst myndi já sjóða uppúr af alvöru. Sannarlega satt að ofbeldi leysir engin vandamál.

Tiger, 2.5.2008 kl. 13:27

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Mátti til með að benda þér á nýjasta afrekið í Þvagleggsumdæminu:

http://visir.is/article/20080502/SKODANIR03/224532122/-1/SKODANIR

Ragnhildur Sverrisdóttir, 2.5.2008 kl. 13:41

6 Smámynd: Stefán Bogi Sveinsson

Mace-úði, eða eitthvað sambærilegt pepper-spray, er varnartæki sem ekki er óalgengt að konur erlendis beri á sér til að verja sig gegn árásum. Það er sjálfsagt sömuleiðis óskiljanleg tilraun til þess að mæta ofbeldi með ofbeldi ekki satt??

Stefán Bogi Sveinsson, 2.5.2008 kl. 14:02

7 Smámynd: Jens Guð

  Ef kengruglaðir öryggisverðir fá að vopnast piparúða eða öðrum álíka tólum fer ég að flytja inn og dreifa sundgleraugum.  Svona græjur virka ekki á fólk með sundgleraugu.

Jens Guð, 2.5.2008 kl. 14:18

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jens: Sammála.

Stefán Bogi: Þetta er svo mikið rugl að þetta er ekki svaravert.  Konum er líka ráðið frá að bera á sér maceúða, vegna þess að oft er hann tekinn af þeim og notaður gegn þeim. 

Ragnhildur: Veistu það að ég á ekki orð.  Er ekki orðið tímabært að skoða stjórnurarhætti og embættisfærslur þessa sýslumanns.  Maðurinn virðist ekki með öllu mjalla.

Takk öll fyrir þátttökuna í spjallinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.5.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985804

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband