Leita í fréttum mbl.is

Í gargandi gír

 900

Dagur þverbrotinna prinsippa er senn á enda liðinn.  Hann var dásamlegur auðvitað og ævintýrin biðu eftir mér við hvert horn. 

Ég byrjaði og endaði í Hagkaup í Holtagörðum, eftir að hafa verið leidd burt í járnum eftir grun um mögulegan búðarþjófnað.  Ekki alveg, en nærri því.  Við tökum þetta í réttri röð.

Ég skveraði mig til, fór í hálæana, úr þeim aftur, speglaði, greiddi, málaði, skipti um kjól, fór úr honum aftur (búðarferð er biggdíl, þegar maður hefur varla farið út í viku vegna hita).  Ég sættist á dásamlegan kjól sem dró fram massaðan og fagurlimaðan líkamann.  Þegar ég gekk inn í verslunina, stoppuðu allir, hálsar snérust og það heyrðist hvíslað úr öllum áttum; þarna er hún, þarna er hún.  Nokkrir féllu í öngvit.

Ók, taka tvö.  Ég fór í Hagkaup með miða, verslaði eins og motherfucker, og á leiðinni út, pípti á mig í hliðinu.  Í fyrsta sinn á ævinni.  Mér fannst þetta spennandi, enda blásaklaus, til tilbreytingar, og ég spjallaði glaðlega við öryggisverðina sem höfðu nálgast mig ógnandi.  Sá ég glitta í gasbrúsa?  Ók, þetta var misskilningur, konurnar fóru yfir málið og báðu mig afsökunar.  Mér varð litið á húsband.  Hann var rauður í framan, svona vandræðalegur.  Þá rann upp fyrir mér að það er ekki sniðug hugmynd til félagslegs samneytis að láta taka sig á þjófapípinu.  Frrrrusssss!

Ég hundskaðist út í bíl.  Afskaplega glöð og ánægð.  Það fer ekki langri sögu af gleði eiginmannsins, en hva, ég skemmti mér.

En ég vildi bara segja ykkur að ég keypti mér stórar náttbuxur, örugglega í karladeildinni, ég veit það ekki, stórköflóttar og þær eru þægilegar.

En það er óþægilegt að ganga fram hjá spegli.  Mér bregður.  Ég garga.

Okí?

Cry me a river.

Líf mitt er vonderfúll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ertu mössuð??? 

Er þér eitthvað að förlast í tískufílingunni. Næst segirðu okkur að þú hafir keypt þér ÚLPU !!! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei ég er ekki mössuð, en mér fannst það svo flott að skrifa það.  Hehe.

Úlpa, aldregi, aldregi.  Over my dead you know.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2008 kl. 22:31

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já það lúkkar flott að skrifa mössuð

Hrönn Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 22:48

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er ekki ennþá búin að fá mér stórköflóttar stórar náttbuxur (örugglega úr karlmannadeildinni) en hef skoðað þær nokkrum sinnum en ég er þó búin að fá mér úlpu af illri nauðsyn

Huld S. Ringsted, 1.5.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Að fara í búðir er eitthvað sem mér líkar mjög illa. Það þýðir bara að ég verð krónunum fátækari fyrir vikið því ég á það til að kaupa endalaust eitthvað handa  ömmuprinsinn minn eitthvað sem  er algjör óþarfi.  Að láta taka sig á pípinu er algjör hryllingur, lenti í því í New York sem er mín draumaborg árið 1987.  Var á ferðalagi með fjölmiðlafræðinemum Háskóla Íslands og brá mér í búð til að kaupa jólakjóla á eldri dóttur mína og tvær systurdætur mínar.  Fékk ég þessa fína prinsessukjóla á kúk og kanil og greiddi fyrir þá með mínu korti og hélt mína leið.  En viti menn í næstu búð sem ég kom inn Í fór allt að pípa.  En sem betur fer var ég með allar kvittanir sem sönnuðu að borgað hafði verið fyrir kjólana.  En Guð minn góður að lenda í Pípi í New York er ekkert grín.

Ég skil þig Jenný mjög vel.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 1.5.2008 kl. 22:48

6 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Mér finnst þetta bara gott á þig-fyrst þú ert að fara í Hagkaup á 1.maí en ekki í gönguna með mér og mínum!

María Kristjánsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:55

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Var opið í Hagkaup!!! Taktu mynd af konu í náttbuxum. Setja á veraldarvefinn.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.5.2008 kl. 22:58

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehhehehe tekin í hliðinu með köflóttan náttfatnað!  Nú garga ég, hehehe .... hef sjálf lent í því að vera tekin í hliðinu sárasaklaus auðvitað, en þar sem maður stendur flissandi og lætur grandskoða pokaskjattana standa hinir viðskiptavinirnir með svona aumkunarsvip haldandi höndum þétt að síðunum og hugsa, æ grei konan ætli hún sé með stelsýki hehehehhe .... I love it, eða næstum því... 

Ía Jóhannsdóttir, 1.5.2008 kl. 23:56

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég elska köflóttar náttbuxur.....segi kannski ekki að þær séu smart en andskotanum þægilegri

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 2.5.2008 kl. 00:29

10 Smámynd: Steinn Hafliðason

Þú ert snillingur að vanda

Steinn Hafliðason, 2.5.2008 kl. 01:23

11 Smámynd: Tiger

Hmmm...að vera tekinn í hliðinu hljómar nú ekki mjög spennandi, myndi frekar vera tekinn einhvers staðar annars staðar - þannig séð náttúrulega. Ég skil húsband þitt mjög vel, enda sér fólk sem horfir á svona uppákomur ekkert annað en sekt og ræningjapakk. þegar maður lendir í svona í sakleysi sínu - er maður þegar dæmdur sekur/þjófur af þeim sem horfa á uppákomuna.

Náttbuxurnar hljóma svona frekar eins og framhald af því að hafa verið "tekin" í hliðinu - og verið settur á bakvið rimla - en hugsanlega eru buxurnar samt góðar fyrir hjartað, enda styrkir það  að hrökkva við í tíma og ótíma. Vonandi eru mjög margir speglar í þínum híbýlum elskulegust.. Eigðu yndislegan föstudag og njóttu þess að spranga um á þeim köflóttu á morgun.

Tiger, 2.5.2008 kl. 02:12

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Var þjófavörnin kannski að mótmæla stórköflóttu náttbuxunum ?

Jónína Dúadóttir, 2.5.2008 kl. 06:20

13 Smámynd: Helga skjol

Algjör snilld eins og alltaf

Knús

Helga skjol, 2.5.2008 kl. 07:17

14 identicon

Já mynd af náttbuxum með massaðri konunni innan íMagga massi hvað?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.