Leita í fréttum mbl.is

Lesbíur geta auðvitað ekki átt gæludýr

Samt sektaði sænskur áfrýjunardómstóll í Svíþjóð konu, sem neitað hafði að selja lesbíu hvolp, sagði hana seka um mismunun og sektaði kerlingarskömmina um ca. 200.000 þús. krónur.

Mér hefði fundist réttlátt að sekta kerlu gott betur fyrir heimsku og fordóma, milla hefði verið fín.

Kerlingin hafði heyrt að klæðskiptingar væru vondir við dýr.

Ég gæti sagt henni sögur af fólki í blokkum sem er algjörir dýrahatarar og það er slatti af Dönum líka sem er uppsigað við ketti og hunda. Eitthvað af Finnum líka.

En núna geta þessar lespíur látið eiga sig að vera að falast eftir hundum og köttum.

Í þeirra röðum gætu leynst dýrahatarar.

Sko ef þú getur ekki rökrætt við fólk þá er eina leiðin að verða aðeins vitlausari en það.  Það fær það stundum til að hlusta.

Ekki að ég ætli að fara að tala við kerlingarófétið í Svíþjóð.  Hún gæti verið hommi, hvað veit ég?

Ég er svo streit að ég er farin að lúlla.

Ója

Vóff


mbl.is Sektuð fyrir að neita að selja lesbíu hvolp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér datt helst í hug þegar ég sá fréttina fyrst að aumingja konan hafi haldið að les pían hefði ætlað að ná sér í svona "sultu hund" þori bara ekki fyrir mitt litla líf að útskýra hvað það þýðir, skil að hún hefði ekki viljað selja hund upp á þau bítti.  GN  já og Villi er kjáni, alveg þriggja axla kjáni, finnst mér eins og hann hagar sér og hefur gert síðustu vikur og mánuði.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 00:35

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Skrítið þó að konan hafi fengið sekt, það hlítur að hafa verið komin sannarlega kaupsamningur á hjá þeim og frúin fengið kaldar fætur.

Ester Sveinbjarnardóttir, 13.2.2008 kl. 00:45

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Góða nótt Jenný min.

Heiða Þórðar, 13.2.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir

Sæl Jenný. Er búin að vera að þræla mér í gegn um færslurnar þínar (er sem sagt að REYNA að byrja á þessu bloggveseni).

Svakalega ertu dugleg kona! Hittir naglann á höfuðið og orðar það svo skemmtilega sem við hin e.t.v. hugsum.

Held áfram að lesa og vona að ég fái bara SMÁ anda yfir mig frá þér og byrji fyrir alvöru.

Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir, 13.2.2008 kl. 00:47

5 Smámynd: Tiger

Fordómar hér og fordómar þar - alveg ótrúlegt hversu mikil heimska sumir fordómar eru nú á tímum. Fáfræði, misskilningur og hræðsla eru alltaf stærstu einkenni fordómanna svo í skóla með kerlinguna - kenna henni pínulítið í mannlegum samskiptum svona til að opna augu hennar fyrir nútímanum. (sko, kerlinguna í Sverige).

Tiger, 13.2.2008 kl. 01:22

6 identicon

Æ, þetta er næstum því krúttlegt.  Kellingin kann ekki einu sinn mun á lespíu og klæðskipting. 

Elisabet R (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 02:02

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hún er örugglega hommi

Jóna Á. Gísladóttir, 13.2.2008 kl. 02:07

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hún er hommi, ekki spurning !  Dóttir mín og sambýliskona hennar búa í Svíþjóð og þær eiga tvo ketti og það var meira að segja einhver sem gaf þeim kisurnar. Sá bjáni hefur greinilega ekki vitað þetta með lesbíurnar og gæludýrin

Jónína Dúadóttir, 13.2.2008 kl. 06:17

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Vó! Vona að 200.000 kallinn verði henni vitundarvaknng!

Laufey Ólafsdóttir, 13.2.2008 kl. 08:14

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Daginn Jennslusnúlla

Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 08:17

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mér þykir leitt að segja þer að þú nærð ekki milljónasta lesanda á bloggafmælisdaginn. Hann verður kominn lööööngu fyrir þann tíma. Ef þú vilt að það standi 1000000 á teljaranum 26. feb þá verðurðu að loka síðunni þinni til 25. feb væna mín

Jóna Á. Gísladóttir, 13.2.2008 kl. 08:44

12 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan dag.....!

Sunna Dóra Möller, 13.2.2008 kl. 09:01

13 identicon

Sultuhundur hvað er það, það þýðir ekkert að koma með svona innskag og klára ekki málið.

jakob (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 09:27

14 Smámynd: halkatla

ég er kannski ekki sérfræðingur en miðað við þá lesbísku gæludýraeigendur sem ég þekki þá myndi ég einmitt mæla sérstaklega með þeim í það starf!! og hvað þá hommunum, OMG

halkatla, 13.2.2008 kl. 09:31

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil engar klámfengnar útskýringar á dýrum eða samkynhneigðum, á of marga vini í báðum hópum.  Þekki bara allt of fáa vóffa núorðið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 10:00

16 identicon

Haha, orðið lespía hefur verið notað um mig og samstarfskonu mína, við erum sem sé kvenkyns prófarkalesarar.

Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 10:38

17 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég er með ofnæmi fyrir hundum.

Er það ekki einhvers konar mismunun? Fullt af fólki með ekkert ofnæmi!

Á ég ekki rétt á að vera lesbískur hundeigandi, ofnæmisfrí??

Nú fer ég í mál

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.2.2008 kl. 11:17

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur: Sue the fuckers, any fuckers, who cares, let somebody pay.  Muahahahaha.  Ég er að hugsa um að plata stelpurnar þínar hérna til mín einn daginn og kynna þær fyrir Bördí Jennýjarsyni, sem þolir mig ekki, hangir upp á bókaskáp en fer svo að syngja þegar maður kemur heim.  Alveg er ég viss um að hann myndi vera með standandi partí og alltaf glaður með tvíburunum. Ragnhildur, þú villt ekki vera vond við lítið Bördíkvikindi.  Hef reynt að opna gluggga og allt en hann sér við mér bölvaður.  OMG ætli ég sé les-pía og ekki búin að fatta það, ég meina mér er hálf illa við fuglinn af því honum líkar ekkert við mig.

Bið að heilsa tvíburunum

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 11:28

19 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Systur eru gæludýrasjúkar og myndu örugglega umvefja Bördí ástúð. Þær eru svo sjúkar, að þær væla meira að segja um gullfiska, jafn tótallý óáhugaverð og slík kvikindi eru nú. Ég berst mjög á móti.

Margrét biður til Guðs á hverju einasta kvöldi, að ofnæmið mitt batni. Ég spauga ekki.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.2.2008 kl. 11:51

20 identicon

Hahahaha, alveg frábært að einhver hafi náð að koma sultuhundum inn í umræðuna og enn betra að enginn veit hvað það er :)

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 12:02

21 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég held reyndar, Gunnar Hrafn, að hér séu flestir svo kurteisir að þeir kjósa að líta framhjá dónaskapnum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.2.2008 kl. 12:09

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Enginn áhugi Gunnar Hrafn, ég mun deyja sæl og róleg án vitneskju um sultaða hunda og ketti og hvað sem er.  'Utskýringar bannaðar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 00:07

23 identicon

Enda er ekkert slíkt í boði, mér þótti bara fyndið að þetta var fyrsta kommentið á fréttina

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985831

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband