Leita í fréttum mbl.is

FRESTUNARÁRÁTTA UNDIRRITAÐRAR

Ég er haldin frestunaráráttu á háu stigi.  Það vita þeir sem mig þekkja.  Þetta náði þó hámarki sínu á meðan ég drakk, enda allsendis ófær á því stigi máls að gera nokkurn skapaðan hlut annan, þarna í lokin, nema sitja og horfa tómum augum á vegginn.  Stofuveggurinn heima hjá mér ætti að komast í einhverja heimsmetabók, það er ekki séns að þeir veggir séu til sem hefur verið starað á jafn þrálátlega og þennan heima hjá mér (jú, líka meira en á minningarvegginn yfir fallna í Vietnam), svei mér þá.

Á hverjum degi, berst ég við frestunarbölið og nú orðið með ágætis árangri.  Auðvitað fer þetta frá eyra til ökkla hvað mig áhrærir, þar sem núna get ég eiginlega ekki frestað neinu, þótt líf mitt liggi við, af því þá líður mér eins og ég hafi tapað.  Tapað illa og ég fæ tilfinninguna frá fyllibyttutímanum inn í hug og hjarta og mér líður skelfilega.

Í morgun varð ég að fresta.  Það var full ástæða til þess en ég barðist til síðasta blóðdropa (mínir blóðdropar eru fáir, það vita bloggvinir mínir sem lásu blóðleysisfærsluna).  Hin margumtalaða magaspeglun var á dagskrá í morgun.  Ég, hins vegar,  var með uppköst í alla nótt sem voru ekki af þessum heimi.  Hita og alles.  Ég stóð ekki í lappir í morgun, en hafði það af að klæða mig á klukkutíma eða svo.  Ég varð að fresta.  Mér líður illa bara við að skrifa það. 

Ég, komin í frestunarhaminn, er ekki búin að láta vita á speglunarfyrirkomulagið.  Já ég veit, ekki gott en Róm var fjandinn sjálfur ekki byggð á einum degi.  Nú er ég búin að básúna þessu á bloggið og verð að fara og hringja í speglunarfólkið, biðjast afsökunar og fá nýjan tíma.  Það geri ég núna.  Eitthvað gott kom þá út úr játningarfærslu dagsins.

Ætli maður geti framkallað allskonar veikindi bara til að sleppa við óþægindi?  Það hefur stundum hvarflað að mér en ég kæri mig ekki um fyrirlestra um yfirfærslur takk fyrir.

Súmí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Sona nú stelpa drífa sig bara í þetta þá er búið áður en þú veist af og gangi þér vel ljósið mitt.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.7.2007 kl. 10:08

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Stuðningskveðjur, elskan!

Guðríður Haraldsdóttir, 24.7.2007 kl. 10:18

3 identicon

Byrjaðu nú á því að láta þér batna.

Maja Solla (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 10:29

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

þetta er ekki eins slæmt og maður heldur, ég fór í magaspeglun fyrir mörgum árum síðan og var búin að mikla þetta mikið fyrir mér, svo þegar allt var yfirstaðið þá var ég aðaltöffarinn - hva! bara písofkeik!!

Huld S. Ringsted, 24.7.2007 kl. 11:15

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Já.......minn kall fór fyrir um ári og svaf allan tímann....! Sjálf hef ég alltaf hræðst það eins og pestina að þurfa einhvern tímann að fara í svona, mér finnst aðferðin eitthvað svo óhugguleg og vegna þess að ég er með króníska fóbíu að fá eitthvað ofan í háls og geta ekki andað........ en svo segir fólk að þetta sé alltílæ..........gangi þér ótrúlega vel með þetta, þetta fer án efa allt saman vel að lokum !

Sunna Dóra Möller, 24.7.2007 kl. 11:24

6 Smámynd: Ragnheiður

Ég held að maður mikli þetta fyrir sér, ég frestaði svona aðgerð fyrir áratug og hef enn ekki farið. Það gerir ekkert til, einkennin sem ég hafði fóru bara sjálf. Láttu þér batna sæta spæta

Ragnheiður , 24.7.2007 kl. 11:38

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef bloggað um magaspeglanir áður og hef farið í nokkrar.  Mitt dilemma hefur verið að taka deyfingu eða taka hana ekki.  Vegna míns alkóhólisma að sjálfsögðu.  Við eigum það sameiginlegt Sunna Dóra að þola ekki aðskotahluti í hálsinn, þess vegna verð ég að fá róandi.  Gerði það upp við mig eftir mikið "om og men" að þessu sinni að láta mig hafa stöffið og treysta á gott hugarfar mitt í bataferlinu og svo auðvitað Vog ef illa færi.  Að þessu ferli öllu loknu, kemst ég svo ekki í rannsóknina.  Arg vandlifað.

Sunna Dóra: á eftir ætla ég að blogga aðeins um þig.  Við erum andlega skyldar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2007 kl. 12:04

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég hef sjálf tilhneigngu til að fresta því sem ég tel vera óþægilegt og oftast er maður að gera sér þetta erfiðara með því. Drífðu þig bara og hertu upp hugann stelpa! Gangi þér vel

Marta B Helgadóttir, 24.7.2007 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985856

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband