Leita í fréttum mbl.is

Á SORAVAKTINNI ALLAN SÓLARHRINGINN

1

Og í ruslatunnuna fer Sigurður V. Steinþórsson, pizzasendill hjá Dominos, sem ætlar að framleiða íslenskt netklám og hefur auglýst eftir áhugasömum "leikurum" til að taka þátt.  Maðurinn segir að fullt af fólki sýnt djobbinu áhuga og þrátt fyrir sendlastörfin þá ætlar Sigurður að borga vel, en 150 þúsund krónur vill hann borga og þá sennilega fyrir "aðalhlutverk" (fylgist maðurinn ekki með launaþróuninni?).  Það er ekki að trufla strákinn þótt framleiðsla á klámi sé bönnuð með lögum.  Hann ætlar að láta reyna á þetta enda vitað mál að fólk um allan heim græðir stórar fjárhæðir á mansali og klámi. 

Mikið rosalega held ég að ruslatunnuvistin hjá mér henti þessum sendli.  Það kemur hann að smellpassa inn í innréttinguna í bland við kjötafganga, pappírsrusl, sósuafganga og annan úrgang.

Langar einhverjum í pizzu... frá Dominos???

Annars er ég andvaka, það er svo erfitt að sofa þegar sólin skín og btw. Gleðilegan 17. júní


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skella álpappír í gluggann eins og gert er stundum þegar börnin neita að sofa af því að það er dagur. Ljótt en það virkar Nei ekki langar mig í pizzu frá Dóminnós.Metnaður þessa unga "kvikmyndagerðarmanns" þykir mér sorglegur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.6.2007 kl. 08:27

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég get alveg ímyndað mér að Dominos muni hafa eitthvað um það að segja að drengasninn auglýsi að hann vinni hjá dominos. Fólk man það. Kemur alltaf til með að vísa til hans sem slíks. Ekki gott fyrir Dominos (þó það sé engan veginn þeim að kenna).

Jóna Á. Gísladóttir, 17.6.2007 kl. 12:00

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hefði sleppt þessum upplýsingum ef ég væri klámsendill.  Sem ég er ekki sem betur fer.  Ég mun ekki kaupa á Dominós (hef svo sem ekki gert það áður nema kannski 2var eða eitthvað).

BD það er svo forljótt að hafa álpappír fyrir gluggunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 2985866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.