Leita í fréttum mbl.is

ÉG LEGG TIL AÐ...

1

Goldfinger og öðrum álíka sullupollum verði lokað, lyklunum hent og eigendum staðanna boðið að flytjast ti Jan Mayen.

Þetta geri ég vegna þess að mér hefur verið sagt að ég sé gott efni í lögreglu.  Mínar abissjónir hafa aldrei legið í þá veru en þegar mansalsholur eru opnar og neyð stúlkna frá fátækari löndum er nýtt til að maka krókinn og ferðafrelsi þeirra ásamt öðrum mannréttindum eru fótum troðin,  þá fæ ég ofurtrú á valdbeitingu.  Sko mikill valdbeitingu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl, Jenný Anna !

Jah.... þar kom að því, að ég yrði þér sammála, í grundvallaratriðum. Forsmán, að þessi staður, og aðrir viðlíka; skuli fá að drabba niður þá örlitlu siðmenningu, hver enn tórir, meðal okkar.

Megum vorkenna Kópavogsbúum, í ríkum mæli;; eða....... hvar annars staðar yrði liðið, hérlendis, að opið klóak væri látið viðgangast ? Það er eitthvað mikið að, í stjórnkerfi þessa ágæta bæjar. En........ er þetta ekki bara enn eitt dæmið, um ''uppbyggingu og framfarir'' þar sem hinir uppskrúfuðu og veruleikafirrtu Sjálfstæðismenn halda um tauma ?

Guðríður Arnardóttir á mikinn heiður skilinn, fyrir þá djörfung og kjark, að bjóða þessum sóðaskap birginn. Vonandi tekst henni, að opna augu samborgara sinna, fyrir þessarri ómennsku, allri.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.6.2007 kl. 01:22

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sammála ykkur báðum!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 01:23

3 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Segðu bara sannleikann Jenný.... það var ég sem var að ýta þér út á braut laganna ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 17.6.2007 kl. 02:16

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hm..Eva takk fyrir andskoti vafasaman heiður

Takk Helgi og Gurrí!

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 04:08

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er enn jafn hissa á því að vændi sé orðið löglegt á Íslandi.  Fyrir hvern ?  Gamla og ljóta karla, ha ?   Þegar sjallarnir lögleiddu vændið var nánast ekki einu sinni fjallað um það í fjölmiðlum.  A.m.k. sá ég engan pólitíkus koma í viðtal út af málinu.  Urrrrrrrr. 

Anna Einarsdóttir, 17.6.2007 kl. 10:38

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það slapp í gegnum þingið Anna alveg á síðustu metrunum og þetta var gert um nótt.  Til að fá fram fyrningarleysi á kynferðisafbrotum gegn börnum (Ágúst Ólafur) sem var nauðsynlegt mál, slepptu VG og Samfylking þessu í gegn.  Ég veit ekki með Samfó en VG samþykktu með fyrirvara um að taka málið upp aftur strax í haust.

Þannig að nú  um stundir er vændi ekki refsivert á Íslandi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.