Leita í fréttum mbl.is

Ég tók þetta til mín ;)

Ég á uppkomnar dætur, en stóð mig að því að taka tilmælin um að halda börnunum heima, algjörlega til mín.

Það er ekki alveg í lagi með mig.

Ég hringdi bæði í Söru og Helgu (Helga svaraði ekki), vakti alla á heimilinu til að segja þeim það sem þau voru fullkomlega meðvituð um, að fara ekki út úr húsi.  Sara sagði: MAMMA.

Ég hringdi líki í Dúu vinkonu mína.  Hún skildi mig alveg.

Hringdi ekki í Maríu til London, því mér skilst að það sé ágætis veður þar.

Getur fólk plumað sig án mín?

Ædóntþeinksó.

Farin að lúlla eftir erfiði og eftirlitsstörf morgunsins.

Úje og falalalala


mbl.is Foreldrar beðnir um að halda börnum heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mamma hringdi hingað líka í morgun til að kyrrsetja alla , mér finnst það of krúttlegt! Ég verð örugglega svona líka þegar mín börn verða farin, alltaf að fylgjast með þeim !

Sunna Dóra Möller, 14.12.2007 kl. 09:39

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Haha ég gerð það sama og þú Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.12.2007 kl. 09:46

3 Smámynd: Bergrún Íris Sævarsdóttir

haha.. þetta er frábært ! Ég á ekki börn en reyndi að halda kallinum heima. Kom með dramatíska ræðu um að hann ætti ekki að hætta lífi og limum fyrir vinnuna. Honum fannst ég bara kjánaleg og dreif sig út í storminn.

Bergrún Íris Sævarsdóttir, 14.12.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Auðvitað tókstu þetta til þín! Mamma hringdi í mig líka

Laufey Ólafsdóttir, 14.12.2007 kl. 10:29

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég fór út!!! Enda hringdirðu ekkert...........

Hrönn Sigurðardóttir, 14.12.2007 kl. 10:40

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Mér fyndist nú allt í lagi að einhver góðhjörtuð hringdi í mig og hefði verulegar áhyggjur, eða segði mér að vera bara heima.  

Þröstur Unnar, 14.12.2007 kl. 10:53

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Takk Dúa mín.

Þröstur Unnar, 14.12.2007 kl. 10:55

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah þið eruð svo miklar dúllur

Hrönn Sigurðardóttir, 14.12.2007 kl. 11:04

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú ert krútt - en afhverju hringdirðu ekki í mig? Iam not big mama!

Edda Agnarsdóttir, 14.12.2007 kl. 11:23

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þú hringdir ekki í mig

Jóna Á. Gísladóttir, 14.12.2007 kl. 11:28

11 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Ég þurfti ekki að hringja. Tilkynnti bara strákunum og skólunum að þeir færu ekki neitt í dag. Knús til þín, þú ert hugulsamt krútt

Bjarndís Helena Mitchell, 14.12.2007 kl. 11:34

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi ég hefði átt að hringja í ykkur öll, algjörlega á línuna.  Jóna, er ekki að djóka, en ég var að pæla í að hringja, sá ekki fyrir mér að þið Bretinn væruð að hlusta á útvarpið í morgunsárið. Náði að hemja mig, hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.12.2007 kl. 11:50

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Notið´ði smáaletrið, konan er sofandi.

Þröstur Unnar, 14.12.2007 kl. 11:50

14 identicon

Vil minna viðstadda á að ég er nýorðin þrjátíuogsjöára og með aðgang að útvarpi á menningarheimili mínu í vesturbæ. Svaraði ekki síma þar sem ég var að keyra einkaerfingjann í Hagaskóla. Enginn griður hjá mér, barn fer í dönskupróf hvað sem öllum stormum líður.  

Fór svo og sótti stráksa eftir prófið, þá var hann nú voða feginn að hafa klárað þetta, sérstaklega þar sem unglingar sem voru heima í storminum þurfa að taka prófið næstkomandi miðvikudag. Þá er hann kominn í jólafrí.

Rokk og ról.

Frumburðurinn (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 11:55

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helga: Gott að þú ert á lífi, þú ert engu minni harðstjóri en móðir þín, í skólann hvað sem það kostar

Þröstur: Þú drepur mig, hahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.12.2007 kl. 12:03

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hérna er ég komin í eigin líki. Knús frá syninum sem er næstum búinn að fyrirgefa mér fyrir að kalla einhverja kjéddlíngu elskuna sína.

Guðríður Haraldsdóttir, 14.12.2007 kl. 15:05

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL LOL LOL LOL LOL LOL ég var að pæla í því hvaða gaur á kagganum væri að knúsa Jenfo Ég drepst

Jóna Á. Gísladóttir, 14.12.2007 kl. 16:54

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og ég hélt að þetta væri einhver náungi í Köben eða ekkað sem ég ætti að þekkja.  Gurrí sonurinn er KÚL

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.12.2007 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985791

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband