Leita í fréttum mbl.is

Ég vaknaði fyrir allar aldir - ég legg ekki mikið meira á ykkur...

 

..en ég fór á gamlar slóðir, Kr-heimilið, þar sem ég var nánast daglegur gestur i fleiri ár, vegna þess að Maysa og Sara voru í stífri fimleikaþjálfun.

Nú er hún Jenný Una Eriksdótir komin í íþróttaskóla.  Fyrir þriggja ára börn.  Alls kyns leikir og þrautir sem börnunum finnst rosa skemmtilegt að taka þátt í.

Jenný Una er virkur þátttakandi, í sumu, sumt finnst henni baddnalegt.  Hún ætlar að fara í fLimleika og allt í íþróttaskólanum sem hefur tengingu í flimleikana elskar hún, eins og að dingla í hringjum, fara kollhnísa, ganga á jafnvægisslá, finnst henni skemmtilegast. En hún tekur þátt í hinu auðvitað líka, hún er svo vel upp alin.  En það kemur á hana smá þreytusvipur, eins og t.d. í blöðruleiknum, alveg: við erum nú engin beibí hérna.

En ég hafði óskaplega gaman að þessum litlu krúttum, leikgleðinni, einbeitninni og félagsandanum, þó ég hafi alltaf haldið að hann væri nú ekki svo mikið mótaður á þessum aldri.  En þau tóku svo sannarlega tillit.

Á leiðinni heim í bílnum sagði Jenný:  Amma, þú kom koma með í þróttakskólann minn alltaf!  Og það veit ég að er rausnarlega boðið.  Ég var mjög upp með mér og var nærri búin að tárast þarna í framsætinu.  Krúttkast.

Smá sýnishorn af æfingum.

Efri myndin er af Unu og Söru KAMBAN ásamt mínum íþróttaálfi.

Og hér eru teknar alvarlegar armbeygjur fyrir komandi flimleikaþátttöku.

Later!

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mitt blíðublóm er líka í íþróttum. Yndislegar mannverur ömmubörnin okkar.knús inn í góðan dag

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 12:28

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er krúttalegt.

Edda Agnarsdóttir, 9.2.2008 kl. 12:30

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

this is live.......ef maður gleðst ekki yfir þessu.....þá er manni ekki bjargandi...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.2.2008 kl. 12:58

4 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

yndislegt

Svanhildur Karlsdóttir, 9.2.2008 kl. 13:03

5 Smámynd: Ragnheiður

Litla krúttið, náttlega ómögulegt að standa í einhverju smábarnalegu stússi sem helst myndi henta Hrafni Óla....amma hlýtur að sjá það hehe

Ragnheiður , 9.2.2008 kl. 13:07

6 identicon

Dásamlega krúttlegt að sjá þessi kríli. Ég sendi Ninnu mína í svona skóla þegar hún var 3-4 ára. Þetta var heilt ævintýraland sem sett var upp fyrir þau á gólfinu og þvílíkt fín þjálfun í leiðinni.

Smjúts

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 14:20

7 Smámynd: Tiger

Hugsaðu þér Jenný hvað þú ert lánsöm. Þú komst undan því að "gleyma/missa" af þessu. Örugglega ekki í fyrsta sinn sem þú upplifir eitthvað sem gamli harðstjórinn þinn sá um að þú fengir ekki að njóta - og örugglega ekki í síðasta sinn heldur!

Svona stundir eru gulls ígildi og við megum vera þakklát fyrir að geta notið þeirra með börnunum. Börnin gefa okkur svo mikið ef við erum tilbúin í að "vera með" og njóta með þeim allra þeirra æfintýra sem þau upplifa á hverjum degi.

Börnin þurfa á okkur að halda - og við þurfum á þeim að halda. Það sem þau gefa okkur er þess virði að vera þátttakandi í. Þú ert heppin Jenný - þú ert rík hvað þína afkomendur varðar - yndisleg.

Tiger, 9.2.2008 kl. 14:55

8 identicon

"Amma, þú kom koma með í þróttakskólann minn alltaf!"

Þvílíka rúsínurófan   Mig er sko farið að hlakka til að verða amma. Ég sver það . 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 16:53

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ohhh hvað maður er ógisslega fínn í íþróttaskólanum. Allt útpælt. hehe.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.2.2008 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband