Leita í fréttum mbl.is

Símhringing á Laugardagsmorgni

 

Kl. er níu, ég sef dásamlega, eins og allir sem eru með samvisku í sama lit og hvíta stöffið sem liggur hér um allar götur, og mig er að dreyma yndislega.  Ég ákvað í gærkvöldi að sofa amk. til hádegis.

Ring - ring - ring- ring- (ég alveg: þetta hlýtur að hætta, en Guð það gæti verið eitthvað að hjá stelpunum mínum, hendist á ógnarhraða í síma)

Ég: (á innsoginu) Halló!!!

Fífl úr ónefndri bókabúð sem ég skipti við: Góðan daginn, er þetta ekki Jenný Anna?

Ég: Jú, nokkuð líklegt, minn sími og sonna.

Fífl: Heyrðu, þú gleymdir bókinni sóandó, þegar þú varst hérna í vikunni.

Ég (opna búðir kl. 9 á laugardagsmorgnum, nebb getur ekki verið): Já ég veit það, var búin að láta vita að ég kæmi eftir henni þegar ég ætti leið hjá.

Fífl: Æi það er bara svo mikið af bókum hérna (er í lagi, allt löðrandi í bókum í BÓKABÚÐ) og ég myndi gjarnan vilja að þú næðir í hana sem fyrst, hún gæti týnstW00t

Ég: Eruð dálítið í að týna bókum í bókabúðinni hjá ykkur (ísköld í röddinni)

Fífl: (Æsist öll upp). Já þú ættir að vita um skipulagsleysið hérna, hver bókin innan um aðra og þær bækur sem ekki fara upp í hillur eins og þín (fyrirgefðu að ég skuli drusla út fyrirtækið) liggja hér hver um aðra þvera og ég þoli ekki svona drasl í kringum kassann.

Ég: Ég er ekki sálfræðingur, en ég held að þú þurfir hjálp, en þar sem ég er búin að borga bókina, geturðu ekki fundið henni öruggan stað, bara í nokkra daga þar til ég er á ferðinni?

Fífl: (Brjálast) Nokkra daga, þetta er ekki hlutageymsla, þetta er bókabúð, ég vil að þú komir í dag og náir í hana áður en hún týnist.  Er það ekki möguleiki að þú gefir þér smá tíma í þetta mál? (Kuldaleg og full fyrirlitngar í málróm)

Ég: Orðlaus

Fífl: (jólaglöð í röddinni) Svo vorum við að fá inn nýja sendingu af erlendum, ofsalega gott og mikið úrval, þú villt örugglega kíkja á það.

Ég: Hvenær opnar búðin?

Fífl.: 11

Ég Heyrðu þú vaktir mig, ég ætla að halda áfram að sofa, þú mátt eiga bókina og líma hana á hnakkann á þér, mér er svo sama.  Ekki hringja aftur.

Fífl: (Móðguð og stórlega misboðið). Þorrí, ég er nú bara að hafa eftirlit með mínum kúnnum, svo þeir verði ekki fyrir veseni með bækurnar sínar og það varst ÞÚ sem skildir bókina eftir hérna, ekki ég (full ásökunar). Farðu endilega að sofa, fyrirgefðu að ég skyldi voga mér að reyna að vera liðleg.

Ég: Ég nærri því hata þig.

Pang.

Nei ég er ekki að ljúga. Þetta gerðist sirka svona.  Hefur þessi búð sem stofnuð var á fyrri part síðustu aldar eða eitthvað, ekkert lært?

En nú er ég vöknuð og óggissla hress og það eina sem ég veit að  ég ætla ekki að gera er að fara til fröken þjónustulundar.is og ná í mína eðalbók.

ARG við eldhúsborðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vignir

,,Ég Heyrðu þú vaktir mig, ég ætla að halda áfram að sofa, þú mátt eiga bókina og líma hana á hnakkann á þér, mér er svo sama. Ekki hringja aftur,,

og að bjóða þér að líta á spánýjar bækur til að koma sér út úr vandræðum.....

Þetta samtal væri efni í einhvern grínþátt held ég.

Snilld! ;o)

Vignir, 2.2.2008 kl. 12:00

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Ertu svona grautfúl á morgnanna?

Áttir bara að send´enni hamfaraknús fyrir að ræsa þig á þessum yndisfagra degi.

Skamm.....

Þröstur Unnar, 2.2.2008 kl. 12:37

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hefði bara lagt á, er aldrei góð í miklar samræður snemma dags.  Hvaða merkisbók var þetta annars. ??  Eigðu ljúfan dag mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.2.2008 kl. 12:47

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ertuekkiörglabúinaðfáþérrettuogkaffiogskoðaþráinnbertífréttabladinuídag?

Annars ansi gott að kúra á laugardagsmorgnum!

Edda Agnarsdóttir, 2.2.2008 kl. 12:51

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Eymingja konan var bara að reyna að vera liðleg. Hún hefur ábyggilega haldið að þú hafir legið andvaka í alla nótt  af söknuði yfir bókinni.

Markús frá Djúpalæk, 2.2.2008 kl. 12:58

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Sú er dónaleg við þig ég skil ekki svona þjónustu og það á laugardagsmorgni Jenný mín eigðu góðan dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 2.2.2008 kl. 13:13

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahaha snilld!

Hrönn Sigurðardóttir, 2.2.2008 kl. 13:18

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þráinnbertelssonverðurtekinntonnatakiísérstakrifærsluáeftir.  Hehe

Æi lífið er skemmtilegt.  Hvað ef ekkert svona gerðist eins og símtöl frá bókabúðarnerði á laugardagsmorgni?  Maður hefði einfaldlega ekkert að blogga um.  Ekki gott. Ég elska þennan stelpubjána eftir sígó og kafffi.

En bókin fær að bíða -----þangað til að hún er komin á þjóðarbókhlöðuna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2008 kl. 13:22

9 Smámynd: Hugarfluga

Frusssss!!! Ég HATA það þegar fólk hringir þegar ég er sofandi! Alveg sama hvort það er um miðja nótt eða miðjan dag. Ef ég er sofandi MÁ EKKI ónáða mig! Og hvað er fíbblið að hringja kl. 9 þegar búðin opnar ekki fyrr en 11.  Mættur tveimur tímum fyrir opnun til að raða bókinni sem gleymdist? Vá, get a life.

Hugarfluga, 2.2.2008 kl. 13:33

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan dag.....í stað þess að lúlla fram eftir, eiga allir að fara snemma á fætur og fara í sund í 15 gráðu gaddinum eins og kærleiksfjölskyldan gerði á þessu heimili í morgun !

En þessi færsla er frábær og ekki slæmt að fyrsta bloggfærslan sem að lesin er á þessum drottins dýrðardegi komi mér til að hlægja !

Farin að raða í mig bollum !

Sunna Dóra Möller, 2.2.2008 kl. 13:40

11 Smámynd: Ragnheiður

Jæja jæja jæja...ég fann not fyrir Framsóknarhnífana, þeir bitu ágætlega

Ragnheiður , 2.2.2008 kl. 13:50

12 Smámynd: Kolgrima

Þú ert snillingur, Jenný

Kolgrima, 2.2.2008 kl. 14:04

13 Smámynd: Tiger

 Algert konfekt að lesa þig þegar þú tekur þig til og ert pínu örg. Sannarlega er það bitchy að raska ró manns þegar maður hefur ákveðið að slappa af, sofa t.d. fram að hádegi en vera vakinn minnst 3 tímum áður en sá tími kemur.

Sé að þú ert búin með kaffibollann og sígóið svo þú ert pollróleg, gott mál. Alltaf gott að blása út á bloggi svona til að losa mann við óvelkomna gremju sem "fíflin" skapa okkur með of lipurri framkomu. Með því að blogga um þetta kemur þú okkur í gott skap - þitt geðstirða  (jamm glætan) kemur okkar í fíling. Takk takk ...

Tiger, 2.2.2008 kl. 14:06

14 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Margur hefur byrjað með verri uppistöðu í gamanverk en þetta,ég held að þú ættir að spuna við þetta þú ert á góðri leið.Frábært hjá þér hún hringir kl9 en búðin opnar 11 hvað er að.Kv.kokkurinn

Guðjón H Finnbogason, 2.2.2008 kl. 14:07

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú er frábær, en aumingjans manneskjan sem ætlaði að vera svo almennileg við uppáhaldskúnnan sinn, og svo er hún örugglega búin að lesa þetta líka elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2008 kl. 16:30

16 identicon

ARRRRRGGGG!!!!!!

 Ég bilast úr hlárti.

Takk fyrir mig

Einar Örn Einarsson (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 16:52

17 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Níu að morgni laugardags? Og með tuð og leiðindi að auki. Ég sé að það er rétt ákvörðun að versla bækur af Amazon!

Þórdís Guðmundsdóttir, 2.2.2008 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.