Leita í fréttum mbl.is

Lyktin verður verri og verri

Hversu lengi á þessi farsi með fyrrverandi borgarstjóra, Vilhjálmi, í aðalhlutverki  að ganga óáreittur, með nýjum fullyrðingum eða beinum ósannindum, fremstum í flokki.

Vilhjálmur hefði aldrei skrifað undir án umboðs og það var borgarlögmaður sem tjáði honum að hann hefði það.

Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður, mun ekki hafa verið sá borgarlögmaður, sem Villi átti við.

Villi fékk álit fyrrvernadi borgarlögmanns, Hjörleifs Kvaran á málinu, en sá ágæti maður er nú forstjóri Orkuveitunnar.

Að tala um spillingu.

Gott fólk, nú er að fara og fá kauphækkun hjá fyrrverandi yfirmanni í gömlunni vinnunni og önnur fríðindi sem munu þá gilda á nýja vinnustaðnum.  Þetta hlýtur að svínvrirka.

Nú æli ég.

Ætlar maðurinn virkilega ekki að segja af sér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Nebb ekkert útlit fyrir afsögn......en einhvernveginn kemur mér það ekki á óvart, hvenær hefur íslenskur pólitíkus tekið ábyrgð á gjörðum sínum, og við almennir borgarar höfum ekkert um málið að segja, því þarf hins vegar að breyta....þetta fólk á jú að heita í vinnu fyrir okkur.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.2.2008 kl. 17:07

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tjah.... mér detta nú í hug, í sambandi við íslenska pólitíkusa sem sagt hafa af sér, Albert Guðmundsson og Guðmundur Árni Stefánsson?

Er það ekki rétt hjá mér?

Hitt skil ég alls ekki hvernig Vilhjálmi dettur í hug að honum sé stætt á að halda þessu áfram!!! 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 17:15

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Róleg gæskan. Hann fer einn góðviðrisdaginn, annað hvort með hausinn á eða af.

Fann smá fnyk um daginn, en er fullur af kvefi núna, ekki að marka.

Þröstur Unnar, 9.2.2008 kl. 17:18

4 identicon

Það er eins gott að við fjölskildir (les. margskildir) menn séum með okkar ex á hreinu.

Stinkurinn úr Reykjavík er að verða eins og á dögum fiskifnyksins frá Kletti, nema ég sé engann stromp. Maður verður límdur við Spaugstofuna í kvöld og Silfrið á morgun. Hér er verið að sýna Fló á skinni og allir gráta af hlátri. Heitir þetta Hló á skinni þarna í Reykjavíkinni?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 17:20

5 identicon

Jóhanna sagði af sér á sínum tíma þegar hún var ráðherra hér á árum áður.

Sigga (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 17:23

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ja Hrönn ætli Vilhjálmi detti það ekki í hug vegna þess að hann er ekki í neinu sambandi við "fólkið"  og hefur það ekki með inn í jöfnunni.  Við erum í henni á kjördag og búið.  Og ég er orðin svo reið yfir þessu fáránlega sjónarspili.

Hrafnhildur: Margt af þessi fólki er ekki að skenkja því þanka að það sé í finnu fyrir okkur, hin almenna mann.  Enda þurfa þeir sess ekki, hinn almenni maður hefur gullfiskaminni í pólitík.

Sjáið Árna Johnsen, dómarinn var varla búinn að segja sekur, áður en hann var valinn af sjálfstæðismönnum til framboð til Alþingis.  Jú hann náði að vísu að redda rúmum á Kvíabryggju.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.2.2008 kl. 17:23

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er spurning um samvisku manna eins og Vilhjálms og Árna þótt hann sé búin að taka út refsingu !

Breytir maður ekki bara um lífsstíl?

Edda Agnarsdóttir, 9.2.2008 kl. 17:54

8 identicon

Var ekki Þórólfur Árnason látinn fjúka? Vegna þess sem hann gerði á öðrum vinnustað?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 19:11

9 Smámynd: Hugarfluga

It stinks, I'm tellin'ya! Kallinn verður að fara. Það er ekkert annað í boði!

Hugarfluga, 9.2.2008 kl. 20:12

10 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Þú bloggar enn

María Kristjánsdóttir, 9.2.2008 kl. 20:43

11 Smámynd: Tiger

Nef mitt er enn mjög bólgið - grimmilega þrútið og rautt - en ekki að kvefi heldur einmitt þessari ljótu lykt. Hreint (óhreint) ótúlegt ef þessi minnislausi lygalaupur (afsakið orðbragðið) fær að halda áfram á sömu braut. Braut stráðri minnisleysi eftir þörfum, lygum eða ósannsögli eftir þörfum - hvað næst?

Og hreint út ótrúlegt að engin af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins skuli láta ná í sig - loka bara símanum eða svara ekki. Bíddu, halló - eru þeir ekki í vinnu hjá okkur? Er þeim ekki skylt að svara þegar launagreiðandinn reynir að ná í þá? Skítalykt af þessu og ætla ég að vona að við þurfum ekki að standa í þessari hringavitleysu mikið lengur. Burt með Villa og hans kaunalið úr borgarstjórn.

Jenný mín, ég fer að fjárfesta í nýrri og stærri *ælfötu* handa þér því það er svo margt sem hægt er að æla yfir um þessar mundir. Kannski þú ættir í leiðinni að fara í góða úlpu vegna þess að maður getur kannski klætt af sér þessa veðrapólitík, þetta fárviðri.

Tiger, 9.2.2008 kl. 20:50

12 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Villi er að verða eins og Árni Jónsen fastur í lýginni.

Guðjón H Finnbogason, 9.2.2008 kl. 20:51

13 Smámynd: Fríða Eyland

Það er enn fnykur það er engin spurning, færslan er flott hjá þér, mér er óglatt og æli líka. Í apríl var það bruna.....nú ýlda  hann má ekki fá að semja um lækjartorg, manni sem öllu gleymir í græðgikasti.   óhæfur

Fríða Eyland, 9.2.2008 kl. 20:53

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Villi verður horfinn eftir helgi, ekki spurning, maðurinn er míglekur og hrikalega óheiðarlegur að því að mér virðist á viðtölum við hann og ræðum síðustu mánuði.  Fílan á eftir að breytast í ilm af rauðum rósum.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 20:56

15 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hallgerður, auðvitað á fólk að byrja með hreint borð eftir að hafa tekið út sína refsingu. Ég (og ansi margir fleiri) sáu bara aldrei neina iðrun eða yfirbót hjá Árna, þannig að ég get ekki með nokkru móti skilið hvernig fólk gat hugsað sér að kjósa hann aftur til embættis.

Mér er ekki illa við Árna Johnsen, hann á til mjög marga góða hluti, en ég vildi óska að hann sneri sinni miklu vinnuorku annað en að stjórna landinu.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 10.2.2008 kl. 11:13

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Ég er þér innilega sammála.  Enda tók ég Árna sem dæmi sem var snöggur inn aftur eftir sitt brot.  Auðvitað er hann búinn að sitja af sér sína refsingu og það er búið mál.  En eins og þú segir Hildigunnur, þá vildi ég gjarnan sjá hann í öðrum verkum því þetta er duglegur karl.

Hallgerður: Eg er ekki vammlaus kona, alls ekki, en ég með með málfrelsi og þetta með Árna átti við í umræðunni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.2.2008 kl. 11:34

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

María: Var ég búin að lofa/hóta því að hætta. Úff, það er þá heldur betur dottið úr gildi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.2.2008 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985875

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.